SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 23
15. júlí 2012 23
„Þetta var hinsvegar vel skipulögð fluga
með einbeittan brotavilja og var hún að
auki dulbúin sem svifryk.“
Umhverfisstofnun reyndi í vikunni að afsaka þau, ann-
ars óafsakanlegu, mistök að fluga hefði komist inn í
svifryksmæli á Grensásvegi og truflað niðurstöður.
„Líklegast var þetta ekki hvítabjörn
heldur Árni Björn.“
Gunnhildur Stefánsdóttir, kajakræðari, virðist vera sú
eina sem þekkir muninn á eiginmanni sínum og hvíta-
birni. Hún heldur því fram að
sporin sem sáust á Vatns-
nesi hafi í raun verið eftir
eiginmann sinn, Árna
Björn Stefánsson.
„Ég heyrði að
það hefðu verið
hátt í 20 þúsund
manns á svæð-
inu, það var allavega orðið á
götunni.“
Nanna Bryndís Hilmarsdótir, meðlimur Of
Monsters and Men, um útitónleika sem
haldnir voru í Hljómskálagarðinum um síðustu
helgi.
„Hvað heldur þú? Ég hef ekkert annað
að gera, orðinn hundgamall.“
Hinn 82 ára gamli Magnús Gunnlaugsson eftir að blaða-
maður spurði hann út í það hvort hann hefði verið við-
staddur allt Landsmót hestamanna sem lauk fyrir
skemmstu.
„Og nú hefur honum bæst liðsauki við
veiðarnar.“
Anders Hansen, bóndi á Leirubakka, telur að hryssan
Gjóska geti veist tófuskyttunni Elimari Helga mikill
happafengur. Trippið elti uppi og murkaði lífið úr tófu á
dögunum.
„Þetta er eins og þokka-
legasta blokk.“
Pétur Kristjánsson, skip-
stjóri á dráttarbátnum
Magna, um skemmti-
ferðaskipið Celebrity
Eclipse.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
uppfyllt. Ekki er hægt að gera athugasemdir við
slíkt erindi. Innanríkisráðuneytið fer nærri um að
það er ekki að skrifa erindi í bygginguna sem hýsir
löggjafarþingið eða til að heyra viðhorf skrifstofu-
manna þingsins eða dyravarðanna. Það veit einnig
upp á sína tíu fingur, ef það er ekki fullkomlega
vanhæft sem mikilvægt ráðuneyti, að engin nefnd
innan þingsins er bær til að hrifsa til sín ákvörðun
sem aðeins verður gerð að lögum með ályktun frá
Alþingi sjálfu.
Vilji menn endilega halda sig við að kasta 250
milljónum á glæ til að halda ástæðulausa þjóð-
aratkvæðagreiðslu sína um skoðanakönnun um
nokkrar spurningar sem er laustengdar vanga-
veltum ólöglegs stjórnlagaráðs um hugsanlegar en
óþarfar breytingar á stjórnarskrá landsins hinn
20. október eða fyrr verður Alþingi að gera um
það ályktun 19. júlí n.k. eða fyrr. Þetta er ekki
flóknara mál en það.
Patstigið fer dagversnandi í stjórnarráðinu
vegna málsins. Umræðan í stjórnarliðinu um þetta
kák og klúður hefur að undanförnu einkum snúist
um tvennt. Hverjum er þetta sérstaka klúður að
kenna og er hægt að finna einhverja leið, hversu
ógeðfelld sem hún kunni að vera, til að komast
framhjá ótvíræðum lögum um Alþingi, eins og
komist var hjá að taka mark á Hæstarétti Íslands.
En innan stjórnarliðsins heyrast raddir sem benda
á að tiltrú ríkisstjórnarinnar og stuðningsmanna
hennar hafi beðið hnekki með árásinni á Hæsta-
rétt. Sami þingmeirihluti og kallaði saman Lands-
dóm hljóti að hugsa sinn gang. En þrátt fyrir slík
varnaðarorð hefur verið reynt að þrýsta á mark-
tæka lögfræðinga, þeir beðnir um að taka fyrir
nefið og skafa snitti af fræðilegri æru sinni með
því að rökstyðja einhvern veginn að þrátt fyrir allt
þurfi ekki lögin frá Alþingi að gilda alla leið í þessu
sérstaka máli. Þegar þetta er skrifað hefur enn
ekki tekist að finna neinn sem vill láta hafa sig í
þetta, svo sem vonlegt er. Fróðlegt verður að sjá
hversu langt niður skalann þarf að fara. Kannski
endar leitin alla leið í Ástráði Haraldssyni. Hann
stóð sig með prýði, að sínum hætti, í stjórnlaga-
þingskosningunum, og sá fátt athugavert við þær.
Morgunblaðið/Eggert
Menn að veiða makríl
við Reykjavíkurhöfn.
Hálfrar aldar gömul ljós-mynd á forsíðu Sunnu-dagsmoggans um liðnahelgi vakti athygli. Hún
var ein margra úr fórum þýska ljós-
myndarans og kvikmyndagerð-
armannsins Hermanns Schlenkers,
sem hann færði Ljósmyndasafni
Reykjavíkur að gjöf. Á myndinni var
einbeittur veiðimaður girtur lundum
sem hann hafði háfað.
Gaman var að heyra um manninn á
fésbókinni eftir að blaðið kom út.
„Forsíða Sunnudags Moggans kom
skemmtilega á óvart þessa helgina en
þar birtist mynd af pabba, þá 18 ára
gömlum, sem tekin var af honum við
lundaveiðar í Elliðaey árið 1959,“
skrifaði Harpa Guðjónsdóttir og bætti
við: „Ég verð að segja að ég á svalasta
og flottasta pabba í heimi :) Elska
þennan mann.“
Og víst er pabbinn Guðjón Guðlaugsson á forsíðumyndinni, fæddur árið 1940, og hann er líka á
minni ljósmynd inni í blaðinu. Sú mynd birtist áður í bók Schlenkers, Fuglar. „Ég var eini maðurinn
í þeirri bók,“ segir Guðjón hlæjandi þegar næst tal af honum.
„Þessar myndir eru þannig til komnar að Schlenker kom til okkar út í Elliðaey í eina eða tvær vik-
ur. Ég er fæddur og uppalinn úti í Eyjum og fór þangað fyrst níu ára gamall. Þarna var ég 18 ára og
fyrir utan einn föðurbróður minn sem var þarna úti, þá var ég sá eini sem gat talað við hann og not-
aði bara mína skólaensku.“
Schlenker fylgdi honum eins og skuggi um eyjuna. „Ég gjörþekkti hana og sagði honum til. Hann
var fyrst og fremst að taka fuglamyndir, en þegar hann var búinn að því, þá kom hann til mín þar
sem ég var að veiða. Það er gaman að sjá þessar myndir – ég á þær heima. Og það hefur verið mikið
um hringingar og spjall út af myndinni. Það voru svo margir sem þekktu mig. Ekki spillti fyrir að ég
var í Vestmannaeyjum í árgangspartíi með konunni minni. Fjöldinn allur mönnum kom til mín og
það stoppaði varla síminn. Þannig að heimurinn er ekki stór, nei, nei, nei.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Rabb
Flottur pabbi á forsíðu