Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 30

Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 Frá litlu systur Sunna var næstelsta stelpan í systkinahópnum í Hveramörk 4 í Hveragerði. Stórt einbýlishús með fallegum grónum garði, heitum potti, bílskúr og garð- skála. Í minningunni eru allar dyr opnar, sólríkt og lygnt, bull- andi líf og læti í húsinu, allir við sitt en þó saman. Sunna átti Svanhvít Sunna Erlendsdóttir ✝ SvanhvítSunna Erlends- dóttir fæddist í Reykjavík 6. júní 1976. Hún lést á heimili sínu í Kaup- mannahöfn 19. júlí 2012. Sunna var jarð- sungin frá Háteigs- kirkju 2. ágúst 2012. miðjuherbergið á efri hæðinni, flott- asta herbergið, með flottu húsgögnun- um sem hún hafði safnað sér fyrir og keypt sjálf, speglar og flottustu plaköt- in úr Bravo-blöðun- um þöktu hvern einasta fermetra. Heitasta 80’s-tón- listin ómaði bak við luktar dyr. Vöfflujárnið í sam- bandi og allt að gerast. Í gegn- um óminn af tónlistinni mátti greina mannamál og hlátrasköll vinkvennanna. Þarna inni var eitthvað merkilegt um að vera, yngri systkinin skynjuðu það strax. Við héngum á hurðinni í tíma og ótíma til að reyna að fá að kíkja inn og taka þátt í því, Sunnu til mikillar armæðu. En þegar það gerðist var það æð- islegt; að vera partur af þessum ævintýraheimi í Sunnu herbergi var mest töff af öllu. Ég man ennþá þegar ég sat á svarta snúningsstólnum við skrifborðið hennar, horfði í spegilinn og Þórhildur vinkona Sunnu setti vöfflur í hárið á mér. Ekki nóg með það heldur varð ég ofan á allt vitni að unglings- stelpu-trúnósamtali. Mér leið í bland eins og ég hefði verið út- valin en líka eins og laumufar- þega, ég hef verið um níu ára. Sunna var alltaf töff og flink í öllu sem var „inn“ á þessum tíma, sérstaklega í dansi og íþróttum, hún átti meira að segja íþrótta-heilgalla, bláan með hvítum röndum, og kínaskó. Hún hætti að borða fisk og þá ákvað ég að hætta að borða fisk. Hún vildi bara cheerios, þá vildi ég það bara líka. Hún var eldri systir, fyrirmynd. Svo urðum við eldri, fluttum á Hvolsvöll, þar sem ég steig inn í mín unglings- ár. Ég man bara eftir mér inni í herberginu, ekki utan þess, ég mátti loksins vera með. Pearl Jam hljómaði öllum stundum, hún var með svart stutt hár, dökka augnmálningu, í Levis- buxum og grófum peysum sem náðu vart niður fyrir nafla. Þar inni sat ég fyrir mitt fyrsta ball, Sunna hafði dressað mig upp og málað á mér andlitið. Ég hafði aldrei fyrr upplifað mig jafn- sæta á ævinni, hún umbreytti mér á einu augnabliki frá barni yfir í stelpukonu. Upp frá því vorum við systurnar, ég, Sunna og María, í ósögðum sáttmála um að vera teymi. Þrátt fyrir aldursmuninn, ólíkan smekk og skoðanir vorum við systur sem sögðum hver annarri allt og hylmdum yfir því gagnvart um- heiminum sem yfir þurfti að hylma. Þegar á reyndi voru þessi bönd á milli okkar sterkari en öll önnur vinasambönd, ást milli systkina er skrítin. Í okkar hópi á hún sér margar birting- armyndir, ýmist í gjörðum eða augnaráðum, aðra eins vináttu er ekki hægt að þróa. Samband milli systkina er eilíft, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Ást milli systkina er ekki hægt að eyðileggja, hún lifir svo lengi sem þau lifa. Út yfir dauðann? Sumir trúa því. En eitt er víst, að ástarjátning á blaði er eilíf, svo lengi sem pappírinn varð- veitist. Ég skrifa á þennan að ég elskaði Sunnu, ég hvíslaði því í eyra hennar þar sem ég kvaddi hana í kistunni sinni í morgun. Hún heyrði það eflaust ekki en ég veit að í hjarta sínu vissi hún það. Ágústa Eva Erlendsdóttir. Kveðja frá skólasystrum Elsku Sigurdís, Erlendur, Sveinn, María, Ágústa Eva, Finnbogi og Daníel. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Guð blessi ykkur og varðveiti. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Kveðja, Anna Þóra, Ása Björk, Edda, Fanney, Harpa og Hugrún. Ég vil með nokkru stolti minnast tengadamóður minnar Sigurlaugar Eggertsdóttur sem var fædd á Vindheimum í Skagafirði árið 1914. Stella eins Sigurlaug Auður Eggertsdóttir ✝ Sigurlaug Auð-ur Eggerts- dóttir fæddist á Vindheimum í Lýt- ingsstaðahreppi í Skagafirði 9. júní 1914. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 23. júlí 2012. Útför Sig- urlaugar fór fram frá Fossvogskirkju 1. ágúst 2012. og hún var ávallt kölluð var alla tíð heimavinnandi hús- móðir og fór ekki hjá því að barna- börn hennar nytu góðs af því. Það á ekki síst við um okkar fjölskyldu þar sem eftir lát manns hennar Boga Sigurðssonar eignuðumst ég og mín fjölskylda hús með Stellu sem reyndist okkur ómetanlegt þar sem dóttir okkar, þá sex ára, var að byrja í skóla. Var þá gott að geta komið heim til ömmu þannig að manni fannst á stundum að við nytum forrétt- inda í fjölskyldunni. Stellu virtist aldrei vanta verkefni, hún stofnaði ásamt fleiri konum sem átt höfðu heima í Vestmannaeyjum Kven- félagið Heimaey en einnig gekk hún til starfa með Thorvald- sensfélaginu og var þar í starfi og stjórn í áratugi. Hún var einnig mikilvirk prjónakona og það er ábyggilega ekki til tala á því hvað margar lopapeysur hún prjónaði fyrir flestalla með- limi fjölskyldunnar og aðra þá er henni tengdust. Einnig prjónaði hún mikið af peysum sem fóru til sölu á basar Thor- valdsensfélagsins þar sem hún starfaði við afgreiðslu á basar félagsins eftir þeirra reglum og hún naut sín ábyggilega mjög vel í því starfi sem félagið stendur fyrir; að geta rétt þeim hjálparhönd sem standa höllum fæti í lífsbaráttunni. Mig langar að skjóta því hér inn að Stella átti ekki langt að sækja það að vija rétta öðrum hjálparhönd því ég átti því láni að fagna að búa í húsnæði hjá Elínu móður Stellu sem þá var orðin mjög fullorðin og reyndist hún mér frábærlega þótt á þeim tíma hafi ég ekki verið orðinn tengdur fjölskyldunni. Ég vildi reyna að gera henni greiða eftir bestu getu sem reyndist helst felast í því að fara vítt og breitt um bæinn með gjafir til fólks sem líklega þurfti á aðstoð að halda. Mér varð stundum hugs- að: Mikil ósköp þekkir hún af fólki sem aðstoðar þarf, en þannig finnst mér gott að minn- ast tengdamóður minnar og móður hennar sem reyndust mér betur en orð fá lýst. Ég vil að lokum þakka henni fyrir það tímabil sem við áttum samleið sem spannar orðið meira en hálfa öld og gott að vita til þess að eins og hún sagði svo oft hlakkaði hún til að komast til að hitta sitt fólk sem hún var sannfærð um að biði sín. Páll Samúelsson. Fallinn er frá einn af mínum bestu vinum, Grét- ar Þ. Hjaltason. Við ólumst upp á Selfossi þeg- ar lítið sveitaþorp var að þreifa fyrir sér að verða kaupstaður. Þá þekktu allir alla og allir hjálpuð- ust að að byggja yfir sig og sína Grétar Þórir Hjaltason ✝ Grétar ÞórirHjaltason fæddist á Selfossi 9. apríl 1947. Hann andaðist á Kumbaravogi 25. júní 2012. Jarðsetning hans fór fram í kyrrþey hinn 13. júlí 2012 í Selfosskirkjugarði. þegar búið var að fá úttektarheimild hjá Agli kaupfélags- stjóra. Allir voru jafnir nema í fót- boltanum, þar var Siggi á Grund best- ur. Við Grétar tókum þátt í því að reka lít- ið fótboltafélag fyrir stráka þar sem ung- mennafélagið lá í dvala um þessar mundir, þar sem við urðum að sjá um allt sjálfir varðandi æfingar, búninga og ferðir. Þegar gerð var heimildar- mynd um sögu knattspyrnunnar á Selfossi hálfri öld síðar var farið á fund Grétars, þar sem hægt var að fletta upp í honum fram og aft- ur, enda var hann stálminnugur og hefði hann leikið sér að lang- skólanámi hefði hugur hans stefnt í þá veru. Þegar unglingsárin færðust yfir vildum við verða gæjar. Grét- ar gerði eitthvað í því þar sem hann keypti gítar og magnara. Einnig þorði hann að syngja eins og Presley í Þjórsárveri og kraft- miklir kaggar fóru í Krossinn og Keflavík. Grétar bjó yfir listrænum hæfileikum. Oft hélt hann heilu hópunum í gíslingu þegar hann fór á kostum með efirhermum og gamanmálum. Hann var drátt- hagur vel og er það mörgum minnisstætt þegar hann teiknaði þá Kennedy og Krúséff á myndir sem sýndar voru í Barnaskólan- um á Selfossi. Síðan hélt Grétar út í náttúruna og málaði myndir á striga sem hann sýndi á mál- verkasýningum. Um árabil sendi hann okkur hjónum jólakort sem voru lítil málverk er sýna kyrr- láta vetrarfegurð. Einnig lét hann af hendi margar myndir sem boðnar voru upp á herra- kvöldum knattspyrnumanna á Selfossi. Trúr og tryggur var Grétar vinum og ættingjum, vissi afmæl- isdaga heilu ættbálkanna og lét í sér heyra. Fram eftir öllum aldri héldu börnin okkar að Grétar væri frændi þeirra, svo náin voru þau honum. Sumarið 2010 ókum við Grétar um sveitir Suðurlands þar sem hann réð ferðinni. Hann átti þá orðið erfitt um gang, en vildi sýna mér þann stað á Suður- landi þar sem sjá mátti yfir allt Suðurland. Við keyrðum upp á Krosshól í Holtum, og sjá; Grétar stóð við stóru orðin. Nú er útsýnið heimurinn allur og Grétar er allur en minningin um góðan dreng lifir. Við Alda sendum vinum og ættingjum samúðarkveðjur. Marteinn Sigurgeirsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA LÚÐVÍKSDÓTTIR, fyrrverandi kennari, Þúfubarði 2, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Gunnar Geirsson, Guðfinna Kristjánsdóttir, Lúðvík Geirsson, Hanna Björk Lárusdóttir, Hörður Geirsson, Jóhanna S. Ásgeirsdóttir, Ásdís Geirsdóttir, Jón Páll Vignisson, Þórdís Geirsdóttir, Guðbrandur Sigurbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, KRISTÍN HALLVARÐSDÓTTIR ENGEL, lést á heimili sínu í Kaliforníu 23. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 9. ágúst kl. 15.00. Harry Engel, Suzanne Frye-Engel, Justin Engel, Laura Bridwell-Engel, Runa Engel Magowan, Tom Magowan, barnabörn og systur hinnar látnu. ✝ HALLDÓR JÓNSSON ökukennari, Hlíf I, Torfnesi, Ísafirði, lést af slysförum sunnudaginn 29. júlí. Jarðsett verður frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 14.00. Sasiprapha Udomsup (Kathy), Ása Sigurlaug Halldórsdóttir, Einar Óskarsson, Einar Halldórsson, Gunnar Þorsteinn Halldórsson, Fríður María Halldórsdóttir, Þórður Marelsson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og mágs, JÓNS HJÖRLEIFSSONAR Kimbastöðum, Skagafirði, sem lést þriðjudaginn 17. júlí og var jarðsettur laugardaginn 28. júlí. Sigurþór Hjörleifsson, Unnur Hjörleifsdóttir, Svavar Hjörleifsson, Guðrún Antonsdóttir, Hróðmar Hjörleifsson, Reynir Hjörleifsson, Sigríður K. Skarphéðinsdóttir, börn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir vinir og vandamenn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR J. PÁLSDÓTTIR, Fróðengi 1, Reykjavík, lést á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 3. ágúst. Útför verður auglýst síðar. Hjörtur Ingi Vilhelmsson, Vilborg Sigrún Ingvarsdóttir, Jóhanna Elísabet Vilhelmsdóttir, Sigurjón B. Sigurjónsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Okkar ástkæra AGÐA VILHELMSDÓTTIR, Mávahlíð 19, Reykjavík, lést á deild L4 Landakoti þriðjudaginn 31. júlí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 14. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Soffía Guðnadóttir. ✝ FJÓLA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Laufási, Vestmannaeyjum, Karfavogi 23, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 31. júlí. Útförin fer fram í Langholtskirkju fimmtu- daginn 9. ágúst kl. 13.00. Gísli B. Björnsson, Lena Margrét Rist, Martha Clara Björnsson, Gunnar Már Hauksson, Ásta Kristín Björnsson, Sverrir Guðmundsson,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.