Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 14

Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 STUTT Kristján Valur Ingólfsson, vígslu- biskup í Skálholti, vígði um síðustu helgi nýjan kirkjugarð við Sól- heimakirkju. Í tilkynningu segir, að kirkju- garðurinn hafi verið á deiliskipu- lagi frá árinu 2001 og sé því merk- um áfanga náð. Á aðalsafnaðarfundi Mosfells- sóknar 1. júlí árið 2010, hafi verið samþykkt að senda umsókn Sól- heima til Kirkjugarðaráðs um upp- töku nýs kirkjugarðs við Sólheima- kirkju. Fram kemur að margir hafi kom- ið að undirbúningi við garðinn. Kostnaður við gerð garðsins sé alfarið á höndum Sólheima, svo og allt viðhald og umhirða. Sólheimakirkja var vígð árið 2005 en framkvæmdir hófust þar árið 2002. Prestur Sólheima er sr. Birgir Thomsen. Nýr kirkjugarður vígður á Sólheimum Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty stendur fyrir uppákomu á Austurvelli í Reykjavík klukkan 12 í dag. Þar munu ungir aðgerðasinnar safna undirskrifum og vera með sýningu á algengum pyntingaaðferðum. Í tilkynningu segir að fólki gefist þar færi á að prófa aðferðirnar í örstuttan tíma og kynna sér málefni Kanadamanns að nafni Maher Arar, sem hafi sætt pynt- ingum af hálfu sýrlenskra stjórnvalda. Ungliðahreyfingin var stofnuð síðasta vor af ungum aðgerðarsinnum á aldrinum 16-25 ára. Sýning á pyntingaaðferðum Maher Arar Vinabæjamót ungmenna frá öllum Norðurlöndum hófst á Akureyri í gær. Að þessu sinni eru mætt til leiks um 100 ungmenni á aldrinum 16-20 ára sem taka þátt í ýmsum smiðj- um. Mótinu lýkur á laugardagskvöld en klukkan 16 þann dag verður sett upp leiksýningin Lifun í Hofi. Sú sýning er byggð á tónverki hljóm- sveitarinnar Trúbrots. Vinir Norrænu ungmennin á æfingu í Hofi. Norræn ungmenni á vinabæjamóti Birkir Fanndal Mývatnssveit | Á gömlum skræðum er til sú sögn að biskuparnir í Skál- holti og á Hólum hafi gert með sér það samkomulag fyrrum, að eiga mótsstað á hálsinum milli Víðidals og Grímsstaða á Fjöllum þegar þeir væru á vísitasíuferðum í umdæmum sínum. Þar heitir á Biskupshálsi. Á hálsinum eru skil milli Austfirð- ingafjórðungs og Norðlend- ingafjórðungs og jafnframt mörk biskupsdæma Skálholts og Hóla, einnig skilur þar á milli sveitarfélag- anna Norðurþings og Fljótsdalshér- aðs. Um hálsinn hefur um aldir legið þjóðleið þeirra sem erindi áttu milli landsfjórðunga. Vörður eru þar enn allnokkrar og vel sér fyrir fyrstu bíl- slóðinni upp hálsinn vestanfrá. Skammt er þaðan norður til gömlu Grímsstaða en nokkur spölur suður í Möðrudal. Á hálsinum á merkjum Grímsstaða og Víðidals eru tvö all- mikil grjóthrúgöld sem heita Bisk- upavörður. Skammt þar frá er beinn og breiður vegur um hálsinn þjóð- vegur 1. Fögur fjallasýn er af háls- inum. Í vestri Mývatnsöræfi með Jökulsá og Hrossaborg í forgrunni en í suðri Víðidalsfjöll með sínum fögru tindum. Sannarlega ástæða til að „hefja augu sín til fjallanna“. Eftir að byggð lagðist af í Víðidal á Fjöllum um síðustu aldamót keypti Landgræðslan jörðina og hefur lagt í það metnað síðan að styrkja gróður á dalnum og var ekki vanþörf á, en landareignin sem er 24 þús. ha. er um 90% örfoka land. Nú vinnur Landgræðslan að því hörðum hönd- um að stöðva uppblástur og græða jörðina upphaflegum gróðri og hefur það verkefni gengið framar vonum að sögn Stefáns Skaftasonar. Þessu til viðbótar hefur Land- græðslan, nú í samvinnu með Bisk- upsstofu, Vegagerð og Fornleifa- vernd, látið gera myndarlegan áningarstað þar á hálsinum. Yfirum- sjón með verkinu hafði Stefán Skaftason í Straumnesi en fjölmarg- ir hafa komið að verkefninu og lagt því lið með ýmsum hætti. Mæltu sér mót á fjöllum Um síðustu helgi mæltu sér mót þarna á nýja áningarstaðnum, bisk- up Íslands Karl Sigurbjörnsson, biskuparnir í Skálholti og á Hólum, þeir Kristján Valur Ingólfsson og Jón Aðalsteinn Baldvinsson. Einnig voru þar með í för Víðirhólsprestur sr. Örnólfur Jóhannes Ólafsson, Möðrudalsprestur sr. Lára Odds- dóttir og Grenjaðarstaðaprestur sr. Þorgrímur Daníelsson. Þarna voru einnig mættir fulltrúar Vegagerðar, Landgræðslu, Fornleifaverndar og Fljótsdalshéraðs auk annarra, eða samtals um 40 manns. Athöfnin hófst með ávarpi Guð- mundar Stefánssonar, sviðsstjóra Landgræðslu, þá fór Stefán Skafta- son yfir sögu staðarins og framgang verkefnisins, en að lokum talaði biskup Íslands, Karl Sigurbjörns- son. Hann kvað það gleðiefni að menn skyldu hér vilja draga fram og gera söguna sýnilega. „Gefið gaum að gömlum götum,“ sagði hann og fór síðan með 121. Davíðssálm „Ég hef augu mín til fjallanna.“ Að því sögðu afhjúpuðu biskuparnir þrír allir saman upplýsingaskilti stað- arins. Athöfnin lauk með því að við- staddir gengu stuttan stíg að gömlu biskupavörðunum og lituðust þar um áður en haldið var austur í Möðrudal þar sem Möðrudals- kjötsúpan landskunna beið þeirra sem hana vildu. Þessi athöfn mun hafa verið síð- asta embættisverk Karls Sigur- björnssonar sem biskups Íslands. Karl hefur áður sýnt „gömlum göt- um“ ræktarsemi. Þess minnast margir Þingeyingar þegar hann söng messu í Suðurárbotnum í ágúst 1999 til að minnast fornrar biskupa- leiðar um Ódáðahraun sem Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði hafði þá nýlega grafið úr gleymsku. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Á Biskupshálsi Biskupar og prestar við athöfnina. Kristján Valur Ingólfsson, Karl Sigurbjörnsson, séra Lára Odds- dóttir, Jón Aðalsteinn Baldvinsson, séra Þorgrímur Daníelsson og séra Örnólfur J. Ólafsson. Biskupar á Biskupshálsi Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Fersk skata með rjóma- lagaðri sítrónu-dillsósu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.