SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 4

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Side 4
4 15. júlí 2012 Umræðunni sem skapaðist í kringum golfvöll Donalds Trump í Skotlandi svipar að einhverju leyti til þeirrar umræðu sem skapaðist hér á landi í kringum kaup og framkvæmdir Kínverjans Huangs Nubo á Norðurlandi; sá ætlaði ein- mitt að leggja golfvöll ásamt fleiru á Grímsstöðum. Umhverf- isverndarsinnar hér á landi mót- mæltu mögulegri spillingu á villtri náttúru og sögðu að peningar myndu ekki bæta slíkt tjón. Það virðist þó leggjast verr í íslensk stjórnvöld en þau skosku að leyfa slíkar framkvæmdir enda Nubo mögulega pólitískt umdeildari. Svipað dæmi Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo vill kaupa land á Norðurlandi. Morgunblaðið/Ernir Á þriðjudaginn í síðastliðinni viku opn-aði Donald Trump nýja golfvöllinnsinn í Aberdeen-skíri í Skotlandiásamt tveimur af bestu golfurum þeirra pilsklæddu. Samkvæmt Trump verður hann sá flottast sem til er í öllum heiminum. Golfvöllurinn, sem kostaði um 100 milljón pund eða 20 milljarða kr. í byggingu, er einn sá um- deildasti og hafa umhverfisverndarsinnar for- dæmt hann á þeim forsendum að hann sé byggð- ur á einstöku svæði sem ríkt er af dýralífi. Skosku náttúruverndarsamtökin hvöttu jafnframt Colin Montgomerie, Martin Laird og Paul Lawrie, bestu golfara Skotlands, til að sniðganga opnunar hringinn. Lawrie var sá eini sem lét sig vanta. Trump keypti landsvæðið, sem er nokkrum kílómetrum fyrir norðan Aberdeen, árið 2006. Ásamt golfvellinum ætlar hann að byggja þar 450 herbergja hótel, ráðstefnumiðstöð, heilsulind, 36 sveitasetur, 950 sumarhús, húsnæði fyrir 400 starfsmenn auk 500 íbúðahúsa; sem sagt með- alstórt þorp. Skosk yfirvöld hafa einnig meðal annars skikkað Trump til að byggja 225 nemenda barnaskóla, búðir og 98 hús á lágu verði til að mæta kröfum íbúa þorpsins sem þarna mun rísa. Um er að ræða 4.000 ára gamla strandlengju sem þakin er sandöldum. Þrátt fyrir að svæðið sé á lista yfir verndarsvæði þá mátu skosk stjórnvöld það svo að hagfræðilegur ávinningur fram- kvæmdanna vægi þyngra en það tjón sem náttúr- an yrði fyrir. Sex þúsund störf myndu skapast, þar af 1.400 sem yrðu varanleg, og því skyldi taka með opnum örmum. Þetta voru margir afar ósáttir við og hefur meðal annars verið gerð heimildarmynd um málið. Þar má meðal annars sjá Trump segja það opinberlega að framkvæmd- irnar hafi mætt gríðarlegum stuðningi umhverf- isverndarsinna. Áður en framkvæmdirnar voru samþykktar var Trump hinsvegar látinn skrifa undir skjöl sem skylduðu hann til að lúta reglum varðandi verndun á ákveðnum plöntum og svæð- um. Skosk verndarsamtök munu hafa umsjá með þeim svæðum. Babb er þó komið í bátinn þar sem skosk yf- irvöld hyggjast byggja vindorkustöðvar í tveggja kílómetra fjarlægð frá golfvellinum. Það sættir Trump sig ekki við og því hafa frekari fram- kvæmdir í kringum golfvöllinn verið settar á klaka. Golfvöllurinn er engu að síður tilbúinn og mun verða opnaður fyrir almenningi í dag, 15. júlí. Íbúar á svæðinu eru ekki heldur allir par sáttir með nýju áformin. Skoski námuverkamaðurinn, bóndinn og veiðimaðurinn Michael Forbes hefur ásamt eiginkonu sinni neitað að selja land þeirra undir golfvöllinn. Forbes, sem er um sextugt, voru boðnar hátt í hundrað milljónir fyrir land sitt og hús sem Trump hefur talað um að sé illa hirt hreysi sem eyðileggi útsýnið frá golfskála sín- um. Forbes svaraði tilboðinu á hinn kurteislegasta máta og bað Trump um að troða peningum sínum þangað sem sólin skini ekki. Annar íbúi, David Milne, neitaði einnig að flytja enda einstaklega fagurt útsýni yfir sjóinn og náttúruna í kring út um gluggann í stofunni. Trump brá þá á það ráð að planta fjölda grenitrjáa á lóð sína þar sem hún mætir lóð Milnes til að gestir golfvallarins þyrftu ekki að virða fyrir sér gamalt húsið. Nú neyðist Milne því til að búa á bak við þykkan vegg af grenitrjám, í eilífum skugga, sem varna honum sýn á fegurð Norðursjávar. Raunveruleikaþáttur í kringum byggingu vallarins var gerður og í hon- um lætur Trump margt flakka. „Við getum gert það sem við viljum, við erum að reyna að byggja flottasta golfvöll í heimi hérna. Þetta hús er ljótt,“ sagði hann meðal annars um hús Milne. Donald Trump er eins og vondi ríki karlinn í kvikmynd sem gerir það sem hann vill. Það er að vissu leyti rétt enda þvílík óskammfeilni að eyði- leggja heimkynni íbúa fyrir golfvöll. Hinsvegar má benda á þá staðreynd að þau störf sem skapast í kringum völlinn eiga mögulega eftir að bjarga öðrum fjölskyldum. Golf eða gullnar strendur Donald Trump byggir golfvöll á verndarsvæði Donald Trump slær hér upphafshögg sitt á nýja golfvellinum sínum í Skotlandi. Að sögn sjónarvotta var höggið fremur slakt. AFP Vikuspegill Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Donald Trump er 66 ára gamall við- skiptajöfur frá Banda- ríkjunum. Hann er ættaður frá Skotlandi en móðir hans fædd- ist á eynni Lewis. Trump er einnig af þýskum ættum en afi hans og amma í föð- urætt fluttust til Bandaríkjanna árið 1885. Þau tóku upp nafnið Trump en það er dregið af þýska eft- irnafninu Drumpf. Hann hefur marga fjöruna sopið en er hvað þekktastur fyrir raunveruleikaþátt sinn, Lærlinginn. Hver er maðurinn? FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR AFEITRAÐU HÁRIÐ MEÐ NÁTTÚRULEGUM EFNUM NÝJA NATURE RESCUE-HÁRLÍNAN 100% án paraben-, súlfat- og sílikonefna. Inniheldur þörunga sem vernda hárið, sojaprótein sem styrkir, Aloe Vera sem nærir og sjávarsteinefni sem fríska upp á það SÖLUSTAÐIR REDKEN BEAUTY BAR FAGFÓLK HJÁ DÚDDA HÖFUÐLAUSNIR MEDULLA MENSÝ N-HÁRSTOFA PAPILLA SALON REYKJAVÍK SALON VEH SCALA SENTER Dreifing: Hár ehf s. 568 8305 har@har.is REDKEN Iceland á

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.