Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 19

Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 19
Barua, greinanda hjá fjárfestingar- bankanum Sanford C. Bernstein. Ásakanirnar í garð Standard Chartered komu mörgum í opna skjöldu í ljósi þess að bankinn hefur hingað til verið talinn ein af fáu stóru fjármálastofnunum á Bret- landi sem hefur tekist að viðhalda orðspori sínu meira og minna ósködduðu frá því að fjármála- kreppan skall á haustið 2008. Það má þó fyrst og fremst rekja til þess að þrátt fyrir að höfuðstöðvar bank- ans séu í London þá eru umsvif hans að stærstum hluta í nýmarkaðs- löndum – og þá ekki síst í Asíu, þar sem meirihluti tekna bankans kem- ur frá. AFP Hneyksli Bankinn hefur hingað til verið einn af þeim fáu í Bretlandi sem tekist hefur að viðhalda orðspori sínu ósködduðu eftir fjármálakreppuna. FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Prófaðu eitthvað nýtt, settu ofinn vinyl á gólfið ● Gistinætur á hótelum í júní voru 202.500 samanborið við 178.800 í júní 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 86% af heildarfjölda gistinátta í júní en gistinóttum þeirra fjölgaði um 13% samanborið við júní 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga einnig um 13%, samkvæmt frétt Hagstof- unnar. Gistinóttum fjölgaði í öllum lands- hlutum, á höfuðborgarsvæðinu voru um 133.100 gistinætur í júní sem er fjölgun um tæp 15% frá fyrra ári. Gisti- nætur á Austurlandi voru 9.300 og fjölgaði um 19%. Á Suðurlandi voru 26.000 gistinætur í júní sem er rúm- lega 12% aukning samanborið við 2011. Gistinóttum á hótelum fjölgar um 13% í júní ● Gissur Péturs- son, forstjóri Vinnumálastofn- unar, kveðst nokk- uð bjartsýnn á að í haust og í vetur verði áfram þörf fyrir þann starfs- kraft sem hafi fengið vinnu í vor og í sumar. Hann telur að verslunar- og þjónustugeirinn sé að taka við sér. Hann segir í samtali við mbl.is, að það sé hins vegar erfitt að segja til um það með vissu hvort atvinnulífið sé að rétta úr kútnum eður ei. Nánar á mbl.is. jonpetur@mbl.is Vonar að störfin séu komin til þess að vera Gissur Pétursson ● Smásala í Bretlandi varð meiri í júlí- mánuði samanborið við sama mánuð í fyrra þar sem Ólympíuleikarnir hófust í Lundúnum í lok júlí. Áhrifanna af Ól- ympíuleikunum gætir m.a. með því að sala á mat og drykkjarvöru jókst um- talsvert í lok júlímánaðar. Hagvöxtur í Bretlandi mældist aftur neikvæður á öðrum ársfjórðungi 2012, en búist er við að Ólympíuleikarnir muni ýta undir hagvöxt í Bretlandi, samkvæmt IFS. Jákvæð áhrif ÓL á smásölu í Lundúnum Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,3 milljarða króna og inn fyrir 46,9 milljarða króna fob (50,5 millj- arða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,4 milljarða króna. Í júní 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 8,8 milljarða króna á sama gengi, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands frá í gær. Fyrstu sex mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 313 millj- arða króna en inn fyrir 281,7 millj- arða króna fob (303,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskipt- unum við útlönd, reiknað á fob verð- mæti, sem nam 31,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hag- stæð um 48,4 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 17,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður. Mest aukning í útflutningi sjávarafurða Fyrstu sex mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 11 millj- örðum eða 3,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðar- vörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,1% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, að- allega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski. Innflutningur jókst um 11,1% Fyrstu sex mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 28,2 milljörðum eða 11,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og elds- neyti. Þá kemur fram í frétt frá Hag- stofu Íslands samkvæmt bráða- birgðatölum að vöruskipti við útlönd í júlímánuði hafi verið hagstæð um 3,5 milljarða króna. Vöruskipti hagstæð um 4,4 milljarða  Jákvæður vöruskiptaafgangur minnkar jafnt og þétt Morgunblaðið/Ómar Innflutningur Fyrstu sex mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutn- ings 28,2 milljörðum eða 11,1% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. ● Álverð hefur farið nokkuð hratt lækk- andi undanfarna mánuði og stendur nú í innan við $1900/tonn. Það er um 20% lægra en það var þegar ál var hvað dýrast í byrjun mars ($2353/tonn) og hefur lækkað um 7% frá áramótum (úr $2020/tonn), samkvæmt því sem fram kemur í Markaðspunktum Arion banka í gær. Þetta skýrist einkum af bakslagi í efnahagsbata Vesturlanda og veikari eftirspurn í Asíu en fyrirséð var. Álverð hefur lækkað um 7% frá áramótum Facebook greindi frá því í Lund- únum í gær, að fyrirtækið hefði ákveðið að selja bingó á vefsíðu sinni. Til að byrja með verður bingó- salan eingöngu föl viðskiptavinum í Bretlandi sem eru 18 ára og eldri. Facebook hóf þessa markaðs- starfsemi sína í gær og stefnir að því á næstu vikum, að bæta einnig við spilakössum á netinu. „Fjárhættuspil er mjög vinsælt í Bretlandi og regluverkið í kring- um það er gott,“ sagði Julien Co- dorniou, leikjastjóri Facebook í Evrópu, Miðausturlöndum og Afr- íku, þegar áform Facebook voru kynnt í gær, en Facebook hefur leitað leiða til að auka tekjur sín- ar, eftir misheppnaða markaðs- setningu í maímánuði, þar sem hlutabréf félagsins hríðféllu í verði og hafa haldið áfram að falla. Bingó Facebook markaðssetur nú bingó fjárhættuspil í Bretlandi. Facebook býður upp á bingó á netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.