SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 27
irnir ekki settir upp sem keppni,“ segir Jón Viðar. Jón Viðar segir framtíðina bjarta fyrir MMA. „Ég held að eftir nokkur ár muni þetta vera búið að taka yfir sem eitt stærsta sport í heiminum. Menn munu líta miklu meira upp til stærsta MMA-kappans heldur en einhverrar fótbolta- eða hand- boltastjörnu. Ef þú ímyndar þér að fyrir framan okkur séu þrír vellir og á þeim væri verið að spila körfu-, hand- og fót- bolta og á einum þeirra myndi brjótast út slagsmál þá myndu allir horfa á það. Fólk elskar að horfa á svona átök. Það að hnoðast, hvort sem það er með vini þín- um eða barninu þínu, er bara í eðli mannsins. Þegar þú horfir á dýr eru þau alltaf eitthvað að hnoðast sér til gamans,“ segir Jón Viðar. Þetta snýst ekki um vöðva Hann segir að æfingarnar hjá Mjölni styrki sjálfstraust og geti bætt líðan fólks til muna. „Það koma krakkar að æfa hjá okkur sem hafa lent í einelti og það hafa komið foreldrar til okkar sem hafa sagt okkur að við höfum gjörbreytt lífi þeirra og líðan í skólanum. Ekki endilega vegna þess að þeir séu að taka í lurginn á þeim sem eru að stríða þeim heldur vegna þess að sjálfstraust þeirra verður meira fyrir vikið og krakkarnir bera sig betur og þeim líður betur. Ég er með eitt dæmi um strák sem var ekkert búinn að vera svakalega vin- sæll í skólanum og svo var haldin glímu- keppni í leikfimi. Hann náttúrlega pakk- aði öllum saman og eftir það var hann aðalgaurinn í hópnum. Það er ekkert öðruvísi í þessu en öðrum íþróttum, ef þú ert góður í þeim þá fylgir því ákveðið sjálfstraust,“ segir Jón Viðar. Jón Viðar segir íþróttina ekki eingöngu snúast um vöðvamassa keppandans. „Þú getur kannski lyft einhverjum 200 kílóum en svo þegar það kemur að því að beita kraftinum gegn aumari einstaklingi pakkar hann þér saman. Hvor er þá öfl- ugri? Tækni er ekkert annað en styrkur. Strákar sem eru að sprauta sterum í rass- inn á sér eru heldur ekki beint velkomnir hingað, við viljum ekki að það séu ólögleg lyf sem koma nálægt félaginu. En annars eru allir velkomnir hingað hvort sem um er að ræða massatröll eða anorex- íusjúklinga. Þess má geta að upplýsingar um æf- ingatíma og annað þess háttar má nálgast á heimasíðu félagsins mjolnir.is eða facebook síðu þeirra. Einbeitingin er mikil þó svo allt fari fram í hinu mesta bróðerni. ’ „Ef foreldrar þekkja ekki þessar bar- dagaíþróttir eru þeir kannski smeykir við að senda börnin sín til okkar. Það er hinsvegar ótrúlega mikið af krökkum sem líta til dæmis upp til Gunnars og þegar foreldrar sjá það hversu góð fyr- irmynd hann er fyrir sportið vill fólk frek- ar senda börnin sín hingað.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.