Morgunblaðið - 04.07.2012, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.07.2012, Qupperneq 11
land og Íslendinga. Bloggið varð þó öllu pólitískara eftir hrun og hlaut mikla athygli út á það. Hætta að heilsast „Erfitt er að ætla sér að lýsa íslensku þjóðarsálinni í nokkrum orðum en þó má nefna nokkur dæmi. Mér finnst þetta hæfilega kæruleysi t.d. jákvæður þáttur í ís- lenskri þjóðarsál svo lengi sem við erum ekki allt of kærulaus. En flest sem ég nefni í bókinni getur haft bæði sínar jákvæðu og neikvæðu hliðar. Hér eru líka stuttar boðleið- ir oft þægilegar en um leið getur lítið samfélag verið þrúgandi. Eitt sem lítið hefur verið talað um, en ég skrifa um í bókinni og finnst mjög merkilegt, er hve lengi fólk heilsast úti á götu. Svo virð- ist vera sem fólki kynnist ágætlega eftir að það hefur kannski dottið í það eitt kvöld eða farið í ferð með hópi. Síðan skilja leiðir og fólk heilsast voðalega inni- lega í nokkra mánuði en síð- an fer þetta að dofna og eft- ir ákveðinn tíma er það hætt að heilsast. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta komi til af því að eftir ákveðinn tíma þurfir þú að heilsa öll- um í landinu. Kannski sé þetta því einhvers konar kvótakerfi þar sem maður klárar kvótann eftir ákveðinn tíma,“ segir Alda. Íslendingarnir ánægðir Bókin kom fyrst út sem raf- bók, líkt og fyrsta bók Öldu, Living Inside a Meltdown og er þriðja raf- bókin nú rétt ókomin á netið. „Ég er mikil áhugamanneskja um rafvæðingu bóka og slík útgáfa hentar mér vel þar sem með henni er auðvelt að ná til erlendra les- enda. Enda eru les- og spjaldtölvur orðnar mjög algengar víða erlend- is.Living Inside a Meltdown var viðtalsbók með sögum fólks sem hafði upplifað hrunið hvert með sínum hætti. En þriðja bókin er þýðing á íslensku þjóðsögunum og inngangur um þessa söguhefð Ís- lendinga,“ segir Alda. Viðbrögðin við bókinni hafa verið góð en einna best frá Íslend- ingum sem Alda segir að sé mjög skemmtilegt. „Margir útlendingar sem búa á Íslandi lásu bloggið mitt og mér fannst dálítið fyndið að í hvert sinn sem ég skrifaði eitthvað, og jafnvel eitthvað sem ég var hrædd við að segja, þá var fólk undantekningar- laust sammála mér. Það var gaman að fá staðfestingu á því að ég væri ekki sú eina sem upplifði hlutina á ákveðinn hátt, “ segir Alda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferðarmenning Íslendingar gefa gjarnan stefnuljós í miðri beygju eða sleppa því alveg. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 Í síðustu viku var sushistaðurinn Soya Makibar opnaður í Iðuhúsinu við Lækjargötu. Staðurinn er ólíkur öðrum sushistöðum hér á landi að því leytinu til að gestir velja sér sjálfir hráefni í makirúllurnar eða salatið. „Þetta virkar í rauninni eins og þegar maður fer á Subway,“ út- skýrir Ívar Unnsteinsson mat- reiðslumeistari sem ásamt þeim El- ís Árnasyni og Þórhalli Arnórssyni stendur að baki staðnum. „Þú kemur að afgreiðsluborðinu og byrjar á því að velja hvort þú viljir maki-rúllu eða salat. Því næst vel- urðu þér kjöt, fisk eða grænmeti og svo sósur og tilheyrandi,“ segir Ívar en hægt er að velja milli níu mismunandi kjöt- og fisktegunda. „Að lokum er þetta skorið niður, sett í box og svo getur fólk valið hvort það tekur matinn með sér eða borðar á staðnum,“ segir Ívar og bendir á að staðurinn sé einn sinnar tegundar hér á landi, jafnvel í Evrópu. „Ég veit ekki til þess að það sé svona staður annars staðar í Evrópu en veit af nokkrum í Bandaríkjunum,“ segir hann. Soya Makibar opnaði síðastliðinn fimmtudag og segir Ívar Íslendinga taka vel á móti staðnum sem er hannaður af Leifi Welding. „Viðtök- urnar hafa verið mjög góðar,“ segir hann og bendir á að fólki finnist alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. „Fólk er ánægt með þessa nýjung og finnst þetta spennandi.“ Nýr sushistaður opnar í Lækjargötu Morgunblaðið/Heiddi Fjölbreytt Á Soya Makibar er hægt að velja úr fjölda mismunandi kjöt- og fisktegunda ásamt ýmsu grænmeti, sósum og öllu sem tilheyrir. Gestir velja sitt uppáhaldssushi Ljósmyndir/Kristín Sigurgeirsdóttir Sushi Bakki frá Soya Makibar. Maki-rúlla Á fullu í sushigerðinni. Alda Sigmundsdóttir starfar sem þýðandi og rekur Ensku textasmiðjuna sem sinnir texta- gerð á ensku svo og þýðingum. Alda hefur skrifað talsvert fyrir erlenda fjölmiðla, hún var fréttaritari AP fréttastofunnar um skeið og skrifaði einnig fyrir Guardian og fleiri blöð. Einnig stundar Alda nú nám í þjóð- fræði og ensku og heldur úti Facebook- síðunni The Iceland Weat- her Report þar sem hún skrif- ar á ensku um ýmis málefni líðandi stund- ar. Málefni líð- andi stundar THE ICELAND WEATHER REPORT Youth Ensemble of New England heldur þrenna tónleika á Íslandi á næstu dögum. Er þetta í annað sinn sem sveitin heimsækir Ísland en hún er skipuð 30 ungmennum á aldrinum 10-20 ára og er stjórn- andi Connie Rittenhouse. Hljómsveitin leikur verk sem eru sambland af klassík og kirkju- tónlist frá barokktímabilinu til nú- tímans. Sveitin hefur haldið tónleika víða og hlotið mikið lof. Þau hafa m.a. leikið á Jamaíka, í Kanada, í Edinborgarkastala í Skotlandi og í Windsorkastala á Englandi. Þau hafa verið á ferðalagi og lýkur ferð þeirra hér. En nokkur ungmennanna eru af íslensku bergi brotin. Frítt er inn á alla tónleikana, en þeir sem vilja styrkja Líknar- og vinafélagið Bergmál geta gert það með fjár- framlagi á fyrstu tónleikum sveit- arinnar í Selfosskirkju í kvöld, mið- vikudagskvöldið 4.júlí kl. 20.00. Einnig verða tónleikar í Guðríð- arkirkju föstudagskvöldið 6. júlí og í Aðventkirkjunni í Reykjavík laug- ardaginn 7. júlí kl. 12.00 (Ingólfs- stræti 19). Youth Ensemble of New England í Íslandsheimsókn Ungmenni sem leika sambland af klassík og kirkjutónlist Tónleikar Ungmennin í Youth Ensemble of New England eru nú stödd á Íslandi. Psyllium Husk hylki • Eykur trefjar í mataræði • Bætir meltinguna • Styður við hreinsun á ristli Acidophilus og Bifidus góðgerlablanda • Gott fyrir meltinguna • Stuðlar að jafnvægi þarmaflóru • Styður ónæmiskerfið Omega 3-6-9 fitusýrur • Lífsnauðsynlegar fitusýrur • Stuðla að heilbrigðu hjarta- og æðakerfi • Draga úr bólgumyndun í líkamanum NOW bætiefni með 10% afslætti www.lifandimarkadur.is Borgartúni 24 | Reykjavík Hæðasmára 6 | Kópavogi Sími 585 8700

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.