Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 35
Hrannar er mikill áhugamaður
um tónlist og var níu ára er hann
lék með sinni fyrstu skóla-
hljómsveit í Grundaskóla. Hann
lék síðan á bassa með fjölda hljóm-
sveita á Akranesi og í Reykjavík.
Fékk áhuga á ljósmyndun
vegna barnanna sinna
Aðaláhugamál Hrannars á
undanförnum árum er hins vegar
ljósmyndun:
„Ég fékk áhuga á ljósmyndun
þegar ég uppgötvaði að ég hafði
ekki tekið jafngóðar myndir af
börnunum mínum og teknar höfðu
verið af mér þegar ég var krakki.
Ég var nú ekki alveg sáttur við
það, fór þess vegna og fjárfesti í
betri myndavél, tók að lesa mér til
um ljósmyndun og náði mun betri
myndum af blessuðum börnunum
en ég hafði tekið áður.
Þegar hér var komið sögu fór ég
að taka myndir af hinu og þessu
sem varð á vegi mínum og síðan
hef ég verið að taka myndir, út og
suður.
Ég er auðvitað bara áhuga-
ljósmyndari en ég held að ég hafi
eitthvað í mér sem a.m.k. gerir
það að verkum að mér finnst þetta
afar skemmtilegt.
Ég hafði starfað á auglýsinga-
stofu um skeið þar sem ég vann
töluvert með ljósmyndir, m.a. í
Photoshop, en sú reynsla hefur lík-
lega hjálpað mér af stað.
Ég tek nú orðið aðallega lands-
lags- og náttúrumyndir, hef tekið
þátt í mörgum ljósmyndakeppnum
og unnið í mörgum slíkum keppn-
um, m.a. þrjár af fjórum ljós-
myndakeppnum um myndaseríur
af Viðey sem haldnar voru á veg-
um Eldingar.
Ég hef ekkert farið út í að
markaðssetja þessar myndir en
hef þó selt nokkrar í gegnum tíð-
ina, og tók m.a. myndir fyrir
Volkswagen í Svíþjóð hérna um ár-
ið.
Enn sem komið er hef ég þó
fyrst og fremst gaman af þessu og
starfa t.d. töluvert með Vitanum,
nýstofnuðu félagi áhugaljósmynd-
ara á Akranesi.“
Fjölskylda
Eiginkona Hrannars er Alda
Björk Guðmundsdóttir, f. 5.11.
1978, íslenskufræðingur og
hjúkrunarfræðingur. Hún er dóttir
Guðmundar Sæmundssonar forn-
bókasala, sem er látinn, og Sigrún-
ar Finnsdóttur, fyrrv. matráðs-
konu við leikskóla.
Dætur Hrannars og Öldu Bjark-
ar eru Sigrún Freyja, f. 4.5. 2003;
Álfrún Embla, f. 23.5. 2007; og
Vala Rún, f. 19.8. 2010.
Systur Hrannars eru Sara Björk
Hauksdóttir, f. 7.1. 1977, ljósmóðir,
búsett í Uppsölum í Svíþjóð; Mar-
en Ösp Hauksdóttir, f. 9.3. 1979,
hjúkrunarfræðingur, búsett í Mil-
ton Keynes á Englandi.
Foreldrar Hrannars eru Haukur
Hannesson, f. 17.3. 1953, húsa-
smíðameistari á Akranesi, og Sig-
ríður Svavarsdóttir, f. 9.6. 1954,
sjúkraliði.
Úr frændgarði Hrannars Arnar Haukssonar
Karl Guðmundsson
verkam. á Akranesi
Sigrún Áskelsdóttir
húsfr. á Akranesi
Jón Guðmundsson
framkvæmdastj.
Sjúkrasamlags Akraness
Sigríður Steinsdóttir
frá Borgarfirði eystra
Sigríður Einarsdóttir
húsfr. á Akranesi
Bergur Arnbjörnsson
bifreiðaeftirlitsm. á Akranesi
Sara Ólafsdóttir
húsfr. á Akranesi
Hrannar Örn
Hauksson
Haukur Hannesson
húsasmíðam. á Akranesi
Sigríður Svavarsdóttir
sjúkraliði á Akranesi
Unnur Jónsdóttir
húsfr. á Akranesi
Svavar Karlsson
verkam. við Sementsverksm.
Þorgerður Bergsdóttir
húsfr. á Akranesi
Hannes L. Hjartarsson
verkam. á Akranesi
Hjörtur Hannesson
sjóm. á Akranesi
Afmælisbarnið Hrannar Örn.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Pétur Ólafsson, forstjóri Ísa-foldar, fæddist í Reykjavíkfyrir einni öld, 8.8. 1912.
Hann var sonur Ólafs Björnssonar,
ritstjóra Ísafoldar og forstjóra Ísa-
foldarprentsmiðju og annars stofn-
anda Morgunblaðsins, og k.h., Borg-
hildar Pétursdóttur Thorsteinsson
húsfreyju.
Föðurbróðir Péturs var Sveinn
Björnsson forseti. Föðurforeldrar
Péturs voru Björn Jónsson, ritstjóri
og forstjóri Ísafoldar, alþm. og ann-
ar ráðherra Íslands, og Elísabet
Sveinsdóttir.
Móðurforeldrar Péturs voru Pét-
ur Jens Thorsteinsson, kaupmaður
og útgerðarmaður á Bíldudal, og
Ásthildur J.G. Thorsteinsson.
Pétur lauk stúdentsprófi frá MR
1931, lauk cand.rer.pol.-prófi í hag-
fræði frá Christian-Albrechts-
Universität í Kiel 1934 og stundaði
framhaldsnám við London School of
Economics and Political Science.
Pétur var blaðamaður við Morg-
unblaðið á árunum 1935-42 og 1953-
55. Þá var ritstjórn þess enn til húsa
í Ísafoldarhúsinu við Austurstræti
(sem nú hefur verið flutt í Aðal-
stræti). Hann sinnti þó lengst af
fyrirtækjarekstri, var forstjóri
Sænsk-íslenska verslunarfélagsins
1942-53 og forstjóri Ísafoldarprent-
smiðju hf., Bókaverslunar Ísafoldar
og Ritfangaverslunar Ísafoldar
1955-69.
Pétur var þó alla tíð mjög áhuga-
samur um Morgunblaðið og íslenska
blaðamennsku almennt og hafði um-
talsverð áhrif á ritstjórnarstefnu og
þróun fréttaskrifa Morgunblaðsins.
Hann var formaður Blaðamanna-
félags Íslands 1938-42.
Eiginkona Pétur var Þórunn
Magnúsdóttir Ólafsson, f. Kjaran.
Börn Þórunnar og Péturs: Magn-
ús, lengst af skrifstofumaður í
Reykjavík; Ólafur, var deildarstjóri
í félags- og heilbrigðisráðuneytinu í
Osló; Soffía, húsfreyja í Reykjavík;
Pétur Björn hagfræðingur og Borg-
hildur, skrifstofumaður í Reykjavík.
Pétur var þægilegur og vinsam-
legur í viðkynningu, hress í viðmóti
og góður leiðbeinandi sér yngri
blaðamönnum. Hann lést 17.2. 1987.
Merkir Íslendingar
Pétur
Ólafsson
103 ára
Ingrid Sigfússon
90 ára
Júlíus Sigurðsson
Rut Guðmundsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
85 ára
Guðmundur Eggertsson
Ingólfur Ólafsson
Sigríður Kristjánsdóttir
Sigrún Bergþórsdóttir
80 ára
Anna Erlendsdóttir
Guðjón Hermann
Hannesson
Haflína Ásta Ólafsdóttir
Halldór V. Vilhjálmsson
Jón Gíslason
Kristinn Tryggvason
Kristín Karlsdóttir
75 ára
Auður Torfadóttir
Sigurður Sigurþórsson
Örn Brynþór Ingólfsson
70 ára
Ágústa Snorradóttir
Ásta Kristinsdóttir
Baldur Ásgeirsson
Bogey Ragnheiður
Jónsdóttir
Guðjón H. Hjaltason
Guðmundur I Eiríksson
Helga Sigurðardóttir
Ingólfur Karlsson
Rúnar Björgvin Jóhannsson
Þóra Jóhannesdóttir
60 ára
Bryngeir Ásbjörnsson
Brynjólfur Sigurðsson
Guðjón Heimir Sigurðsson
Hrefna Steinsdóttir
Ingibjörg A. Snævarr
Liudmila Titova
50 ára
Baldur Guðjón Þórðarson
Baldur Pálmi Erlingsson
Íris Ingvarsdóttir
Loryane Björk Jónsson
María Sigurðardóttir
Ragnar Frank Kristjánsson
Sólveig Mikaelsdóttir
Steinn Ólafur Grétarsson
Valur Júlíusson
40 ára
Arnar Geir Sverrisson
Arnór Gauti Helgason
Elin Olsen
Guðbjörg Kristín
Bárðardóttir
Jón Ágúst Ólafsson
Karl Pálsson
Kolbrún Jóhannsdóttir
Kolbrún Sigurðardóttir
Vigdís Lillý Sigurjónsdóttir
30 ára
Arndís Vilhjálmsdóttir
Damian Dobrowolski
Guðlaug Björk Eiríksdóttir
Guðrún Ósk Lindquist
Jóhanna Dögg Olgeirsdóttir
Patryk Krzysztof Sieger
Ragnheiður Gísladóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Katrín stundar
nám í viðskiptafræði við
Háskólann á Bifröst, býr á
Blönduósi og starfar hjá
sýslumanninum þar.
Maki: Zophonías Ari Lár-
usson, f. 1975, smiður og
framkvæmdastjóri.
Synir þeirra: Pétur Ari, f.
26.6. 2002; Arnar Ben, f.
11.9. 2006.
Foreldrar: Benedikt
Hrafnss., f. 1960, skipstj..,
og Guðrún Kjartansd., f.
1961, bankastarfsm.
Katrín
Benediktsdóttir
40 ára Úlfhildur ólst upp í
Ólafsvík, lauk tannlækna-
prófi frá HÍ og rekur stofu í
Garðabæ.
Maki: Gunnar Tryggvason,
f. 1969, verkfræðingur og
aðstoðarmaður
fjármálaráðherra.
Börn: Leifur Steinn; Dýr-
leif Lára; Vésteinn og Daní-
el Ernir. Stjúpbörn: Tryggvi
Örn og Magnea.
Foreldrar: Leifur Hall-
dórsson, og Ragnheiður
Þorgrímsdóttir, bæði látin.
Úlfhildur Áslaug
Leifsdóttir
30 ára Bjarni fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Hafnarfirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá Fjöl-
braut í Ármúla og stundar
nú nám í íslensku við Há-
skóla Íslands.
Maki: Védís Ragnheið-
ardóttir, f. 1983, íslensku-
nemi við HÍ.
Foreldrar: Ragnheiður
Gunnarsdóttir, f. 1945,
fyrrv. skólaliði, og Ásgeir
Bjarnason, f. 1952, sölu-
maður hjá Poulsen.
Bjarni Gunnar
Ásgeirsson
mbl.is/islendingar
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
ÚTSALA
Fallegir bolir,
peysur og buxur
fyrir konur á öllum aldri
Einnig töskur og klútar
Síðustu dagar
útsölunnar
20-70%
afsláttur
Verið velkomin