Morgunblaðið - 08.08.2012, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú heldur áfram að trúa því að það
besta eigi enn eftir að koma. Mundu samt að
dagurinn í dag er mikilvægur. Erfiðleikarnir
eru bara til að yfirstíga þá.
20. apríl - 20. maí
Naut Áætlun þín þarfnast mikillar yfirlegu
áður en þú getur hrint henni í framkvæmd.
Einbeittu þér að færri málum og sinntu þeim.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er margur leyndardómurinn
sem manninn langar til að finna. Núna, eða
alveg á næstunni, muntu stíga á nýtt land-
svæði sem verður gaman að kanna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki hafa áhyggjur þótt þú eyðir deg-
inum í dagdrauma. Með lítilli fyrirhöfn gerir
þú þér lífið mun léttara.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sýndu varkárni í samskiptum við
ókunnuga. Leyfðu þó vinum að umvefja þig
þegar þú þarft á því að halda.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitt og annað virkar freistandi en það
er svo margt í lífinu sem maður verður að
neita sér um ef vel á að fara. Sýndu aðgát við
akstur eða á gangi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dragðu það fram eftir degi að ganga frá
hvers konar kaupum eða samningum. Þú
vinnur vel undir álagi og er vinsæll meðal
vinnufélaganna. Taki menn höndum saman
má ná ótrúlegum árangri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sinntu aðeins þeim málum sem
eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á
meðan. Komið er að því að horfast í augu við
nokkur úrlausnarefni. Ekki láta neikvæðnina
ná tangarhaldi á þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt ekki í vandræðum með að
tala hreint út. Í dag – ekki oft, bara í dag –
mætirðu áskorun. Taktu þér tíma til að sinna
heilsurækt og íhugun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hver er sinnar gæfu smiður og
það á við þig eins og alla aðra. Ekki taka
ásakanir annarra nærri þér því þú ert aðeins
að reyna að vera varkár.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að kanna alla málavöxtu
vandlega áður en þú myndar þér skoðun á
vandasömu máli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Kænska í peningamálum kemur sér
vel, en sýndu rausnarskap þegar ástin er
annars vegar. Taktu af skarið varðandi
ágreiningsmál sem kemur inn á þitt borð og
láttu hyggjuvitið ráða för.
Tvíhleypur nefndist vísnaþáttursem Þórarinn Eldjárn skrifaði í
Alþýðublaðið fyrir um fimmtán ár-
um. Þar má lesa felulimru fyrir
slysni eða eins og hann lýsir því:
„Limrugrey sem ég sjálfur hafði
bangað saman fatlaðist illilega ein-
hvers staðar á krókaleið sinni um
tölvupóstlúgur víðernanna, datt við
það úr ljóðlínum og þrykktist sem
argvítugasti prósi, svohljóðandi:
Er það nú Íslendingur! Endemis
vitleysingur! Þegar kemst hann til
manns verður kveðskapur hans
aldrei kallaður byssustingur.
Þetta slys laðaði fram í huga Þór-
arins tvær velþekktar feluvísur.
Önnur er eftir Andrés Björnsson:
Það er hægt að hafa yfir heilar
bögur án þess rímið þekkist þegar
þær eru nógu alþýðlegar.
Hin er eftir Guðmund Böðvarsson:
Það er ekki að efa að ef það bara
sprettur sæmilega þá er það þriggja
hesta blettur.
Limran eftir Þórarin er svona
endurreist:
Er það nú Íslendingur!
Endemis vitleysingur!
Þegar kemst hann til manns
verður kveðskapur hans
aldrei kallaður byssustingur.
Og með fylgdi skýring Þórarins:
„Hér er ort í orðastað manns sem
óttast um ferskeytluna í limrugangi
nútímans. Sér til styrkingar vitnar
ljóðmælandinn í fræga ferskeytlu
eftir áðurnefndan Andrés Björnsson
sem gjarnan er farið með til að sýna
eðli ferskeyttu lausavísunnar ís-
lensku og þau not sem af henni má
helst hafa:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í höndum
hvöss sem byssustingur.“
Svo sker hann úr um að ekki þurfi
að óttast um framtíð ferskeytlunnar.
Jóhannes úr Meðallandi yrkir fyrir
sína hönd og annarra piparsveina:
Við horfum einatt á það sama,
ef þar skyldi lagleg dama
ganga hjá í glæstum þokka;
hugsast oft, að hafa mættum
hönd í bagga’ um þetta’ og ættum
kannski’ að tosa’ í ljósa lokka!
Hjálmar Freysteinsson kastar
fram limru undir yfirskriftinni
Listaháskólanám:
Tinna hóf nám upp úr tvítugu,
sem tók hana vel fram að þrítugu,
meðal listfengra manna
að læra að hanna
lifandi úlfalda úr mýflugu.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af felulimru og vísum,
byssusting og piparsveinum
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
ÞAÐ ER SVO
HEITT!
ÍSMOLA-
SKYRTA!
GETUR VERIÐ AÐ JÓN SÉ
AÐ VERÐA GÁFAÐRI?
ÚFF!
SUM BÖRN
VITA BARA
EKKI HVAÐ ÞAU
VILJA!
EF BARN VILL EKKI FARA Í
LEIKSKÓLA EIGA FORELDRAR
EKKERT AÐ HIKA, HELDUR SENDA
ÞAÐ BARA, LÁTA ÞAÐ FARA!
ÞAÐ ER FÁRÁNLEGT AÐ BARN
ÓTTIST LEIKSKÓLA! ÉG HELD
AÐ VIÐ DEKRUM BÖRN OF
MIKIÐ NÚ TIL DAGS.
EKKI ÞETTA HUMM
OG HA! MITT MOTTÓ
ER: LÁTUM ÞAU FARA
Í SKÓLA!
HELGA! ÉG ER
KOMINN HEIM!
HANN HEFUR
GREINILEGA ÁTT
BETRI DAG EN ÉG!
EF ÞÚ KEMUR
HEIM MEÐ MÉR
LOFA ÉG ÞÉR
BESTU 11 KLUKKU-
STUNDUM OG
5 MÍNÚTUM SEM ÞÚ
HEFUR UPPLIFAÐ!
Víkverji er ginnkeyptur fyrir hug-sjón Ólympíuleikanna þótt hann
viti að hann búi í veröld, sem vonds-
lega hefur oss blekkt, vélað og tælt
og getur setið tímunum saman fyrir
framan skjáinn og horft á kúluvarp-
ara, stangarstökkvara, spretthlaup-
ara og langhlaupara freista þess að
vinna ólympíugull. Sérstaklega ligg-
ur samúð hans hjá lítilmagnanum,
þeim sem láta sér mótlætið í léttu
rúmi liggja og berjast til sigurs. En
hann gerir sér einnig grein fyrir því
að ólympíuleikarnir snúast ekki að-
eins um sigur og hafði sérstaka
ánægju af frétt, sem hann sá á Euro-
sport um kanadískan reiðmann, sem
keppir nú tíunda sinni á Ólympíu-
leikum, fyrst í München árið 1972.
Hann hefur keppt á öllum Ólympíu-
leikum síðan fyrir utan leikana í
Moskvu, sem Kanadamenn snið-
gengu, og er nú mættur til London
með hest sinn og reiðtygi.
x x x
Óvænt úrslit eru alltaf krydd í Ól-ympíuleika. Víkverji hefur hins
vegar tekið eftir því að tortryggni er
orðin svo mikil í garð íþróttamanna
að þegar ungir íþróttamenn sigra
óforvarendis tekur kór efasemda-
raddanna þegar að kyrja. Víkverji
telur að sigurvegari hafi sigrað þar
til annað kemur í ljós og þangað til
ættu menn að hafa sig hæga.
x x x
Um helgina var haldið unglinga-landsmót á Selfossi. Þar öttu
kappi krakkar af öllu landinu í ýms-
um greinum, allt frá stafsetningu til
sunds og frjálsra íþrótta. Selfyss-
ingar geta verið stoltir af fram-
kvæmd landsmótsins. Allt gekk
snurðulaust fyrir sig og sá Víkverji
ekki betur en ánægjan væri almenn.
x x x
Unglingalandsmótið er þegar ölluer á botninn hvolft smækkuð
mynd af Ólympíuleikunum. Öryggis-
gæslan er reyndar ívið minni, minna
þarf til þess að taka þátt og Selfyss-
ingar reistu ekki landsmótsþorp
heldur lögðu tjaldstæði. En liðin
ganga inn á völlinn með svipuðu
sniði í báðum tilfellum, jafningjar
etja kappi og að baki býr í raun sama
hugsun. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið oss í
Kristi Jesú og búið oss stað í him-
inhæðum með honum. (Ef. 2, 6.)
TREFJARÍKAR PRÓTEINSTANGIR
FYRIR KREFJANDI AÐSTÆÐUR