Morgunblaðið - 16.07.2012, Side 2

Morgunblaðið - 16.07.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Billund *Flugsæti aðra leið með sköttum. Netverð á mann. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is 13.900 kr.*flugfr á Sameiginleg guðsþjónusta Árbæjarkirkju, Graf- arholtskirkju og Grafarvogskirkju var haldin undir berum himni í gærmorgun. Prestur var séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Graf- arvogskirkju, en fulltrúar Árbæjar og Grafar- holts fluttu ritningarorð. Messan var haldin á Nónholti við Grafarvog. Svo stillt var veðrið að varla bærðist logi á kertunum sem sjá má á myndinni og loguðu þau alla messuna. Morgunblaðið/Ómar Sameinuðust í útimessu á Nónholti í fallegu veðri BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það stöðumat forystumanna í Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði að óvíst sé hvenær hægt sé að leiða ESB-umsóknina til lykta er grasrótinni í flokknum ekki að skapi, ásamt því að ganga þvert á kröfur margra áhrifamanna í flokknum. Má þar nefna að Ögmundur Jón- asson innanríkisráðherra krafðist þess á flokksráðsfundi VG í febrúar að meginlínur viðræðnanna við ESB yrðu skýrar fyrir kosningarnar 2013. Síðari hluta maímánaðar tók Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir, þingmað- ur VG, dýpra í árinni er hún bókaði innan utanríkismálanefndar að efna þyrfti til þjóðaratkvæðagreiðslu fyr- ir árslok um hvort þjóðin vildi í ESB. Umrædd greining forystumanna VG kom fram í bréfi til flokksmanna fyrr í mánuðinum og varð það tilefni þess að Jón Bjarnason, þingmaður VG, fullyrti að forystan væri að fjar- lægjast grasrótina í Evrópumálum. Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks VG, vísar greiningu Jóns á bug. „Jón Bjarnason hefur ekki á réttu á standa. Það er mjög einfalt. Jón er sem oft áður á rangri braut á þessum vettvangi,“ segir Björn. Svikin loforð forystunnar Gísli Árnason, formaður VG í Skagafirði, tekur hins vegar undir með Jóni. „Það er ekkert lát á aðlög- un Íslands að ESB. Málið snýst ekki um að kíkja í pakkann heldur er ver- ið að laga þjóðfélagið að ESB, þótt enginn vilji viðurkenna það. Hljóðið í Vinstri grænum í Skagafirði er veru- lega þungt. Ég held að flokkurinn fái slæma útreið í næstu kosningum og þá ekki aðeins úti á landi. Því var treyst sem forystan sagði um ESB. Þar stendur ekki steinn yfir steini.“ Kominn tími til að ljúka málinu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, er ósammála því að óvissa sé um framvindu viðræðna. „Ég hef sagt það í langan tíma að allar þær upplýsingar liggi fyrir sem fólk þarf til þess að taka upplýsta ákvörðun í málinu. Það er búið að eyða gríðarlegum fjármunum, orku, tíma og vinnu á einhverju mesta áfallatímabili á síðari tímum í sögu Íslands í þessa vegferð. Það er löngu tímabært að fólk fái upplýsingar um eðli aðildar þannig að við getum sett þetta mál til hliðar og farið að ein- beita okkur að því sem máli skiptir. Það er alvarlegt mál að hafa um- sóknina hangandi yfir samfélaginu í fleiri misseri til viðbótar, enda tekur hún tíma, peninga og starfskrafta frá öðrum brýnum úrlausnarefnum. Ef fylgst er með erlendum fjöl- miðlum blasir við í hvaða nöturlegu stöðu Evrópusambandið er og evran. Það er út í hött að ímynda sér að að- ild að ESB snúist um hinn eða þenn- an samningskafla. Málið snýst um miklu stærri úrlausnarefni á vett- vangi ESB og evrusamstarfsins.“ Ögmundur gaf ekki kost á viðtali né heldur Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og einn bréfritara. Þá náðist ekki í Árna Þór Sigurðsson. Titringur hjá VG úti á landi  Ummæli forystunnar um óvissu um lok ESB-viðræðna falla í grýtta jörð  Þingflokksformaður VG segir Jón Bjarnason „á rangri braut“ í málinu  Vinstri græn í Skagafirði óttast slæma útreið í kosningum Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Makríll er að hverfa úr íslenskri efna- hagslögsögu og því ber að draga til baka tilboð til Íslendinga um 7,5% hlutdeild í veiðikvóta á makríl. Þetta kemur fram í orðsendingu sem sendi- nefnd Íra hefur sent til sjávarútvegs- ráðherra Evrópusambandsins sem koma saman til fundar í Brussel í dag. Frá þessu er sagt á norsku vefsíðunni Fiskebåt. Þar segir að niðurstöður alþjóð- legrar rannsóknar sem gerð var frá apríl og fram í júní sýni að minna sé af makríl í íslensku lögsögunni nú en í fyrra. Því vilji írsk stjórnvöld að til- boðið verði dregið til baka. Sigurgeir Þorgeirsson, samninga- maður sjávarútvegsráðuneytisins í makríldeilunni, segist ekkert hafa heyrt af þessari orðsendingu Íra, og tilboð um 7,5% hlutdeild hafi ekki verið sett formlega fram. Farnir í leiðangur „Það er algerlega ótímabært að draga slíkar ályktanir. Ég veit ekki á hverju þeir byggja þetta. Það er ekki hægt að segja eitt eða neitt fyrr en niðurstöður leiðangursins liggja fyr- ir,“ segir Jóhann Sigurjónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar, um göngu makrílsins í lögsögunni. Starfsmenn stofnunarinnar hafi í vikunni haldið í leiðangur til að rann- saka gönguna og engin ástæða sé til þess að vera með spár um hvernig þær rannsóknir komi út áður en nið- urstöðurnar liggi fyrir. Það gæti ver- ið komið á hreint í ágústmánuði. Jóhann segir að hugsanlegt sé að göngumynstur makrílsins sé eitt- hvað öðruvísi í ár en áður. Hann virð- ist hafa gengið sunnar nú og menn hafi orðið varir við hann langt vestan við landið. Ekki tímabært að fullyrða um makrílgöngu við Ísland  Írar eru sagðir vilja draga tilboð um kvótahlutdeild til baka Makríll Hlýskeið í hafi er talið hafa áhrif á breytta göngu makrílsins. Skrár vegna álagningar opinberra gjalda á einstaklinga fyrir árið 2012 verða lagðar fram 25. júlí næstkom- andi, samkvæmt upplýsingum Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskatt- stjóra. Hann reiknar með að framtelj- endur muni geta skoðað stöðuna sína tveim dögum fyrr á skattur.is, væntanlega frá og með 23. júlí. Skrárnar verða öllum aðgengileg- ar í 14 daga frá og með 25. júlí. Kærufrestur vegna álagningarinnar rennur út 24. ágúst. Endurgreiðslur, útborganir vaxtabóta og barnabóta, fara fram miðvikudaginn 1. ágúst. sisi@mbl.is Skattskrár birtar 23. júlí Andrés Rúnar Ingason, formað- ur VG í Árborg, segir meirihluta félaga sinna í VG vilja ljúka aðildarviðræðunum og kjósa um málið eins og það stendur. „Ég finn vel fyrir því að fólk vill niðurstöðu í málið áður en gengið verður til kosninga.“ Friðrik Aspelund, ritari VG í Borgarbyggð, telur mikinn meirihluta flokksmanna VG í Borgarbyggð vilja fara leið Ög- mundar og kjósa um málið sam- hliða næstu þingkosningum. Ljúki málinu VG OG UMSÓKNIN Karlmaður á sjötugsaldri lést þegar bifreið sem hann ók hafnaði utan vegar á Vatnsskarði eftir hádegi á laugardag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi var mað- urinn einn í bifreiðinni þegar slysið átti sér stað. Tildrög slyssins eru enn ókunn en að sögn lögreglu var maðurinn úrskurðaður látinn á slys- stað. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Banaslys á Vatnsskarði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.