Kjarninn - 18.09.2014, Blaðsíða 10
03/05 EfnahagsmÁl
að niðurstöðum sem eru ávallt í fullu samræmi við íslensk
lög og alþjóðlegar skuldaskilareglur en samrýmist um leið
efnahagslegum stöðugleika Íslands og vexti, til framtíðar.“
Sigmundur Davíð sagði einnig að lausnin þyrfti ekki
einungis að vera efnahagslega möguleg, heldur líka sam-
félagslega ásættanleg.
telja framkvæmdastjórnina klofna í afstöðu sinni
Í framkvæmdastjórn um losun fjármagnshafta sitja Glenn
Victor Kim, fjármálaráðgjafi hjá LJ Capital, sem leiðir
verkefnið, Benedikt Gíslason ráðgjafi, Eiríkur Svavarsson
hæstaréttarlögmaður og Freyr Hermannsson, forstöðumaður
fjárstýringar Seðlabanka Íslands.
Tveir skólar eru ráðandi um það hvernig eigi að ljúka
skiptum búanna. Annar gengur út á að gera það með því að
semja við slitastjórnir föllnu bankanna og kröfuhafa þeirra
um að gera slíkt án þess að nauðasamningar ógni greiðslu-
jöfnuði Íslands. Hin leiðin er svokölluð gjaldþrotaleið, sem
gengur út á að knýja búin í þrot og að dótturfélag Seðlabanka
Íslands eða skiptastjóri verði látinn taka yfir eignir þeirra og
Leiðir málið
Framkvæmdastjórn um losun
hafta heyrir undir stýrinefnd.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra leiðir þá nefnd.