Morgunblaðið - 16.07.2012, Blaðsíða 23
stjórn Orators, félags laganema
1950-51, í stjórn FUF 1954-55 og í
stjórn SUF 1955-57, í stjórn Stúd-
entafélags Reykjavíkur 1956-57,
var formaður Byggingasamvinnu-
félags starfsmanna Stjórnarráðsins
1958-61, sat í yfirkjörstjórn
Reykjavíkur 1959-68, í stjórn
Hestamannafélagsins Fáks 1962-73
og var formaður félagsins 1967-73,
sat í stjórn Skógræktarfélags Ís-
lands og Landgræðslusjóðs 1987-
96, var varaformaður Skógrækt-
arfélagsins 1990-96, var formaður
stjórnar Rannsóknarstöðvar Skóg-
ræktar ríkisins að Mógilsá 1990-99,
formaður Búfræðslunefndar 1979-
92, formaður þriggja nefnda um
gerð landgræðsluáætlana 1976-91,
sat í yfirmatsnefnd til ákvarðanna
um skiptingar af arði af veiðiám
1982-2002 og hefur setið í og stýrt
fjölmörgum nefndum á vegum land-
búnaðarráðuneytisins.
Sveinbjörn er heiðursfélagi Skóg-
ræktarfélags Íslands, Hestamanna-
félagsins Fáks og Landssambands
hestamannafélaga.
Dagleg hreyfing afar mikilvæg
Sveinbjörn segist ekki getað
kvartað undan heilsunni. Hún sé
bara nokkuð góð miðað við aldur:
„Ég hreyfi mig töluvert á hverjum
degi, syndi góðan sprett annan
hvern dag, en hinn daginn geng ég
í svona hálftíma til klukkutíma. Ég
er nú samt ekki eins duglegur og
hann Ragnar Kvaran, vinur minn,
sem var í blaðinu hjá ykkur um
daginn. Hann syndir minnst
kílómeter á dag og fer létt með að
hlaupa á Esjuna.
Ég les nú ekkert sérlega mikið
orðið, en var þó að ljúka við ævi-
sögu Napóleons eftir Nyquist. Þá
les ég Spiegel að jafnaði. Það hefur
ekki orðið til þess að auka áhuga
minn á aðild að Evrópusamband-
inu.“
Fjölskylda
Sveinbjörn kvæntist 16.12. 1950
Pálínu Hermannsdóttur, f. 12.9.
1929, húsfreyju. Foreldrar hennar
voru Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra og k.h., Vigdís Stein-
grímsdóttir húsmóðir.
Börn Sveinbjörns og Pálínu eru
Hermann, f. 19.5. 1951, Ph.D. í auð-
lindahagfræði og starfar í umhverf-
isráðuneytinu, búsettur í Reykjavík
og eru börn hans Benedikt Her-
mann, Kristín Anna og Vigdís
María; Vigdís Magnea, f. 11.1. 1955,
B.Ed., kennari og bóndi á Egils-
stöðum á Völlum en maður hennar
er Gunnar Jónsson, HND frá Uni-
versity of Edinburg, bóndi á Egils-
stöðum og eru börn þeirra Kári
Sveinbjörn, Baldur Gauti og Her-
dís Magna; Dagfinnur Örn, f.
23.5.1959, d. 20.11. 1959; Lóa Krist-
ín, f. 1.11. 1961, cand. oecon. frá HÍ
og húsfreyja en maður hennar er
Karl Konráð Andersen, sérfræð-
ingur í hjartalækningum við LHS
og prófessor við HÍ og eru börn
þeirra Thelma Margrét, Daði Örn,
Viktor Orri og Kristófer Atli; Dag-
finnur, f. 22.3. 1973, M.Phil. frá Tri-
nity í Cambridge og stjórnmála-
hagfræðingur í Reykjavík.
Systir Sveinbjörns: Anna Þur-
íður, f. 1936, d. 1983, var búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Sveinbjörns voru Dag-
finnur Sveinbjörnsson, f. 26.6. 1897,
d. 14.1. 1974, loftskeytamaður, raf-
virkjameistari og yfirmaður tækni-
deildar Ríkisútvarpsins, og
Magnea Ósk Halldórsdóttir, f.
11.5. 1897, d. 16.10. 1982, húsfreyja
í Reykjavík.
Úr frændgarði Sveinbjörns Dagfinnssonar
Jón Árnason
f. hreppstj. í Þorlákshöfn
Jórunn Sigurðardóttir
frá Völlum í Hvolshreppi
Magnús Árnason
hreppstj. í Vatndal í Fljótshlíð
Anna Valgerður Pálsdóttir
húsfr. í Vatnsdal
Anna Gísladóttir
húsfr. á Bakka
Margrét Eiríksdóttir
húsfr.
Guðmundur Sveinbjörnsson
b. á Grímsstöðum
Sveinbjörn
Dagfinnsson
Dagfinnur Sveinbjörnsson
yfirm. tæknid. RÚV
Magnea Ósk Halldórsdóttir
húsfr. í Rvík.
Þuríður Magnúsdóttir
húsfr. í Árbæ
Halldór Jónsson
b. á Árbæ í Ölfusi
Sveinbjörn Guðmundsson
b. í Dísukoti í Þykkvabæ
Anna Ólafsdóttir
húsfr. í Dísukoti
Ólafur Árnason
b. á Bakka í Þykkvabæ
Páll Pálsson
alþm. í Dæli í Víðidal
Vigdís Pálsdóttir
húsfr. í Stafholti
Sverris Gíslason
form. Stéttar-
samb. bænda
Ólafur Sverriss.
kaupfélagsstj.
í Borganesi
Guðmundur
Sverrisson
b. í Hvammi
Ásgeir
Sverrisson
tónlistarm.
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfr. í RvíkKristinn Vilhjálmss.
framkvæmdastj. í Rvík.
Ingvar Vilhjálmsson
útg.m. í Rvík
Jón.
fyrrv. stjór-
narform. SH
Guðbjörg Árnadóttir
húsfr. á Langekru
JónGuðmundss.
b. áTorfastöðum
Guðjón Jónss.
sláturhússtj.
á Hvolsvelli
Rúnar Guðjónss.
fyrrv. sýslum. í
Rvík.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 2012
Sigurður Thoroddsen fæddist áLeirá í Borgarfirði 16.7. 1863en foreldrar hans voru Jón
Thoroddsen, sýslumaður, sá er skrif-
aði skáldsögurnar Pilt og stúlku og
Mann og konu, og k.h., Kristín Ólína
Þorvaldsdóttir frá Hrappsey Sívert-
sen.
Jón sýslumaður lést er Sigurður
var á fimmta ári en Kristín var
ákveðin og úrræðagóð og kom ung-
um sonum sínum til mennta, sem all-
ir urðu þjóðþekktir menn, hver á
sínu sviði. Bræður Sigurðar voru
Skúli Thoroddsen, alþm. og einn öt-
ulasti baráttumaður gegn Uppkast-
inu, Þórður Thoroddsen, læknir og
alþm., faðir Emils tónskálds, og Þor-
valds, forstjóra sem stofnaði Tónlist-
arfélagið og loks Þorvaldur nátt-
úrufræðingur sem samdi frægar
Íslandslýstingar og fræðirit um ís-
lenska náttúru.
Sigurður lauk stúdentsprófi 1882
og útskrifaðist með próf í bygging-
arverkfræði 1891. Hann varð Lands-
verkfræðingur á Íslandi 1893 og
gegndi því embætti til 1905. Á þeim
tíma mældi hann fyrir Hellisheiðar-,
Kamba- og Flóavegi og hafði umsjón
með lagningu vegarins, hafði umsjón
með smíði Þjórsárbrúar auk fjölda
annara verka.
Sigurður varð síðan bæjarverk-
fræðingur í Reykjavík 1908 og vann
við það með hléum til 1921. Hann var
aðjúnkt við Menntaskólann í Reykja-
vík og yfirkennari frá þar 1920–35,
átti sæti bæjarstjórn Reykjavíkur
1900-1906, var stofnandi Verkfræð-
ingafélags Íslands og heiðursfélagi
þess.
Eiginkona Sigurðar var Maria
Kristín, f. Claessen, dóttir Jean Val-
gard van Deurs Claessen landsfé-
hirðis, og k.h., Kristínar, dóttur Egg-
erts Briem, sýslumanns á Reynistað.
Meðal barna þeirra voru þeir
Þórður Jónas borgarfógeti og dr.
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra, en fjölskyldan bjó lengst af við
Fríkirkjuveginn í sínu fallega timb-
urhúsi sem þar stendur enn, milli
Miðbæjarskólans og Fríkirkjunnar.
Sigurður lést þann 29.9. 1955.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Thoroddsen
95 ára
Sigrún Einarsdóttir
90 ára
Guðrún Sigurjónsdóttir
Jóhann Waage
85 ára
Guðrún Árnadóttir
Guðrún Emilsdóttir
Hallur Jónasson
80 ára
Haukur Jónsson
Unnur Þorleifsdóttir
75 ára
Eðvarð Felixson
Finnur Karlsson
Fríða Sigurðardóttir
Guðrún Árdís
Sigurðardóttir
Kristjana Ragnarsdóttir
Kristján Ottósson
Nikolay Proskurnin
70 ára
Ásmundur Arndal
Jóhannsson
Erla Nielsen
Guðrún Leifsdóttir
Ragnar Sigurðsson
Stefán Magnús Ólafsson
Tsisana Lebanidze
Vignir Kárason
60 ára
Barbara Belle Nelson
Björg Cortes
Haukur Már Ingólfsson
Helena S. Ingibergsdóttir
Kolbrún Engilbertsdóttir
50 ára
Ása Björk Matthíasdóttir
Ásta Teresía Baldursdóttir
Feng Jiang Hannesdóttir
Harpa Svavarsdóttir
Helga Sigríður
Gunnlaugsdóttir
Ingibjörg Erna Sveinsson
Jóna Lárusdóttir
Jón Helgason
Kolfinna Knútsdóttir
Leifur Guðjónsson
Lísa Karen Yoder
Ólafur Sveinn Gíslason
Patrick Andre Rene
Ramette
Ragnhildur Kristjánsdóttir
Wenmian Fang
Þórhallur Geir Arngrímsson
40 ára
Anna Birna Þorsteinsdóttir
Arndís Hrund
Guðmarsdóttir
Barbara Adamowska
Gunnhildur Kristinsdóttir
Heiða María
Guðlaugsdóttir
Helgi Kristinsson
Jóel Eiður Einarsson
Jón Gunnlaugur Sævarsson
Nína Dís Dewage
Sofía Jóhannsdóttir
Susan Anna Wilson
Svanlaug Halldórsdóttir
Sverrir Sigurðsson
Vilhjálmur Valgeir
Hernandez
Þorvaldur Jónsson
30 ára
Adrian Leontin Rosu
Andri Guðmundsson
Ásdís Björk Jóhannsdóttir
Friðrik Þór Gestsson
Hreinn Rúnar Jónasson
Hulda Hreiðarsdóttir
Iwona Bogumila Luszcz
Marcin Kolenda
Rín Samía Raiss
Til hamingju með daginn
30 ára Ívar ólst upp í
Kópavogi. Hann lauk
MSc.-prófi í heilbrigðisvís-
indum frá læknadeild HÍ
og er frumulíffræðingur
hjá Kerfislíffræðisetri HÍ.
Maki: Guðrún Mist Sig-
fúsdóttir, f. 1986, að ljúka
lögfræðinámi við HÍ.
Sonur: Sölvi Þór, f. 2010.
Foreldrar: Axel Sölvason,
f. 1951, tæknifræðingur,
og Björk Geirdal, f. 1955,
sjúkraliði en þau búa í
Kópavogi.
Ívar Þór
Axelsson
30 ára Elvar útskrifaðist
frá Kvikmyndaskóla Ís-
lands 2005 og er að ljúka
við kvikmyndina Einn.
Maki: Vivian D. Ólafs-
dóttir, f. 1984, leikkona.
Dætur: Aníta Von, f.
2000, Diljá Malín, f. 2005,
Kolbrún Una, f. 2009, og
Dagný Esja, f. 2012.
Foreldrar: Dagný Brynj-
ólfsdóttir, f. 1954,
starfsm. Stjórnarráðsins,
og Gunnar Óskarsson, f.
1954, viðskiptafræðingur.
Elvar
Gunnarsson
40 ára Valur fæddist í
Hafnarfirði og ólst þar
upp. Hann er mat-
reiðslumaður og sér um
mötuneytið hjá Nýherja.
Maki: Sylvía Pétursdóttir,
f. 1972, kennari.
Synir: Valur Elli, f. 1998,
Svavar, f. 2003.
Foreldrar: Bergmundur
Elli Sigurðsson, f. 1948,
húsasmiður, og Ólöf
Helga Júlíusdóttir, f. 1952,
læknaritari, eru búsett í
Hafnarfirði.
Valur
Bergmundsson