SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 41
15. júlí 2012 41 LÁRÉTT 1. Edrú mætt þrátt fyrir að vera mannleg. (10) 6. Högg kennd við gráðu í júdó verða að tónlist. (7) 7. Jú góss lafi hjá útlendingi að sögn. (9) 10. Sukka aftur með Bjarna og guði. (6) 11. Byrjaði að næra númer. (13) 13. Lögsókn af önnum er sannanlega lögsókn. (9) 15. Dýrkið það sem er ekki lengur hér. (4) 16. Meiðsli eftir margslungna raust í föllum. (8) 17. Merkja við X í tákni. (9) 21. Laus úr sonarblótinu og orðinn heill. (8) 22. Sérhver drukkin er fyrir óstöðugan. (8) 24. Erkiaula má sjá búa til dyngju af framburði. (8) 26. Sjokk eyði mat. (7) 27. Saga lok aftur með lofti. (7) 29. Sjá sjávarfugl, sem er róbót, vinna skrifstofu- starf. (7) 30. Óglöggt fjármark kemur stundum fyrir í fótbolta. (8) 31. Það er á mörkunum að auðkenna marabústorka. (5) 32. Lásafáni er til tjóns. (9) 33. Pilla sem taka á í Evrópulandi var í skóla- stofum. (11) LÓÐRÉTT 2. Upphefð fá fremst á. (7) 3. Skaða heimspeking með því að snyrta brúnir. (9) 4. Nem slá aftur eftir að mál MH fer að snúast um skartgrip. (11) 5. Kasta jólasveini fram með braghætti. (9) 6. Benedikta er að semja. (5) 8. Deyfð er kostnaðarsöm hjá skepnu. (7) 9. Fimm komu á eftir goði með stöng. (7) 12. Þrautseigja nær að skorða. (5) 14. Sturlarar lesa rugl í herbergi. (12) 18. Striklaus kúrði hjá útlendingi. (5) 19. O, kurl á ennþá Ari, fésuga. (10) 20. Sunna nær að hlæja að fugli. (10) 21. Róum aftur partí sundurleitra. (10) 22. Hvæsti Kaja einhvern veginn út af mollu. (10) 23. Eyða mun á milli fólks oftast. (9) 25. Það sem þú færð ef þú spyrð son Laufeyjar að einhverju? (8) 28. Herbergi maðkaflugna inniheldur krydd. (6) Verðlaun eru veitt fyrir kross- gátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgun- blaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 15. júlí rennur út á hádegi 20. júlí. Nafn vinningshafans birtist í Sunnudagsmogg- anum 22. júlí. Vinningshafi krossgátunnar 8. júlí er Þorsteinn Úlfur Arnarsson, Laufrima 2, 112 Reykjavík. Hann hlýtur bókina Baldursbrár eftir Kristinu Ohlsson. Krossgátuverðlaun Þann 11. júlí sl., þegar 40 ár voru liðin frá þeirri frægu stund að fyrsta einvígisskák Fischers og Spasskís var tefld, var efnt til samkomu á annarri hæð í litlu timburhúsi gegnt hinu virðulega Landsbankahúsi á Selfossi. Þar voru mættir fyrir tilstuðlan Gunnars Finnlaugssonar for- svarsmenn Árborgar, Bjarni Harðarson bóksali, Kristinn Friðfinnsson prestur, Guðni Ágústsson, forsvarsmenn skák- hreyfingarinnar, og fleiri góðir gestir að ógleymdum Sigfúsi Kristinssyni byggingarmeistara sem lagt hefur til húsnæðið fyrir safn helgað minningu Fischers og jafnframt aðstöðu fyrir skák- iðkun Flóamanna. Selfyssingar hafa áþreifanlega orðið þess varir að einn koldimman janúar- morgun fyrir meira en fjórum árum var Bobby Fischer ekið síð- asta spölinn um aðalgötu bæj- arins. Leiði hans við Laugdæla- kirkju er vinsæll viðkomustaður ferðalanga. Í tilefni dagsins hafði hafði Gunnar Finnlaugsson stillt upp þessari stöðu: 1. einvígisskák: Spasskí – Fischer Um áttaleytið þann þann 11. júlí lék Fischer 29. … Bxh2 og er þar kominn einn frægasti „af- leikur“ skáksögunnar. Fischer var tvísaga um ástæðurnar – sjá bækurnar Bobby Fischer vs. the rest of the World eftir Brad Dar- rach og No regrets eftir Yasser Seirawan – en talið er að eftir 30. g3 h5 31. Ke2 h4 32. Kf3 h3 33. Kg4 Bg1 34. Kxh3 Bxf2 hafi hann misst af 35. Bd2! sem fangar biskupinn. Framhaldið varð: 30. g3 h5 31. Ke2 h4 32. Kf3 Ke7 33. Kg2 hxg3 34. fxg3 Bxg3 35. Kxg3 Kd6 Áhorfendum í Laugardalshöll var flestum ljóst að þar sem a8- reiturinn var ekki á svæði bisk- upsins, hlytu líkur á jafntefli að aukast verulega. Fjölskylduvin- urinn Davíð Davíðsson læknir hélt yfir mér menntaðan fyrirlestur um að hvítur mætti aldrei leika peðinu til a5. Spasskí lék nú 36. a4. Í bók sinni um einvígið fer Friðrik Ólafsson langt með að sanna að 36. Kg4 sé nákvæmara og vinni. Athuganir Friðriks tók enski stórmeistarinn Jonathan Speelman síðar upp í bókinni Analysing the endgame og komst að því að svartur nær jafntefli með 36. … Kd5! 37. Kh5 Ke4! 38. Kg6 e5! 39. Kxg7 f5. Þetta verður ekki hrakið, tölvuforritin staðfesta niðurstöðu Speelmans en vitanlega höfðu menn ekki slík tæki á dögum einvígisins. Fischer lék 36. … Kd5. Friðrik bendir á hversu rökréttur leik- urinn sé, frá d5 getur kóngurinn haslað sér völl á báðum vængjum. 37. Ba3 Ke4. Friðrik og Speelman eru sammála um að 37. … a6! sé best og svartur heldur jafntefli. Ein leiðin er 38. b6 Kc6 39. a5 Kd5 og eftir uppskipti á e-peði hvíts heldur svarti kóngurinn til c8 og þar sem peðið er komið til a5 get- ur hvítur ekki unnið. 38. Bc5 a6 39. b6 f5? Ónákvæmur leikur. Eftir 39. … e5! heldur svartur jafntefli. 40. Kh4! Smýgur inn fyrir varnargirðinguna. Eftir 40. … f4 fór skákin í bið og nákvæmar rannsóknir leiddu í ljós einfaldan vinning þar sem leikþvingunum var óspart beitt: 41. exf4 Kxf4 42. Kh5 Kf5 43. Be3 Ke4 44. Bf2 Kf5 45. Bh4 e5 46. Bg5 e4 47. Be3 Kf6 48. Kg4 Ke5 49. Kg5 Kd5 50. Kf5 a5 51. Bf2 g5 52. Kxg5 Kc4 53. Kf5 Kb4 54. Kxe4 Kxa4 55. Kd5 Kb5 56. Kd6 – og Fischer gafst upp. Hver er svo niðurstaðan? Jú. Þegar öll kurl eru komin til grafar þá var frægasti afleikur skáksög- unnar, 29. … Bxh2, ekki afleikur. Helgi Ólafsson helol@simnet.is 11. júlí og frægasti afleikur skáksögunnar Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.