Morgunblaðið - 08.08.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er byrjað að sullast yfir,“ segir
Sindri Óskarsson, viðhaldsstjóri
Fljótsdalsstöðvar. Hálslón er orðið
fullt og byrjað að renna á yfirfalli
Kárahnjúkastíflu niður í farveg Jök-
ulsár á Dal, rúmum mánuði fyrr en á
síðasta ári. Laxveiðimenn voru að
vonast eftir að fá heldur lengri tíma á
bökkum tærrar Jöklu í ár.
Gert var ráð fyrir því við hönnun
Kárahnjúkavirkjunar að Hálslón
fylltist um miðjan ágúst. Allur gang-
ur hefur verið á því enda fer rennslið
eftir aðstæðum á hálendinu. 2008 og
2009 fylltist lónið um miðjan ágúst
en ekki fyrr en rétt fyrir miðjan
september á síðasta ári og 2009.
Hins vegar fylltist lónið sérstaklega
snemma 2010, þegar það fór á yfir-
fall 28. júlí.
Starfsmenn Fljótsdalsstöðvar láta
alla íbúa við Jökulsá vita þegar lónið
er að fyllast. Það er gert í örygg-
isskyni.
Yfirfallssfossinn var ekki mikill að
sjá í gær. Litur árinnar breytist, hún
hættir að vera lítil og tær bergvatnsá
sem myndast af hliðarám og lækjum
í það að verða sú ógnvænlega jökulá
sem hún er á vissum tíma árs.
Sindri segir að það skipti ekki öllu
máli fyrir rekstur stöðvarinnar hve-
nær lónið fyllist. Aðalatriðið sé að
það nái að fyllast fyrir veturinn. Þó
nefnir hann að fok af bökkum lónsins
minnki hraðar þegar lónið fyllist
snemma.
Laxveiðiá gruggast
Frá því Jökulsá var virkjuð hefur
verið unnið að laxarækt í ánni. Lítið
er hægt að veiða í Jöklu sjálfri eftir
að Hálslón kemst á yfirfall og því
vona laxveiðimenn og veiðiréttareig-
endur að það gerist sem síðast á
sumrinu.
Aðeins nokkrir dagar eru liðnir
frá því laxastigi var tekinn í notkun
við Steinboga í Jökulsá. Það var talin
forsendan fyrir því að laxinn gengi
upp í efri hluta árinnar. Gekk það
eftir því laxinn fór strax að ganga.
Þröstur Elliðason, leigutaki Jök-
ulsár og þveráa, segir að fín veiði
hafi verið á svæðinu og meðal annars
hafi 15-20 laxar veiðst fyrir ofan
laxastigann. Hann hafði ekki heyrt
af litabreytingum á Jöklu í gær og
bendir á að þetta sé löng leið og það
taki jökulvatnið tíma að renna niður.
Hann segir að veiðin haldi áfram í
þveránum á neðri hluta veiðisvæð-
isins. Örstuttu laxveiðisumri er hins
vegar væntanlega lokið á efra svæð-
inu.
Á yfirfall mánuði
fyrr en á síðasta ári
Laxveiðimenn njóta laxastigans aðeins í fáeina daga í ár
Ljósmynd/Broddi B. Bjarnason
Fullt Aðeins var byrjað að sullast yfir Kárahnjúkastíflu síðdegis á mánudag. Í gær byrjaði jökulvatnið að renna.
Samtals bárust sjö umsóknir um
embætti tveggja dómara við
Hæstarétt Íslands sem auglýst
voru laus til umsóknar í byrjun
síðasta mánaðar en umsóknar-
fresturinn rann út 1. ágúst síðast-
liðinn.
Athygli vekur að hjónin Brynjar
Níelsson hæstaréttarlögmaður og
Arnfríður Einarsdóttir, dómari við
héraðsdóm Reykjavíkur, sækja
bæði um. Að sögn Sigurðar Líndal,
prófessors emeritus, leiðir það af
eðlilegri túlkun á ákvæði 4. gr.
dómstólalaga að ekki er hægt að
skipa þau bæði í einu í embætti
hæstaréttardómara. „Ég held að
ég geti fullyrt það að þetta hafi
aldrei komið fyrir áður,“ segir Sig-
urður, spurður hvort um einsdæmi
sé að ræða, og bætir við: „Ég hef
ekki rannsakað þetta en ég er
99,99 prósent viss um það.“
„Þetta er svo sem eðlilegur
gangur hjá þeim sem hafa stundað
lögfræði í langan tíma. Ég tel mig
hafa ákveðna hluti fram að færa
og hef metnað fyrir þessu. Það er
ekkert öðruvísi með mig en aðra
sem sóttu um. Við hjónin erum
með ólíkan bakgrunn í lögfræði og
sækjum í rauninni um starfið
hvort á sínum forsendum. Það
hafa margir bent á að það eru ekki
margir lögmenn í Hæstarétti og að
rétturinn sé of einhæfur. Það er
kannski helsta ástæðan fyrir því
að ég sæki um,“ sagði Brynjar í
samtali við blaðamann mbl.is í
gær.
Auk þeirra hjóna sóttu eftirfar-
andi um embættin tvö: Ása Ólafs-
dóttir, lektor við lagadeild Háskóla
Íslands, Benedikt Bogason, settur
hæstaréttardómari, Helgi I. Jóns-
son, settur hæstaréttardómari, og
Ingveldur Þ. Einarsdóttir, dómari
við héraðsdóm Reykjavíkur. Skip-
að verður í embættin frá og með 1.
október 2012. skulih@mbl.is
Sjö sækja um
í Hæstarétti
Hjón sækja um hin tvö lausu embætti
Brynjar
Níelsson
Arnfríður
Einarsdóttir
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Portúgalski flugherinn mun sinna
loftrýmisgæslu við Ísland frá 13.
ágúst næstkomandi en þá hefst á ný
loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins við landið. Frá þessu
err greint á vefsíðu Landhelgisgæslu
Íslands.
Í heild munu 60 til 70 liðsmenn
portúgalska flughersins taka þátt í
verkefninui. Þá mun portúgalski
flugherinn notast við samtals sex
orrustuþotur af gerðinni General
Dynamics F-16 Fighting Falcon við
loftrýmisgæsluna. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landhelgisgæslunni
má síðan gera ráð fyrir aðflugsæf-
ingum að varaflugvöllum á Akureyri
og mögulega Egilsstöðum dagana
15.-17. ágúst næstkomandi.
Að sögn Hrafnhildar Stef-
ánsdóttur, upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslunnar, munu liðs-
menn portúgalska flughersins
koma hingað til lands á næstu dög-
um en hún segir þó mesta fjöldann
koma hingað næstkomandi mánu-
dag þegar loftrýmisgæslan hefst.
Þá segir Hrafnhildur portú-
galska hópinn frekar lítinn miðað
við það sem áður hefur tíðkast.
„Hópurinn er fámennari en oft
áður. Bandaríkjamenn hafa t.d.
verið með fjórar þotur og alveg 150
manns, en þá hafa þeir líka verið
með svona leitar- og björgunar-
flugvél,“ segir Hrafnhildur og bæt-
ir við: „Það er misjafnt hversu
mikinn mannafla þessar þjóðir
senda.“
Að sögn Hrafnhildar lýkur
verkefninu um miðjan september.
„Það verður ekki meiri loftrým-
isgæsla á þessu ári,“ segir Hrafn-
hildur aðspurð hverjir taki við
gæslunni af portúgalska flug-
hernum.
Blogga um loftrýmisgæsluna
Á heimasíðu portúgalska flug-
hersins hefur verið sett upp sér-
stök bloggsíða þar sem hægt er að
fylgjast með framgangi verkefn-
isins. Samkvæmt upplýsingum sem
finna má á síðunni er ætlunin að
birta þar stöðugt upplýsingar um
verkefnið og framgang þess.
Áhugasömum er bent á að fylgjast
með uppfærslum á síðunni en hana
má nálgast með því að fara inn á
eftirfarandi slóð: www.emfa.pt/
iceland.
Portúgalar sjá um loftrýmisgæslu
Ljósmynd/Portúgalski flugherinn
Portúgalskir hermenn Hópur liðsmanna portúgalska flughersins sem mun sjá um loftrýmisgæslu hér á landi.
Síðasta loftrým-
isgæslan við Ísland
á þessu ári
Miðlunarlón Landsvirkjunar
hafa nú náð 92% fyllingu,
þrátt fyrir að vatn hafi runnið
óhindrað í farvegi Jökulsár í
Fljótsdal og efri hluta Þjórsár
frá því í maí. Í lok júlí var kom-
inn verulegur kraftur í jökul-
árnar og nokkuð víst að öll
miðlunarlón muni fyllast í sum-
ar, samkvæmt upplýsingum
Landsvirkjunar.
Góð staða lónanna er rakin
til góðs rennslis sl. haust og
vetur og kröftugra vorleysinga.
Þeir sem veiða í Blöndu
þurfa að búa sig undir að
Blöndulón fyllist og áin grugg-
ist. Fyrir helgi vantaði 80
sentímetra upp á og búist við
að það færi á yfirfall um miðj-
an ágúst.
Þórislón er nánast fullt og
verður ekki fyllt meira vegna
framkvæmda við Búðarháls.
Blöndulón er
að fyllast
NÆGAR VATNSBIRGÐIR
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út á tíunda tímanum í gær-
kvöldi til að sækja veikan mann um
borð í skemmtiferðaskipið Saga
Sapphire, en maðurinn, sem er með-
limur í áhöfn skipsins, hafði fengið
hjartaáfall.
Skipið var statt úti fyrir Langa-
nesi. Þegar blaðið fór í prentun var
áætlað að þyrlan yrði komin á vett-
vang skömmu fyrir miðnætti. Þá var
læknir með í för en samkvæmt upp-
lýsingum frá stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar var reiknað með að mað-
urinn yrði fluttur á sjúkrahús á
Akureyri eða í Reykjavík ef nauðsyn
krefði.
Að sögn Lárusar Petersen, varð-
stjóra hjá slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, voru tveir farþegar
skemmtiferðaskipsins Celebrity Ec-
lipse, sem liggur í Reykjavíkurhöfn,
fluttir á sjúkrahús í gær. Aðspurður
hvort mikið sé um sjúkraflutninga úr
skemmtiferðaskipum segir hann svo
ekki vera en slíkt komi þó fyrir.
skulih@mbl.is
Þyrluútkall frá
farþegaskipi
Þrír farþegar fluttir á sjúkrahús í gær
Veikindi Skemmtiferðaskipið Saga
Sapphire var á leið til Akureyrar.