Morgunblaðið - 04.07.2012, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
AF HVERJU EKKI AÐ FÁ
MEIRA FYRIR MINNA?
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Pípulagnahreinsir
Perfect Jet
Síuhreinsihaus Stuðningssæti
U.V. Áburður
fyrir lok
Glasabakki
Yfirborðshreinsir
fyir skel
FituhreinsirFroðueyðir
Síuhreinsir
3499,-
1249,-
2899,-
2899,-2999,-
3299,-
3499,-
4499,-
1999,-
*Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar
Úrval fylgihluta fyrir heita potta
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Finndu út hvar þú best getur komið
skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að
hlustað sé á þig. Vertu með fólki sem þú get-
ur spjallað við um alla heima og geima.
20. apríl - 20. maí
Naut Öfgar munu ekki hjálpa þér núna.
Hugsaðu um tíma þinn sem mikilvægan, og
sjáðu hvernig það breytir því hvernig þú nýtir
hann. Engin spenna er í loftinu og því skaltu
taka lífinu með ró.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú hafir margt á þinni könnu er
engin ástæða til þess að láta aðvaranir ann-
arra sem vind um eyru þjóta. Gleymdu því
samt ekki að heima bíða þínir nánustu og
þurfa líka á þér að halda.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Kurteisin kostar ekki neitt. Mundu
bara að nota velgengnina sem hvata til að
bæta þig en ekki sem afsökun til að slá slöku
við.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er frábær dagur fyrir ástar-
ævintýri og rómantík. Snubbótt nei vekur við-
brögð sem erfitt getur verið að yfirstíga.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Haltu fast utan um pyngjuna því ein-
hver nákominn þér er farinn að gerast helst
til þurftarfrekur. Láttu aðra ekki tefja þig að
tilefnislausu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Aðstæður í einkalífinu eru þannig, að ef
þú tekst almennilega á við þær, hefur það
margfeldisáhrif. Haltu djarfur á vit nýrra tíma
og þeirra möguleika sem það gefur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er margt sem liggur fyrir í
dag og þú mátt hafa þig allan við ef þú ætlar
að komast yfir öll verkefni dagsins. Ef þú virk-
ar ekki sannfærandi getur þú varla ætlast til
þess að aðrir trúi á málstað þinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að sýna mikla lipurð til
þess að komast í gegnum þá erfiðleika sem
fylgja nýju verkefni. Fólk virðist hreinlega
vera ósammála um alla hluti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er tímabært að láta reyna á
sköpunargáfuna. Sjálfsöryggi og þolinmæði
skiptir máli þegar þú leysir úr vandamálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér standa ýmsir möguleikar opn-
ir og vissulega er vandi að velja en undan
honum getur þú ekki vikist. Reyndu að hitta
kunningja í hádeginu eða í kvöld.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinir fara yfir strikið í einlægri viðleitni
sinni til þess að hjálpa þér. Þú ert margbrot-
inn og fjölbreytilegur. Vertu lítillátur og ljúfur.
Pétur Stefánsson setti mynd afsvölunum heima hjá sér á netið
og með fylgdi vísa:
Þar anga blómin yndisleg
og að sér flugur draga.
Úti á svölum uni ég
allsber flesta daga.
Útsýnið er ekkert plat,
og eflaust með því besta.
Þar er gott að grilla mat;
grísi, lömb og hesta.
Björn Ingólfsson orti eftir að hafa
virt útsýnið fyrir sér:
Til að auka innri spekt
út á svalir karlinn prílar
hvar útsýnið er unaðslegt;
allra handa þök og bílar.
En Pétur var ekki af baki dottinn
og skrifaði: „Stórbrotið útsýnið
komst því miður ekki fyrir á mynd-
inni, en því má lýsa svona í fáum
orðum:
Í austri lít ég fell og fjöll.
Framundan er Heiðmörk öll.
Í vestri er útsýn vart til skaða,
því vel má sjá til Bessastaða.
Og ef ég reyni að rýna vel
– þó rigni smá og geri él,
yfir land og úfinn sæ,
er ágæt sýn til Paragvæ.“
Loks Guðmundur Ingi Jón-
atansson:
Eru svalir alveg grand,
enda flíkar slíku.
Sér hann yfir sjó og land
til Suður-Ameríku.
Því Pétur er með afbragðssjón
upp þá hárin rísa
apaspili við Amasón
ætlar hann næst að lýsa.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af útsýni af svölunum
hans Péturs
Innblástur Mynd af svölunum hjá
Pétri kveikti andagift hagyrðinga.
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lf
ur
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
ÞARNA
ER
KÖTTUR-
INN
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR VIÐ
ERUM 5 Á
MÓTI EINUM
HVERNIG
HJÁLPAR
ÞAÐ
OKKUR?
ÞEGIÐU
ÞVÍ FLEIRI,
ÞVÍ BETRA
EF VIÐ LIFUM
NÓGU LENGI TIL AÐ HAFA
ÁHYGGJUR AF ÞVÍ, ÞÁ ER
SPÁÐ RIGNINGU UM
HELGINA
HVAÐ
MYNDIR ÞÚ GERA
EF ÉG TÆKI
TEPPIÐ AF ÞÉR OG
BRENNDI ÞAÐ?
ÞAÐ MYNDI LÍÐA YFIR MIG...
ÞAÐ YRÐI AÐ KALLA Á
SJÚKRABÍL OG SETJA MIG
Í SÚREFNISTJALD
HVERNIG DETTUR
MÉR SVONA LAGAÐ
Í HUG?
ERT ÞÚ
TALANDI
LEIKFANG?
JÁ, ÉG
HEITI KEN
ÉG ER
KÆRASTINN
HENNAR BARBIE EN
ÉG ER SAMT FREKAR
LÉLEG EFTIRMYND
AF KARLMANNI?
ÁTTU VIÐ
AÐ ÞÚ SÉRT
ÓVENJU LÍTILL
MIÐAÐ VIÐ
ALVÖRU
KARLMANN?
ÆTLI ÞAÐ MEGI
EKKI ORÐA ÞAÐ
ÞANNIG...
Tortryggni er dýr. Víkverji las ný-lega bókina Liars and Outliers eft-
ir Bruce Schneier. Þar er vitnað í
James Madison: „Ef menn væru engl-
ar væru ríkisstjórnir óþarfi.“ Höfund-
urinn bætir við að væru menn englar
væri öll öryggisgæsla óþarfi. „Lásar á
hurðum, vír með rakvélablöðum, háar
girðingar og þjófavarnarkerfi væru
óþarfi. Englar fara aldrei þangað, sem
þeir eiga ekki að fara. Lögregla væri
óþarfi. Herir? Ríki engla gætu leyst
friðsamlega úr ágreiningi og hern-
aðarútgjöld væru óþarfi.“
x x x
Schneier bendir á að heilu iðngrein-arnar myndu þurrkast út. Enginn
myndi þurfa á öryggisvörðum að
halda, ekki þyrfti að framleiða örygg-
ismyndavélar, lása, þjófavarnarkerfi í
hús og bíla eða hafa áhyggjur af ör-
yggi tölvukerfa, fyrirtækja og flug-
valla. Þar að auki myndi endurskoð-
unargeirinn leggjast af og ýmislegt
fleira.
x x x
Það er dýrt að vera ekki engill,“skrifar Schneier. „Mikið af kostn-
aðinum greiðist ekki beint. Megnið af
honum er falinn í verði þess, sem við
kaupum. Matur kostar meira út af
búðastuldi. flugmiðar kosta meira
vegna þess að sumir reyna að
sprengja flugvélar í loft upp. Bankar
greiða lægri vexti út af svikum. Allt
sem við gerum eða kaupum kostar
meira vegna þess að með einhverjum
hætti þarf að tryggja öryggi þegar því
er komið til skila.“
x x x
Schneier bendir á að kostnaðurinnliggi ekki bara í að allt verði dýr-
ara. Frelsi okkar og sjálfstæði skerð-
ist, sem og vald og friðhelgi einkalífs-
ins. „Öryggi er ekki bara skattur á
hina heiðarlegu, það er mjög dýr
skattur á hina heiðarlegu,“ skrifar
hann. „Ímyndið ykkur sparnaðinn ef
allir menn væru englar.“
x x x
Víkverji ætlar ekki að verja púkann ímanninum og allra síst mæla bót
óbótamönnum og föntum sögunnar,
en vill þó bæta við að lífið yrði ólíkt
bragðdaufara ef allir væru englar.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)