Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 22

Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 ✝ Karl Guð-mundsson íþróttakennari fæddist í Reykjavík 28. janúar 1924. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk 24. júní 2012. Faðir Karls var Guðmundur Jóns- son, f. 27. nóv- ember 1896, d. 21. febrúar 1966, son- ur Gyðríðar Steinsdóttur frá Einarshöfn á Eyrarbakka og Jóns Sigurðssonar frá Brekkum í Holtahreppi í Rang- árvallasýslu. Móðir Karls var Sigurást G. Níelsdóttir, f. 6. nóv- ember 1896, d. 29. nóvember 1978, dóttir Marsibilar Sigurð- ardóttur úr Staðastaðasókn og Níelsar Ólafssonar úr Ingjalds- hólssókn. Systkini Karls voru, Guðmundur V. Guðmundsson, f. 1926, d. 2007, Steinn Guðmunds- son, f. 1932, d. 2011 og Marsibil Katrín Guðmundsdóttir, f. 1939. Árið 1947 kvæntist Karl eft- irlifandi eiginkonu sinni Sigríði Stefánsdóttur frá Ísafirði, f. 25.3. 1925. Foreldrar hennar Þýskalands og sótti fjölmörg námskeið heima og erlendis. Haustið 1949 hóf hann störf við Gagnfræðaskóla Austurbæjar og kenndi þar í 17 ár, aðallega íþróttir en einnig vélritun og heilsufræði. Árið 1966 hóf hann störf við Kennaraskóla Íslands, síðar Kennaraháskóla Íslands, og var þar lektor í íþróttafræð- um til ársins 1985. Tók þá við starfi fræðslustjóra hjá ÍSÍ og sinnti þar þýðingum og fræðslu- og útgáfumálum til ársins 1996. Á unglingsárum gekk Karl í Knattspyrnufélagið Fram og lék með félaginu fram til ársins 1953. Hann lék með landsliði Ís- lands tíu fyrstu landsleikina og varð síðar þjálfari landsliðsins frá 5́4-́62. Var framkvæmda- stjóri KSÍ 7́9-́80. Kenndi verð- andi knattspyrnuþjálfurum um árabil á vegum Íþrótta¬kenn- ara¬skólans á Laugarvatni og KSÍ. Hann var knattspyrnu- þjálfari í Lilleström og í Sand- efjord, Noregi, á árunum 5́8, 6́0 og 6́2. Karl var sæmdur gull- merkjum ÍSÍ, KSÍ, KRR og Fálkaorðunni fyrir störf sín að íþróttamálum. Einnig heið- ursmerki Stangveiðifélagsins þar sem hann sat í stjórn. Hann starfaði í Frímúrarareglunni í tæp 60 ár. Útför Karls fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 4. júlí 2012, og hefst athöfnin kl. 13. voru Guðrún Helgadóttir og Stefán Bjarnason skipstjóri frá Ísa- firði. Börn Karls og Sigríðar eru fjögur: 1) Stefán, f. 1947, d. 1947. 2) Guðrún, maki hennar er Jens Hilmarsson og eiga þau tvö börn: Karl Kristberg og Sigríði Ýri, maki hennar er W. Róbert Wessman. Börn þeirra eru: Helena Ýr og Jens Hilmar. 3) Ásta Sigrún, maki hennar var Sigþór Her- mannsson, d. 2005. 4) Stefán Örn. Karl stundaði nám við Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni og útskrifaðist þaðan 1944. Fór tveimur árum síðar til Englands í framhalds- nám til þess að afla sér frekari menntunar í knattspyrnuþjálf- un. Hann lauk prófi frá Norges Idrettshøgskole í Osló 5́9 og vet- urinn 1981-́82 stundaði hann nám í þróttafræðum við Luther College, Decorah, Iowa, Bandar. Karl fór í námsferðir til Í dag er kvaddur hinztu kveðju vinur minn og félagi, Karl M. Guðmundsson íþróttakennari. Mínar fyrstu minningar um hann eru frá gamla Melavellinum þar sem við strákarnir fylgdust með afrekum Framliðsins í knatt- spyrnu með hinn knáa bakvörð Kalla Gumm í fullu fjöri. Hann lék lengi í íslenzka landsliðinu og var þjálfari í Noregi um árabil. Kynni okkar hófust þegar ég kom til náms í Gagnfræðaskóla Austurbæjar þar sem Karl var íþróttakennari og endurnýjuðust og urðu að góðri vináttu þegar ég mörgum árum síðar var kjörinn í stjórn Stangaveiðifélags Reykja- víkur, en þar var Karl ritari fé- lagsins. Magnús Ólafsson læknir var þá formaður félagsins og höfðu hann og Karl árum saman stund- að veiðar, ásamt konum sínum, í Sandá í Þistilfirði og var mér og konu minni boðin þátttaka í þess- um hópi. Áttum við saman ógleymanlegar stundir bæði í Sandá og öðrum ám. Eiginkonur okkar náðu vel saman og héldu hópinn árum saman. Það vakti kátínu eftir margra ára samveru þegar Hidda eiginkona Kalla og Lillý heitin eiginkona mín, fundu út að þær voru þremenningar að skyldleika. Ekki minnkaði samveran þeg- ar Hidda og Kalli keyptu sum- arhús við Meðalfellsvatn í Kjós og gerðust nágrannar okkar þar. Karl var einn af elstu félögum í Frímúrarastúkunni Mími og hann og Magnús Ólafsson voru meðmælendur mínir við inn- göngu mína í Frímúrararegluna og fyrir það er ég þakklátur. Seinustu árin voru heilsufars- lega erfið hjá Karli. Hann þjáðist af sykursýki sem hafði alvarlegar afleiðingar, en hann var vel studdur af sínu fólki. Ég vil þakka Karli fyrir góð kynni og alla samveru og votta Hiddu og fjölskyldunni allri inni- lega samúð frá mér og fjölskyldu minni. Ólafur G. Karlsson. Góður vinskapur hófst árið 1953 við Karl, Hiddu og börn þeirra er foreldrar mínir, Magn- ús Ólafsson læknir og Annella Stefánsdóttir, bróðir minn Ólafur F. Magnússon og ég fluttum að Laugavegi 141 í sama hús og þau bjuggu í. Síðan eftir framhaldsnám föð- ur míns í Washington DC og við fluttum aftur heim til Íslands endurnýjuðust kynnin við Karl og Hiddu eilífum vinarböndum. Karl var landsþekktur íþrótta- maður. Þegar hann stundaði nám við Íþróttaháskólann í Osló spil- aði hann samhliða því fótbolta með norskum liðum. Þegar heim var komið var Fram liðið hans en þó með þeim undantekningum að þar sem skortur var á góðum þjálfurum hérlendis í þá daga tók hann bæði að sér þjálfun hjá Val og KR auk þess að þjálfa ís- lenska landsliðið í knattspyrnu um skeið. Þá spilaði Karl lands- leiki á árunum 1946 til 1954 og var fyrirliði þess frá árinu 1951. Karl var um langt árabil íþróttakennari og kenndi hann mér er ég var nemandi í Kenn- araskóla Íslands. Þar var hann í essinu sínu og gerði hann stirða nemendur fima til lima. Sjálfum leið mér eins og sprækum fjalla- læk eftir þjálfun hans. Faðir minn og Karl áttu sameiginlegt áhugamál sem var stangaveiði. Minnist ég sem tán- ingur skemmtilegra veiðiferða í Sandá þar sem Guðjón Einars- son og Hjördís heitin voru í veiði- túrum ásamt Karli heitnum, Hiddu og foreldrum mínum. Haldnar voru skemmtilegar kvöldvökur þar sem Karl og Guð- jón fóru í hin ýmsu gervi og grín- uðu af einstakri list fram á rauða nótt. Karl gerðist frímúrarabróðir árið 1954 og var í stúkunni Mími. Hann var meðmælandi föður míns sem gekk í stúkuna árið 1976 og var einn af mörgum er fögnuðu mér við upptöku mína í Mími árið 1985. Karl starfaði um langt árabil sem ritari stúkunnar enda skrift hans algjör skraut- skrift. Segja má, er hann var kos- inn í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, að þá var hann að sjálfsögðu kosinn í embætti rit- ara stjórnar sem hann sinnti af alúð í 16 ár. Hann hlaut heiðurs- merki SVFR fyrir störf sín og hefur stjórn SVFR beðið mig fyrir þakklætis- og samúðar- kveðjur til Hiddu og fjölskyldu. Karl var sæmdur hinni ís- lensku fálkaorðu á síðasta ári fyrir störf sín fyrir knattspyrnu- hreyfinguna og fyrir kennslu og uppbyggingarstörf íþróttaiðkun- ar. Karl var maður fríður, spengi- legur og nærgætinn gagnvart öðru fólki. Hann var og hörku tenórsöngvari. Þegar ég stýrði kvöldskemmtun hjá Landssam- tökum stangaveiðifélaga í Mun- aðarnesi fyrir margt löngu kall- aði ég Karl upp á svið ásamt fleirum og er mér minnisstætt þegar hann og Þórólfur Hall- dórsson, sýslumaður og stór- söngvari, tóku dúett er ómaði um allan Norðurárdal. Viti menn, kýrnar á Glitstöðum áttu met- mjaltir daginn eftir. Síðustu árin barðist Karl við hinn illvíga sjúkdóm sykursýki eins og sönn hetja og hjúkraði Hidda honum af ást og alúð til kveðjustundar. Nú þegar ég kveð Karl sendi ég, móðir mín og Ólafur bróðir hugheilar samúðarkveðjur til Hiddu og fjölskyldu. Kæri bróðir, Karl, megi hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar lýsa þér leiðina til austurs- ins eilífa. Stefán Á. Magnússon. Þegar Kalli hefur nú kvatt okkur eftir erfiða baráttu er mér ljúft að minnast hans. Við áttum margar góðar stundir saman á langri vegferð þótt fótboltinn væri sjaldnast efst á blaði í okkar spjalli. Kalli birtist okkur vestur á Ísafirði fyrir 65 árum, glæsi- legur ungur maður, bar með sér frískan andblæ að sunnan og gekk í hjónaband með Sigríði, sem í okkar hópi hefur jafnan verið kölluð Hidda, dóttur Guð- rúnar og Stefáns Bjarnasonar. Fjölskyldur okkar höfðu búið undir sama þaki við Tangagötuna um árabil og tengst sterkum vin- áttuböndum, jafnvel svo, að Guð- rún og Stefán urðu mér nánast amma og afi þótt engin væru ætt- artengsl. Hidda hafði á ferming- araldri gætt mín um skeið eftir að ég fór að ganga og tengslin hafa haldist æ síðan. Þannig varð ég heimilisvinur þeirra Hiddu og Kalla frá upphafi. Vinátta, sem með árunum varð mér mikils virði. Ég minnist þess að 12 ára kom ég hingað suður í fyrsta skipti og dvaldi hjá ungu hjónunum í tvær vikur. Kalli var einstaklega nat- inn við að leiðbeina mér og sýna mér það áhugaverðasta í borg- inni, sem þá var reyndar smábær miðað við núverandi umfang, en ný og spennandi veröld fyrir strákling vestan úr Djúpi. Þótt Kalli hefði mörgu að sinna hafði hann oft smugu til þess að skjót- ast með mig í ýmsar áttir – leið- beina mér að Landsbókasafninu og ýmsum áhugaverðum stofnun- um og stöðum, fara m.a. með mig í gömlu Laugarnar og í búnings- álmuna á Melavellinum þar sem ég sá nokkrar helstu íþrótta- hetjur þeirra tíma. Og í þessari ferð sá ég Kalla líka fyrst í knatt- spyrnuleik, einmitt á Melunum. Þótt öll höfum við verið önnum kafin á helsta athafnaskeiði hvers og eins og tíminn hafi stundum nánast hlaupið frá manni, gáfum við okkur jafnan tóm til að setjast niður af og til og halda góðu sam- bandi. Hittumst jafnvel í útlönd- um þegar aðstæður leyfðu, eitt sinn í París, líka á Spáni. Fórum saman til Flórida og áttum þar notalegar stundir á sólarströnd. Útivera í veðurblíðu og léttum klæðum var sannarlega í anda okkar góðu vina. Með aldrinum fór að hægjast um hjá okkur og þá fjölgaði smám saman tækifærum til þess að setjast niður og rabba. Alltaf var ánægjulegt að koma heim til þeirra, í sumarbústaðinn eða nið- ur á Eyrarbakka. Og af og til litu þau inn til okkar. Við Kalli náðum alltaf vel saman þótt helstu áhugamál okkar væru að jafnaði ekki þau sömu, en við vorum nán- ir kunningjar í heilan mannsald- ur og skynjuðum yfirleitt hvor annan án margra orða. Hlýja nærveru og viðmóts varð grunn- ur samskiptanna. Hvarf hans set- ur mig hljóðan og fyllir mig þakk- læti fyrir vináttuna, sem þroskaðist með okkur vel yfir hálfa öld. Við þessi þáttaskil er hugur okkar konu minnar hjá Hiddu og börnum þeirra Kalla, fullur sam- úðar og þakklætis fyrir óteljandi ánægjustundir og einstaka tryggð. Hidda byrjaði að sinna mér þegar ég var þriggja ára og tengsl okkar hafa síðan haldist óslitin, ég kominn vel yfir sjötugt. Einstakt, náið vináttusamband er það, sem endist óskyldum jafn lengi. Haraldur J. Hamar. Látinn er öðlingurinn Karl Guðmundsson, Kalli Gúmm, eins og hann var jafnan nefndur. Mað- ur sem ég hef þekkt frá því ég var unglingur og dáðist að frá fyrsta degi. Ég man fyrst eftir Kalla á Melavellinum gamla, í hægri bak- varðarstöðunni með sinn fallega limaburð og knattleikni, fimur og flottur í Frambúningnum. Aldrei óðagot, aldrei ruddaskapur, drengileg sjentilmennska. Kar- akterinn endurspeglaðist í lát- bragði og ljúfmennsku í þeirri íþrótt sem hann unni. Karl fór ut- an, kannske fyrstur manna, til að læra knattspyrnuþjálfun og lét íslenska knattspyrnu njóta krafta sinna og þekkingar í ára- tugi, eftir að hann lagði sjálfur skóna á hilluna. Ferill hans sem knattspyrnu- þjálfari var langur og glæsilegur. Starfaði um tíma í Noregi og gerði Lilleström að Noregsmeist- urum, þjálfaði síðan fjölmörg kapplið hér heima, meðal annars KR, meðan ég var þar keppandi. Hann var lengi og oft þjálfari ís- lenska landsliðsins á þessum ár- um. Með Kalla og Björgvin föður mínum tókst mikil vinátta. Landsliðsþjálfarinn hafði þá að- setur og vinnukompu á skrifstofu pabba og þeir vinirnir voru báðir laxveiðimenn og fékk ég oftsinnis að fljóta með í veiðiferð í Sogið. Þar áttum við ánægjulegar stundir í sumarblíðu. Karl var seinna starfsmaður hjá ÍSÍ, með- an ég var þar innanbúðar og þá sem endranær var heiðarleikinn og háttvísin í fyrirrúmi. Karl Guðmundsson var vel meðalmaður á hæð, snyrtimenni og vel til fara. Fríður maður sýn- um, brosmildur og kankvís. Kom til dyranna eins og hann var klæddur, sagði meiningu sína en án áreitis eða yfirgangs. Hann var hvers manns hugljúfi Megi minning hans lifa. Ellert B. Schram. Fallinn er frá Karl Guðmunds- son, heiðursfélagi Íþrótta- og Ól- ympíusambands Íslands. Heið- ursfélagi ÍSÍ er æðsta viðurkenning Íþrótta- og Ólymp- íusambands Íslands og hlotnast einungis þeim sem hafa helgað líf sitt íþróttum og unnið ómetan- legt starf í þágu íþróttahreyfing- arinnar. Karl var sannarlega vel að heiðursviðurkenningunni kominn sem og öðrum viðurkenn- ingum sem hann hlaut á sinni lífs- göngu vegna starfa sinna í þágu íþrótta- og æskulýðsmála. Karl átti langan og merkilegan feril að baki í íþróttahreyfing- unni, fyrst og fremst sem knatt- spyrnumaður og þjálfari en hann þjálfaði meðal annars landslið Ís- lands í knattspyrnu. Hann starf- aði um árabil sem fræðslustjóri ÍSÍ og eftir hann liggur fjöldi bóka og leiðbeinandi rita er lúta að íþróttaþjálfun. Hann hafði ein- lægan áhuga á íþróttum og starfi íþróttahreyfingarinnar og var öt- ull að mæta til þeirra viðburða sem ÍSÍ boðaði hann til. Hann kom einnig reglulega í heimsókn í höfuðstöðvar ÍSÍ, á meðan heils- an leyfði, til að hitta starfsfólkið og forvitnast um helstu verkefni í starfi sambandsins. Oft hafði hann meðferðis eitthvað áhuga- vert frá fyrri tíð enda annt um að viðhalda sögunni og fræða okkur hin um það sem áður var. Starfsfólk ÍSÍ hafði það stund- um á orði að Karl væri eins kvik- myndastjarna, svo fínn væri hann í fallega frakkanum sínum, með silfraða hrokkna hárið og dökk augun. Háttvís í fasi og tali. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kveður þennan heiðurs- mann með þakklæti fyrir það mikla starf sem hann lagði af mörkum í þágu íþrótta og íþróttahreyfingarinnar, trygg- lyndi hans og vináttu. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ sendir Sigríði konu hans og aðstandend- um öllum hugheilar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Karls Guðmundssonar. Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ. Karl M. Guðmundsson  Fleiri minningargreinar um Karl M. Guðmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær sonur, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR A. ÁSTRÁÐSSON, Njarðargötu 27, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 25. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Kristín Á. Þorvaldsdóttir, Halldór Alberts Þorvaldsson, Sigrún Björg Ingvadóttir, Ástráður Freyr Þorvaldsson, Jón Ingi Þorvaldsson, Unnur Erlendsdóttir, Jón Yngvi Ástráðsson, Sjöfn Jónsdóttir, og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BJARNI JÓNSSON vélstjóri, Árskógum 8, Reykjavík, andaðist laugardaginn 30. júní á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 10. júlí kl. 13.00. Fríða Helgadóttir, Elín Bjarnadóttir, Helgi Bjarnason, Fríða Dís Bjarnadóttir, Leifur Gústafsson, Fríða Stefánsdóttir, Ragnar Bjarni Stefánsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÓLÖF ÞORBERGSDÓTTIR, síðast til heimilis að Lækjasmára 2, Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi sunnudaginn 1. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þorbergur Karlsson, Jónína A. Sanders, Valdimar Örn Karlsson, Guðrún V. Guðmundsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Ebba Pálsdóttir, Sigríður Ingibjörg Karlsdóttir, Ólafur Helgason, Gunnar Karlsson, Ólöf Nordal, Arnþrúður Karlsdóttir, Ólafur Kolbeinsson, Eva Björk Karlsdóttir, Alfreð Örn Lilliendahl, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, JÓN ELÍAS LUNDBERG, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað föstudaginn 29. júní. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 6. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Margrét Sigurjónsdóttir, Jóhanna Gísladóttir, Rúnar Laxdal Gunnarsson, Anton Lundberg, Þórey Þorkelsdóttir, Ingvar Lundberg, Santia Sigurjónsdóttir, Ragnar Lundberg, Marina Suturina, barnabörn og langafabörn, Kristín Lundberg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.