Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Strandveiðum fer senn að ljúka en
þær hófust 2. maí sl. Veiðum á
svæði A, frá Eyja- og Miklaholts-
hreppi til Súðavíkurhrepps, lauk
þegar á mánudag. Sumarið 2012 er
það fjórða þar sem strandveiðar
eru leyfðar frá maí til ágústloka.
Um 86% af afla strandveiðibáta
eru þorskur, afgangurinn mest
ufsi.
Gunnar Anton Jóhannsson gerir
út liðlega þriggja tonna trillu,
Petreu EA 105, og skráir á Hauga-
nesi við Eyjafjörð en þar er hann
fæddur. Sjálfur er hann búinn að
vera á togara í 15 ár og býr mikið í
Reykjavík en fær að búa „í for-
eldrahúsum“ á Akureyri meðan
strandveiðin stendur yfir.
Gunnar var nýkominn í land í
gærkvöldi þegar rætt var við hann.
„Þetta var mjög lélegt framan af
deginum en veðrið var alveg ein-
stakt. Í síðustu viku fór ég út í
fjarðarkjaftinn, út að Gjögrum, þar
sem ég fékk reyndar ágætis fisk og
kláraði skammtinn minn,“ sagði
Gunnar. „Það varð bara ekki vart
þar í dag og ég fór þá inn með og
fékk tæplega 800 kíló, aðallega af
ufsa. Það var nóg af honum en
hann var frekar smár. Sonur minn
var í heimsókn og fékk að fara
með.“
Gunnar, sem er 54 ára, sagði að
veiðin hefði verið heldur döpur á
Eyjafirði í sumar en hann er aðeins
búinn að fara sex róðra. Hann er
yfirleitt einn á og með tvær rúllur.
Alls nema aflaheimildir strand-
veiðibáta 8.600 tonnum af óslægð-
um fiski. Meðalafli í róðri var mest-
ur á svæði A, 614 kg, á svæði B
voru þau 548, á svæði C 533 og 449
á svæði D; þessar tölur miðast við
afla fram að verslunarmannahelgi.
Nægur ufsi á miðunum í Eyjafirði
Strandveiðum þegar lokið á svæði A
en þar er aflinn mestur í hverjum róðri
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Blíða Petrea EA 105 í mynni Eyjafjarðar í gær, sjö bátar voru á þessum
slóðum þegar myndin var tekin frá hvalaskoðunarbáti.
Enn logaði í sinu á landi Hrafna-
bjarga í Laugardal í Súðavíkur-
hreppi í gær. Sigurjón Samúelsson,
bóndi á Hrafnabjörgum, hefur bar-
ist við eldana síðan á föstudag og
sagði hann þá ekkert vera að
dvína, að því er fram kom í frétt
mbl.is. „Það brennur meðan eitt-
hvað er til að brenna,“ sagði Sig-
urjón. Talið er að ferðamenn hafi
ekki slökkt nógu vel í einnota grilli
sem þeir notuðu á svæðinu á
fimmtudag.
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
í Súðavík, hefur rætt við Landhelg-
isgæsluna og þar var verið að
kanna möguleikana á að þyrlan
gæti komið til aðstoðar í dag. „Það
eru tíu manns að störfum þarna nú
í kvöld,“ sagði Ómar. Um er að
ræða mó og lággróður og þó svo að
það sé búið að slökkva í einu sinni
lifir mikil glóð í þessu.
Gaus upp aftur
„Það gerðist þegar við slökktum
eldinn fyrst að hann gaus upp aftur
sólarhring seinna og þá var það
bara af glóðum sem njóta góðs af
vindi og feykjast í þurran gróður
aftur. Við erum búin að vera með
tvískiptar vaktir frá þeim tíma og
þarna er verið að dæla 780 tonnum
af vatni á svæðið á dag.
Við erum með mjög góðar dælur
og búin að lágmarka að eldurinn
geti borist út í ný svæði, en á
tveggja og hálfs til þriggja hektara
svæði er mjög víða glóð í jörðu sem
getur við minnsta tilefni orðið að
eldi. Hún er svo þurr jörðin að þó
að við dælum einhverjum hundr-
uðum tonna á í dag er það svæði
orðið þurrt á morgun og tilbúið að
taka í sig glóð aftur.“ ipg@mbl.is
Barátta Haugsugu beitt gegn eld-
inum í Súðavíkurhreppi.
Enn bar-
ist við
sinuelda
Reynt að fá þyrlu
LHG til Súðavíkur
Frænkurnar Sæbjörg og Jana frá Ólafsvík voru
ásamt fjölda annarra á ferðinni á Djúpalóns-
sandi á Snæfellsnesi í miklu blíðviðri um versl-
unarmannahelgina. Þar höfðu þær raðað stein-
völum listilega upp og nutu sín í fjörunni, sem er
meðal áhugaverðra staða í þjóðgarðinum.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Upprennandi listamenn á Djúpalónssandi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ályktunin sem má draga af þessari
úttekt á rekstri Hörpu er að flókið
stjórnkerfi í kringum reksturinn
verður til þess að upplýsingar ganga
ekki greiðlega milli hagsmunaaðila
og ákvarðanatakan verður máttlaus
og óskýr. Ábendingar um að tap
kynni að vera í uppsiglingu hafa ekki
fengið þá athygli sem æskilegt væri
fyrr en núna. Það hafa verið upplýs-
ingar hér og þar en heildarmyndina
hefur skort,“ segir Haraldur Flosi
Tryggvason, stjórnarmaður í Port-
usi og fleiri fé-
lögum Hörpu fyr-
ir hönd Reykja-
víkurborgar, í
tilefni af úttekt
endurskoðunar-
fyrirtækisins
KPMG á rekstri
Hörpu. Áætlað er
að hallinn verði
ríflega 400 millj-
ónir í ár. „For-
sendur rekstrarins eru í uppnámi.
Það er augljós ályktun af þessari
skýrslu. Tekjur af ráðstefnuhaldi
hafa ekki gengið eftir. Tekjulíkanið
gengur ekki upp. Á útgjaldahliðinni
var t.d. gengið út frá lægri fasteigna-
gjöldum.“
Gjöldin reyndust hærri
Hann segir mikið verk óunnið.
„Úttektin staðfestir það sem
fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa
haldið fram, þ.e. að þær forsendur
sem lagt var upp með þegar ákveðið
var að halda áfram byggingu hússins
hafa ekki gengið eftir. Nýr forstjóri
hefur það hlutverk að koma rekstr-
inum á núllið. Ég skal ekki segja
hvort bilið sé óbrúanlegt en hitt er
ljóst að það verður ekki brúað á einni
nóttu. Harpa er glæsilegt mannvirki
og á margan hátt tákn um hvað við
getum sem þjóð. En við verðum að
horfast í augu við hvernig eigi að
standa undir henni.
Óvissan er ekki síst sú hvort raun-
hæft sé að afla meiri tekna með leigu
eins og áætlunin var. Annaðhvort
hefur markaðssetning hússins sem
alþjóðlegt ráðstefnuhús brugðist eða
áætlanir um leigutekjur eru algjör-
lega ofmetnar. Hvort þær áætlanir
eru samhljóma áætlunum fyrri eig-
enda þekki ég ekki,“ segir Haraldur
Flosi, sem vill taka fram að laun fyrir
stjórnarsetu séu hófleg.
Viðvaranir vegna Hörpu
týndust í flóknu skipulagi
Stjórnarmaður í Portusi segir ljóst að rekstrargrundvöllurinn sé í uppnámi
Haraldur Flosi
Tryggvason
762
bátar fengu strandveiðileyfi á
þessu ári.
31.917
kíló var aflinn hjá Lundey ÞH 350
orðinn fyrir helgi.
‹ FJÖLGAR STÖÐUGT ›
»