SunnudagsMogginn - 15.07.2012, Blaðsíða 28
28 15. júlí 2012
Hafnarfjörður skartar mörgumfrægum kennileitum; hamr-inum sem gnæfir yfir bæj-arstæðið, sælureitnum
Hellisgerði og læknum sem liðast rólega í
gegnum hraunið. Svo eru það íbúarnir.
Hafi einhver þeirra gert tilkall til þess að
heyra til kennileita bæjarins, þá er það
Friðrik Oddsson. Meðal bæjarbúa er hann
einfaldlega þekktur sem Fiddi.
Veiddi veiðistöng
„Ég er víst einn af þessum útvöldu, get
kallað mig Gaflara með stolti.“ Fiddi situr
á kaffihúsi í miðbæ Hafnarfjarðar og sötr-
ar gosdrykk. „Ég drekk ekki kaffi, það er
svo svakalega óhollt. Já, ég fæddist 1953 á
Sólvangi í Hafnarfirði og get því montað
mig af því að vera sannur Gaflari. Til eru
fáeinir aðfluttir fýlupúkar sem þola ekki
þetta sæmdarheiti en ég er stoltur af því
að bera það.“
Fiddi ólst upp í Hafnarfirði sem var ansi
frábrugðinn þeim bæ sem við þekkjum í
dag. „Ég tilheyri Vesturbæjarvilling-
unum, hressum hópi sem hittist ennþá
reglulega til að rifja upp gamla tíma. Það
var æðislegt að alast upp í firðinum á
þessum tíma en fjaran var okkar helsta
leiksvæði og við töluðum gjarnan um að
fara niður í fjöru til að leika við hinar
rotturnar.“
Dorgveiði af bryggjum bæjarins var iðja
sem flestir krakkar stunduðu og einn
daginn komst Fiddi heldur betur í feitt.
„Ég var að dorga með spotta eins og allir
gerðu og varð svo heppinn að veiða for-
láta veiðistöng úr sjónum. Þetta þótti
mikill fengur en hvernig hún hafnaði í
höfninni veit ég ekki.“
13 ára háseti
Eins og ungum mönnum var tamt á þess-
um árum byrjaði Fiddi snemma að vinna
fyrir sér. „Ég bjó nánast á hafnargarð-
inum svo það var hægðarleikur að snapa
sér vinnu. Ég byrjaði 11 ára að þrífa borð
niðri á höfn og vann mig svo niður í lest í
uppskipun. Næsta skref var að komast á
sjóinn og með því að láta pabba toga í
nokkra spotta fékk ég hásetapláss á Maí
GK aðeins 13 ára gamall. Mér er sama
hvað aðrir segja en ég er þeirrar skoðunar
að ég hafi staðið mig vel. Mér var a.m.k.
boðið að koma í næsta túr á fullum há-
setahlut en fyrsta túrinn var ég á hálfum
hlut.“
Umhverfið um borð í togaranum mót-
aði unglinginn. „Það var auðvitað algjört
ævintýri að vera til sjós með einhverjum
alhörðustu körlum landsins. Þetta voru
menn sem unnu eins og berserkir til sjós
og tóku svo vel á því í drykkju og slags-
málum þegar þeir voru í landi. Manni var
gert það ljóst mjög snemma að ekki þýddi
að væla og vola um borð, slíkir menn ent-
ust aldrei lengi.“
Fiddi var háseti í fjögur ár og upplifði
mörg eftirminnileg atvik og litríka kar-
aktera. „Maður var kornungur gutti að
þræða vafasömustu hverfi Þýskalands
með þessum köllum og oft var ástandið
um borð skrautlegt. Reyndar var togarinn
sem ég sigldi með ekki svo slæmur en ég
heyrði af skipum sem þurftu að bíða í tvo
eða þrjá daga fyrir utan höfnina til þess
eins að áhöfnin næði að láta renna al-
mennilega af sér.“
Fiddi segir áhöfnina á Maí GK hafa ver-
ið af öllum stærðum og gerðum. „Einn
skrattakollur sem var um borð var blaut-
ur í meira lagi og oft óvinnufær dögum
saman vegna drykkju. Hann hélt þó
plássinu af þeirri ástæðu að þegar hann
drattaðist til vinnu, þá var hann auðveld-
lega þriggja manna maki. Menn komust
upp með ýmislegt sem ekki væri leyft í
dag. Eitt skiptið kom myndarleg stórlúða
í trollið hjá okkur og ég var fljótur að
öskra að ég ætti þessa lúðu. Þá kom einn
sjónaglinn, keyrði mig niður í dekkið og
þrumaði yfir mér: „Hlustaðu nú strák-
skratti, mig dreymdi berar kellingar í alla
nótt og þessi lúða tilheyrir því engum
nema mér.“
Leigubíll til Akureyrar
Skólaganga heillaði ekki Friðrik og hann
segir einfalda ástæðu fyrir því. „Það leið-
inlegasta sem ég geri er að lesa bækur og
því var það ekki erfið ákvörðun að segja
skilið við skólann. Þetta var líka allt ann-
að umhverfi í þá daga og það voru bara
einstaka furðufuglar sem fóru í háskóla en
Auðvitað hefur
sukkið tekið sinn toll
Friðrik Oddsson, sem Hafnfirðingar þekkja sem Fidda, hefur
marga fjöruna sopið í gegnum tíðina. Hann viðurkennir að
skellirnir séu nokkrir, en segist ekki sjá eftir að hafa ekki fet-
að troðnar slóðir í lífinu.
Benedikt Grétarsson
Morgunblaðið/Ómar
Friðrik Ingvar Oddsson eða Fiddi í
FH segir sumar sögurnar um sig
ýktar og aðrar hreinlega ósannar.