SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 14

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 14
14 15. júlí 2012 Anna Hlín tónlistarkona er ein affjölmörgum Íslendingum semhéldu í víking til Noregs. Húnfluttist í sjávarþorp á vest- urströndinni ásamt fjölskyldu sinni. Þar hefur hún ásamt manni sínum, Anthony Lewis komið sér upp hljóðupptökuveri og einbeita þau sér að tónlistarsköpun í ró- legheitunum, umvafin stórbrotinni nátt- úru. Þau fréttu af auglýsingu í blaði þar sem óskað var eftir ungu barnafólki í litlu sjáv- arplássi, atvinna og húsnæði í boði. Þau létu slag standa og minna búferlaflutning- arnir óneitanlega á Himmelblå, hugljúfa norska þætti sem sýndir voru á RÚV, fyrir skömmu. Viðskiptatækifæri og ný plata „Við sáum fljótlega eftir að við komum út að við fengjum meira út úr því að stofna eigið fyrirtæki en vinna þau störf sem í boði voru, þrátt fyrir að þau væru ágætlega borguð,“ segir Anna Hlín. Viðhorf til vinnu í Noregi og starfshlutfall er nokkuð frábrugðið því sem Íslendingar eiga að venjast. Í boði var að vinna 30-40% hér og þar. „Norðmennirnir hlógu mikið að mér fyrst þegar ég kom og ætlaði að fá 100% vinnu, þá var mér tjáð að enginn væri með slíkt vinnuhlutfall á þessu svæði. Í raun- inni þurfti maður að venja sig af því að vera íslenskur.“ Það tókst ekki í einu vetfangi, parið kom sér upp hljóðupptökuveri og stofnaði fyr- irtækið Sumthin Magnetic Music house. Næg verkefni eru fyrir duglega Íslendinga og töluverð ásókn er í upptökuverið sem er hið eina sinnar tegundar á nokkuð stóru svæði. Viðbrögð heimafólks kom þeim í raun í opna skjöldu. Verkefnin eru fjöl- breytt, allt frá upptökum á talsettu barna- efni til plötuupptöku. Fyrsta plata Önnu Hlínar sem lítur dagsins ljós eftir helgina nefnist All Souled Out. Fyrirtækið hennar í samvinnu við LOJ Records Entertainment í Atlanta, BNA gefa hana út, sem jafnframt sér um dreifingu. Sherman De Vries, sá um hljóðblöndun og masteringu á plötunni en hann er í samstarfi með Grammyvinn- ingshafanum, Mark Ronson. Efnið er ým- ist sálar-, reggí-, hip hop- og popp- tónlist. Úrval góðra tónlistarmanna lagði henni lið við gerð plötunnar, jafnt ís- lenskra sem erlendra: Jason Memor, Ear- max (Nagmus), Basic-B, Poppa Andy, Diddi Fel, B-Ruff og Anthony Lewis (AntLew). Platan hefur verið nokkuð lengi í bí- gerð allt frá 2004, ætli afslappað umhverfi Noregs hafi ekki haft úrslitaáhrif um út- gáfuna. Idolið stökkpallur Anna Hlín tók þátt í Idol-söngkeppninni árið 2009 og býr hún vel að þeirri reynslu. Margir muna eftir henni þar sem hún tókst á við ólík lög með kraftmiklum flutningi. Hún lenti í öðru sæti og fjöl- mörg tækifæri fylgdu í kjölfarið. „Þetta var rosaleg lífsreynsla og sýndi mér margt sem ég vissi ekki þá þegar til dæmis um stressið á bak við þetta, myndavélar og allan glamúrinn. Ég fékk staðfestingu á þeim vinnubrögðum sem ég hafði til- einkað mér í söngnum á þessari stuttu lífsleið.“ Anna Hlín mælir eindregið með því að taka þátt í slíkum söngkeppnum fyrir þá sem hafa á annað borð áhuga á söng. „Þátttakan var ákveðinn stökkpallur og hægt að læra ýmislegt, það er að segja með réttu hugarfari.“ Hún hafði í nógu að snúast upp frá því, gerði samning við Valla Sport og túraði um landið með Haffa Haff, „þetta var allt mjög skemmtilegt og lærdómsríkt“. Á sama tíma var hún með smáskífur í spilun á útvarpsstöðvunum. Einnig tók hún þátt í söngkeppni sjón- varpsins með lagið Ást eftir Grétar Sig- urbergsson sem var klassískt en kraft- mikið. Hún segist hafa styrkst með hverju skipti sem hún kom fram og nýtur góðs af því í allri tónlistarsköpun. Krakkarnir eins og svampar „Það er gaman að kenna krökkunum, þau eru mjög áhugasöm, eins og svampar, þau eru svo fljót að tileinka sér nýja hluti. Þau eru líka svo frumleg og sniðug,“ segir Anna Hlín. Hún er með námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára þar sem þau ná tökum á raddbeitingu og söngtækni. Maðurinn hennar Anthony Lewis heldur einnig námskeið í hip hop-tónlist sem er vinsælt. Mikið fjör fylgir því að troða upp fyrir krakkana. „Í síðustu viku vorum við á lít- illi eyju á Víkingahátíð og vorum fengin til að koma þangað að skemmta. Það er alltaf gaman að koma fram og ennþá betra ef það eru eyru sem vilja hlusta. Á þessum ferðum okkar og tónleikum finn- um við fyrir mikilli eftirspurn eftir plöt- unni.“ Ekki á leiðinni heim „Okkur líður mjög vel hérna og erum ekki á leiðinni heim, nema það gerist af illri nauðsyn. Við erum að einbeita okkur að tónlistinni og það er æðislegt að vera listamaður hér. Auk þess er fjölskyldan hér, foreldrar mínir og systkini. Okkur langaði alltaf að flytja úr borginni og í ró- legra umhverfi og þetta er mikið til gert fyrir strákinn okkar, að leyfa honum að njóta sín í rólegheitunum og í náttúrunni. Hér eru til dæmis geitur, kýr og otrar sem er ekki alveg normið í Reykjavík, þar er í mesta lagi hægt að sjá kanínur í Öskju- hlíðinni ef maður er heppinn.“ Þau eiga von á sínu öðru barni í nóv- ember og líkar vel í firðinum þar sem veðráttan minnir gjarnan á Ísland; úr- komusamir gráir dagar en sólardagarnir eru þó mun fleiri. Undir lok símtalsins þurfti Anna Hlín að haska sér af stað út í sólina því son- urinn litli var farinn að kalla eftir athygli og vildi ólmur sjá otrana og geiturnar í náttúruperlunni. Þurfti að venja sig af því að vera íslensk Tónlist hefur heillað Önnu Hlín frá unga aldri og lifir hún drauminn í faðmi norskrar náttúrufeg- urðar. Hún skapar sín eigin tækifæri, stofnaði fyrirtæki og gefur út sína fyrstu plötu. Athafna- semin og atorkan sem löngum hefur verið orðuð við Íslendinga kemur íbúum Stongfjorden skemmtilega á óvart. Þorpið kúrir milli him- inhárra fjalla, trjáa og hafs og ferja þarf íbúana síðasta spottann til áfangastaðarins. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Anna Hlín flott í skóglendinu, myndatakan þarf að vera töff því stefnt er á erlendan markað. Með fjölskyldunni, Anthony Lewis, Imhotep Stefán og Anna Hlín á góðri stundu í Noregi.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.