SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 24
BardagaíþróttaklúbburinnMjölnir hefur vaxið hratt aðundanförnu og iðkendur þre-faldast á einu ári. Mjölnir hefur nú aðsetur sín við Seljaveg 2, þar sem áð- ur var leikhúsið Loftkastalinn, og að- staðan vægast sagt glæsileg. Félagið stofnað árið 2005 Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, sem starfaði áður sem lögreglumaður, segir aðdraganda að stofnun félagsins ekki langa. „Í raun og veru byrjuðum við með Mjölni áður en ég byrjaði í lögreglunni. Fyrsta æfingin okkar var árið 2003, þá byrjuðum við með þetta undir formerkj- um Þórshamars og þaðan er nafnið Mjölnir dregið. Á sama tíma voru aðrir strákar að æfa svipaða hluti í Skeifunni. Við byrjuðum að æfa saman árið 2004 og árið 2005 ákváðum við að stofna þetta formlega. Þá sameinuðust þessir tveir hópar og úr varð níu manna hópur sem skuldbatt sig til að greiða ákveðna upp- hæð í 12 mánuði til að við gætum byrjað að leigja okkur húsnæði. Þeir sem eru í þeim hópi eru kallaðir stofnfélagar Mjölnis. Það var haustið árið 2005 sem það var gert og við héldum Mjölnisnafn- inu. Flestir af stofnfélögunum koma enn þann dag í dag að rekstri Mjölnis og má þar nefna menn á borð við bardagakapp- ann Gunnar Nelson og Pétur Baldursson sem var stór þáttur í allri tækniþjálf- uninni hérna. Hann flutti mann inn frá Bandaríkjunum, Matt Gorton, sem hélt námskeið hér á landi árið 2004. Við höf- um síðan þá verið í mjög góðu sambandi við hans klúbba, sem eru úti um allan heim, meðal annars vill Gunnar æfa undir þeim samtökum í Írlandi,“ segir Jón Við- ar. Sjálfboðavinna gulls ígildi Það er ekki langt síðan Mjölnir flutti inn í gamla Loftkastalann og þakkar Jón Viðar gríðarlegri sjálfboðavinnu fyrir það hversu góð aðstaðan er. „Fyrst leigðum við hjá Júdófélagi Reykjavíkur í eitt ár og svo ákváðum við að flytja á Mýr- argötuna. Menn voru til að byrja með pínu smeykir við það, 50-60 manna hópur, hvort við myndum ráða við að borga leiguna. Stór hluti ástæð- unnar fyrir því að allt er eins stórt og flott og það er í dag er sú svakalega sjálfboðavinna sem hefur verið unnin hérna. Fyrsta árið þrifum við allt í sjálf- boðavinnu, kenndum allt í sjálfboða- vinnu, vorum með afgreiðsluna í sjálf- boðavinnu og greiddum samt æfinga- gjöld. Það voru strákar sem eru grafískir hönnuðir sem voru að æfa í Mjölni sem hönnuðu plaköt og prentuðu þau út og svo höfum við líka klippt mikið af mynd- böndum og dreift um netið, það hefur vakið mikla athygli. Gunnar Nelson er náttúrlega okkar helsta auglýsing, hann er gríðarlega mikið í fjölmiðlum og flott ímynd fyrir sportið,“ segir formaðurinn. Félag en ekki fyrirtæki Hjá Mjölni er hægt að æfa bardagaíþróttir á borð við jú-jitsú, hnefaleika og MMA auk þess sem hægt er að nýta sér aðstöð- una til líkamsræktar. „Fyrir tveimur vikum ákváðum við að vera með opið allan daginn svo að fólk gæti mætt og til dæmis lyft. Við viljum samt að þeir sem eru að æfa hér hafi klár- að að minnsta kosti eitt byrjunarnám- skeið í einhverju. Við viljum ekki að þetta breytist í hefðbundna líkamsræktarstöð. Við viljum að fólk þekkist hérna og æfi saman. Við erum með 650 iðkendur og við förum örugglega hátt í 800 innan skamms,“ segir Jón Viðar. Með allan þennan fjölda iðkenda er ljóst að talsverður peningur er í spilinu en að sögn Jóns Viðars fer hann ekki í vasa eigenda félagsins. „Þetta er félag en ekki fyrirtæki þannig að peningurinn sem kemur hérna inn fer bara í það að reka félagið, borga leig- una, starfsmönnum og þjálfurum. Allur sá peningur sem kemur aukalega fer strax aftur inn í félagið og við kaupum búnað, sendum keppnisliðið okkar út og styrkjum það, borgum fyrir þjálfara og allt sem gerir fé- lagið betra,“ segir Jón Viðar. Von á frábærum þjálfurum „Við fáum alltaf reglulega erlenda þjálfara til okkar. Við erum til dæmis að fá til okk- ar þvílíkt nafn núna í september sem kemur inn í fulla vinnu, John Kavanagh. Hann er einn fremsti MMA þjálfari í Evr- ópu í dag og þjálfar meðal annars Gunnar. Þessir samningar verða til þess að Mjölnir verður ennþá meiri miðstöð í Evrópu, það mun fullt af liði koma til Íslands til að æfa með John og í Mjölni til að undirbúa sig fyrir bardaga úti um allan heim,“ segir Jón Viðar og tekur það fram að Mjölnir sé orðið ágætlega þekkt nafn innan bar- dagaíþróttasamfélagsins í Evrópu. Gunnar Nelson er ekki eini bardaga- kappinn sem keppir undir formerkjum Mjölnis en Árni Ísaksson, sem einnig er mjög framarlega í MMA íþróttinni, æfir undir formerkjum Mjölnis og einn fremsti boxari landsins, Gunnar Þór Þórsson, gerir slíkt hið sama. Mjölnismenn í Hollywood-mynd Jón Viðar og Mjölnismenn hafa einnig komið talsvert að gerð kvikmynda. „Ég hef sjálfur verið svolítið í kringum kvikmyndir, aðallega út af kærustunni minni Ágústu Evu. Ég hef oft séð um áhættuatriði, til dæmis í myndunum Borgríki, Svartur á leik, auglýsingum og þess háttar. Ég hef mikið til fengið stráka úr Mjölni til þess að vera í bardagaatrið- unum,“ segir Jón Viðar. Næsta kvikmynd sem er á borðinu hjá Jóni Viðari og félögum er stórmyndin Noah, sem leikstýrt er af Darren Aro- nofsky sem leikstýrði meðal annars Requiem for a Dream og Black Swan. „Það er síðan fullt af strákum sem er að fara að koma að kvik- myndinni Noah. Leikstjóri mynd- arinnar, Darren Aronofsky, var bara hérna fyrir skemmstu og var að velja Mjöln- isstráka í hlutverk hjá sér. Það eru náttúrlega misstór hlutverk sem menn fá, þetta er allt mjög mikið leynda- mál, en þetta er allt frá því að vera ein- hver smáhlutverk og yfir í eitthvað stærra. Ég veit ekki hvað það verða marg- ir valdir að lokum en það verða líklegast vel yfir 100 Mjölnismenn sem munu koma fram í myndinni,“ segir Jón Viðar sem skartar alskeggi að beiðni leikstjór- ans. Félagslíf innan Mjölnis er frábært Mjölnir hefur verið mikið í kastljósinu upp á síðkastið og segir Jón það næstum því vera sjálfsprottið. Hann segir að Mjölnismenn hafi aldrei greitt fyrir eina einustu auglýsingu, allt sé til komið af umfjöllunum og sjálfboðavinnu. Hann segir stemninguna innan félagsins vera frábæra og mikið sé í það lagt að skapa gott andrúmsloft. „Það er mjög gott félagslíf hérna. Það eru partí nánast í hverjum mánuði, við förum í bíó saman og reynum að hittast alltaf reglulega. Það hefur orðið fullt af samböndum hérna og stemningin er mjög góð. Stelpum hefur líka fjölgað alveg svakalega innan Mjölnis upp á síðkastið. Það eru kannski ekki alveg jöfn kynja- hlutföll ennþá hjá okkur en það eru lík- legast eitthvað um 150 stelpur hjá okkur um þessar mundir. Kynin æfa nær alltaf saman. Við erum með tvær æfingar í viku sem eru bara fyrir stelpur en annars vilj- um við að það æfi allir saman, þannig myndast betra andrúmsloft,“ segir Jón Viðar. Aðspurður segir hann að fólk sé fljótt Íþrótt en ekki ofbeldi Bardagaíþróttafélagið Mjölnir hefur þrefaldast á einu ári. Auk þess hefur félagið komið að gerð kvikmynda og um 100 Mjölnismenn munu koma fram í myndinni Noah sem verið er að taka upp. Texti: Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Myndir: Sigurgeir Sigurðsson sigurgeir@mbl.is Jón Viðar Arnþórsson 24 15. júlí 2012

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.