SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 22

SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 22
22 15. júlí 2012 Ákveðið hefur verið að kasta 250 millj-ónum króna á glæ með því að efna tilómarkvissrar skoðanakönnunar meðspurningum sem sagðar eru snerta inntak einhverra af ógrynni tillagna, sem svo kallað stjórnlagaráð hafði samþykkt eftir nokkra vikna söng og starf. Spurningarnar sem nefndar hafa verið til sögunnar eru óljósar og óhnitmið- aðar og ekki verður séð að svör við fyrirhugaðri skoðanakönnun, sem til gamans hefur verið köll- uð þjóðaratkvæðagreiðsla, veiti gagnlega leið- beiningu af neinu tagi. Helst kemur í hug að óprúttnir telji sig geta túlkað svör við svo sund- urlausum og illa tengdum spurningum út og suð- ur eftir hentugleikum eftir á. En víst er að ekki auðveldar þessi sérkennilegi snúningur það verk- efni sem látið er líta út fyrir að sé tilefnið. Þingnefnd forðast umræður um mál til meðferðar Tillögur svokallaðs stjórnlagaráðs voru afhentar Alþingi Íslendinga með viðhöfn fyrir svo sem ári og gefið hefur verið í skyn að þær hafi verið til meðhöndlunar þar í sérstakri þingnefnd síðan þá. Nú er komið á daginn að ekkert venjubundið nefndarstarf hefur farið fram. Formaður nefnd- arinnar hefur tekið sérstaklega fram að með- höndlun hennar hafi ekki falist í því að farið hafi verið efnislega yfir tillögurnar. Nefndarstarfið virðist felast í einhverju allt öðru, sem ekki er hægt að henda reiður á. Nú þegar er búið að kasta á glæ tæpum milljarði króna, eftir því sem best fæst upplýst í hinu lokaða íslenska stjórnkerfi, til að undirbúa tillögur „stjórnlagaráðs“ sem sér- staklega var ekki til þess kjörið í almennum og gildum kosningum. Þrátt fyrir þessa óstjórnlegu sóun í þetta óskiljanlega gæluverkefni stjórn- arflokkanna hefur verið talið rétt að fjalla alls ekki um efniviðinn í heilt ár af þeirri sérstöku nefnd sem fékk það verkefni að fjalla um það. Og það er verið að fjalla um stjórnarskrá landsins. Og fullyrt að það sé gert í fullri alvöru. Og þetta meðvitaða verkleysi viðgengst þótt enn sé talað um að tillög- urnar eigi samt að afgreiða á þeim fáu mánuðum sem eru til kosninga. Hvernig í ósköpunum getur þingnefnd leyft sér að haga sér svona? Sérfræðingar bit En nefndin komst á hinn bóginn ekki alveg hjá því að fá fjöldann allan af athugasemdum frá utan- hússfólki, sérfræðingum og öðrum, sem reyndu flestir samviskusamlega að fá botn í þennan und- arlega málatilbúnað. Og í þessum athugasemdum er vissulega að finna þunga og efnislega gagnrýni á tillögurnar umræddu og þar er nánast einróma mat að þær séu alls ekki tækar í núverandi bún- ingi. Þar sem ekki hefur enn verið lagt í það verk- efni af fagnefnd þingsins að ræða breyting- artillögur „stjórnlagaráðs“, sem samanstóð af þeim frambjóðendum til stjórnlagaþings sem studdu ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að nið- urlægja Hæstarétt landsins, hafa efnislegar at- hugasemdir sérfræðinganna ekki heldur verið ræddar í neinn þaula. Auðvitað er ekki hægt að halda því fram að sá afmarkaði skrípaleikur sem þarna á sér stað sé ekki í góðu samræmi við þá tiltrú sem íslenskur almenningur hefur á Alþingi um þessar mundir. En það er þá það eina sem hægt er að segja „jákvætt“ um hann. Og þar sem engin af frumskyldum nefndarinnar í þessu máli hefur verið virt og engin efnisleg umræða hefur farið fram um hinar sundurlausu tillögur sem leg- ið hafa fyrir nefndinni í heilt ár, veit enginn, að mati formanns hennar, hvort samstaða eða ágreiningur er um þær í nefndinni eða annars staðar í þjóðfélaginu. Formaðurinn hefur því vísað áliti Forseta Íslands í þá veru algjörlega á bug. Skoðanakönnun sett í þjóðaratkvæði Og til að geta haldið áfram að tryggja að breyting- artillögur um stjórnarskrá komi ekki til efnis- legrar umræðu, sem afhjúpað gæti opinberlega þann ágreining sem vitað er um að ríkir um tillög- urnar, var sem fyrr sagði ákveðið að halda í hina stórundarlegu, rándýru og með öllu marklausu skoðanakönnun. Þetta virðist hafa verið hugsað sem einhvers konar millileikur sem gæti forðað þingmeirihlutanum enn um skeið frá því að fjalla efnislega um málið. En meira að segja ákvörðun um rándýra, gagnslausa tafataktík var tekin í bullandi opinberum ágreiningi í þinginu, sem leiddi til þrefs í þingsal, sem stóð vikum saman og tafði önnur verkefni sem hugsanlega hefði verið eitthvert vit í og þar með meira vit en í atlögunni að stjórnarskránni, sem kosta á yfir einn milljarð króna á niðurskurðartímum. En þar sem Alþingi ákvað að skoðanakönnun um nokkrar almennt orðaðar spurningar skyldi fara fram sem um þjóðaratkvæðagreiðslu væri að ræða verður um framkvæmd hennar að fara und- anbragðalaust eftir því sem segir í lögum um þær. Við ályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu ber að ákvarða dagsetningu hinnar almennu kosningar. Engin undanþága frá því er veitt í lögunum. Skýr og ótvíræð dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslu með ályktun Alþingis er ófrávíkjanleg. En meinið er að slíka fasta dagsetningu kjördags gleymdist að setja inn í ályktun Alþingis. Á hinn bóginn var í ályktuninni að finna almenna hugleiðingu og í besta falli viljayfirlýsingu um að kosningar skyldu fara fram á tilteknu tímabili og þá ekki síðar en 20. október í ár. Þessi almenna hugleiðing um þetta efni hefur eflaust mátt vera í textanum en hún er að sjálfsögðu ekki ákvörðun um kjördag. Allir aðrir dagar þremur mánuðum eftir að ályktun Al- þingis var gerð eru jafngildir sem kjördagar og 20. október. Ekki einu sinni óvitar myndu reyna að halda því fram að með vangaveltum um tiltekið tímaskeið hefði einn kjördagur verið ákveðinn af því að hann var nefndur síðast í röðinni! Kjördag- inn ber að festa með ályktun Alþingis og hann er einn, en ekki eftir hentugleikum hinn síðasti í röð þeirra kjördaga sem komið gætu til greina. Vanga- veltur um að æskilegt sé að hann fari fram á til- teknu tímabili hafa ekkert með þá lagaskyldu að gera. Uppnám og pat Nú er allt í miklu uppnámi vegna þessa í stjórn- arliðinu. Innanríkisráðuneytið sér að lagaskilyrði eru ekki uppfyllt um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og skrifar Alþingi í þeim tilgangi að fá þau skilyrði Reykjavíkurbréf 13.07.12 Nú eru góð ástráð dýr

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.