Morgunblaðið - 08.08.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Ég ákvað að vera djarfur og hugsa
fimm ár fram í tímann í tilefni af
fimmtán ára afmæli keppninnar.
Því ekki bara að stökkva frekar en
hrökkva?“ segir Georg Erlingsson
Merritt með spaugilegum tón.
Georg er framkvæmdastjóri Dragg-
keppni Íslands en hún fer fram í
kvöld kl. 21 í fimmtánda skiptið,
þetta árið í Eldborg í Hörpu.
Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og
söngkona, er kynnir keppninnar í
ár.
Keppendur í ár eru níu talsins,
fimm kóngar og fjórar drottningar.
Georg takmarkar hámarks fjölda
keppenda við tíu, einfaldlega vegna
þess að annars yrði dagskráin of
löng. Árlega eru um það bil tíu til
fimmtán keppendur sem sækja um
þátttöku. „Ég hef reynt að hafa
fyrstur kemur, fyrstur fær reglu við
að velja keppendur. Ég er ekki að
velja og hafna eins og Ungfrú Ís-
land, heldur reyni ég að sinna þeim
sem fyrstir sækja um,“ segir Georg.
„Við reynum að tryggja það að
fólk fái góða skemmtun. Það hefur
einkennt keppnina undanfarin ár að
þetta er það fyndnasta og skemmti-
legasta sem fólk sér á árinu,“ segir
Georg. Hann bætir við að eftir
keppnina munu drottningar og
kóngar leiða gesti og
áhugasama á eft-
irpartí á Gay 46.
Þaulreyndir og
taugahrúgur
Misjafnt er
hversu oft, ef nokk-
urn tímann, kepp-
endur hafa stigið á
svið í draggi. „Sumir
eru að stíga á svið í
fyrsta skipti en aðrir
hafa oft komið fram áður
á sviði, hvort sem það er
í draggi eða ekki. Þannig
mætti segja að sumir séu
þaulreyndir í sviðs-
framkomu og aðrir eru
ein taugahrúga,“ segir
Georg.
Aldur keppenda er jafn
breytilegur og reynsla
þeirra af draggi og sviðs-
framkomu. Í ár eru
keppendur á aldrinum
um það bil 18 til 35 ára,
að sögn Georgs og bætir
við að aldursbilið hafi farið
allt upp í það að vera á
bilinu 18 til 55 ára í fyrri keppnum.
„Það eru engar aldurshamlanir á
þessari keppni.“
Úr næturklúbbum
yfir í Eldborg
Georg var meðal gesta Dragg-
keppni Íslands þegar hún var fyrst
haldin árið 1997 en hún hefur verið
haldin árlega að undanskildu árinu
2004. Árið 1998 tók Georg svo fyrst
þátt í keppninni og fór með sigur af
hólmi sem draggdrottning Íslands.
Næsta ár þar á eftir, 1999, tók hann
við sem skipuleggjandi keppninnar.
„Ég er búinn að breyta þessu úr lít-
illi næturklúbbakeppni upp í alvöru
leikhús. Þetta er í raun einstök
keppni í heiminum vegna þess að
bæði kóngar og drottningar keppa á
sama tíma,“ segir Georg.
Að sögn Georgs hefur mikil
breyting orðið á keppninni og við-
horfi fólks til hennar í kjölfar þess
að hún flutti sig af skemmtistöðum,
yfir í Loftkastalann, þaðan í Ís-
lensku óperuna í Reykjavík og frá
því í fyrra yfir í Hörpu. „Ég held að
á undanförnum fimm árum hafi fólk
sem hefur ekkert verið að pæla í
hvað dragg er, orðið meðvitað um
að þetta sé leiklistarform. Það er
hætt að vera með þetta tabú gagn-
vart þessu. Maður tekur jafnvel eft-
ir því að það eru að spretta upp
kóngar og drottningar út um allt í
leikhúsum eins og Borgarleikhúsinu
og Þjóðleikhúsinu. Þannig að
keppnin hlýtur að hafa haft einhver
áhrif,“ segir Georg.
Öfgar
Draggið er fyrst og fremst leik-
listarform tekur Georg skýrt
fram.
„Þetta er allt spurning um
túlkun. Ég myndi segja að
dragg er það að taka eitt-
hvað úr veruleikanum og
fara út í 200, til 300 pró-
senta útgáfu af því. Í því
felst einnig ákveðin öfug-
snúningur. Draggið snýst
um það að fara út í karakt-
er sköpun, og vera alveg
einstaklega „fabulous“
eða fyndin, þannig er
hægt að fara í allar áttir
með þetta,“ segir Georg.
Hann bætir við að erfitt
sé að velja eitt orð til
þess að lýsa dragginu.
„Kannski er öfgar besta
orðið. Eina leiðin til þess
að kynnast draggi er að
sjá það.“
„Einstök keppni í heiminum“
Draggkeppni Íslands fer fram í Eld-
borg í kvöld Hefur áhrif á viðhorf og
fordóma fólks gagnvart draggi
Jennifer Hudson Obama Skrautleg og fjörug Dragdrottning Íslands 2011.
Möllerinn Fór með sigur af hólmi sem Dragkóngur Íslands 2011.
Georg var
dragdrottn-
ing Íslands
árið 1998.
Á morgun fimmtudaginn 9. ágúst kl.
16 opnar Listasalur Mosfellsbæjar
sýninguna Fjórir Moskóvítar í Bóka-
safni Mosfellsbæjar. Sýningin er í til-
efni af 25 ára afmæli Mosfellsbæjar
og opnunin er hluti af hátíðardag-
skrá bæjarins á Bókasafninu í dag
kl. 16. Fjórir fyrrverandi bæj-
arlistamenn Mosfellsbæjar sýna
verk sín á sýningunni, þau Inga Elín
Kristinsdóttir, Ólöf Oddgeirsdóttir,
Sigurður H. Þórólfsson og Steinunn
Marteinsdóttir. Sýningin stendur til
28. september í bókasafninu.
Morgunblaðið/Ásdís
Listamaður Inga Elín er meðal þeirra
sem sýna á Fjórir Moskóvítar.
Fjórir Moskóvítar
í Mosfellsbæ
Fram í dagsljósið – Hinsegin saga
í skjölum nefnist sýning sem Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur opnar í
dag kl. 17 í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur. Á sýningunni er að
finna úrval skjala og útgáfuefnis
sem varpar ljósi á sögu samkyn-
hneigðra og annars hinsegin fólks
frá fyrri árum hér á Íslandi auk
yngri tímarita og fræðsluefnis
Samtakanna ’78. Skjalasafn Sam-
takanna ’78 er í vörslu Borg-
arskjalasafns en það er lýsandi
fyrir baráttu samkynhneigðra og
hinsegin fólks, bæði þá fordóma
og erfiða tíma sem það hefur
þurft að lifa auk sigra og áfanga
sem það hefur náð á síðustu ára-
tugum. Sýningin stendur til 15.
ágúst í Ráðhúsinu og flytur þaðan
yfir í Borgarskjalasafn Reykjavík-
ur þar sem sýningin verður opin
út ágúst.
Hinsegin Barist fyrir mannréttindum.
Hinsegin saga
sögð í skjölum
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson
bauð nýverið rúmlega 109 millj-
ónir Bandaríkjadollara í tæplega
750 fermetra lúxusíbúð, eða í
Manhattan í New York borg. Það
mun vera eitt það hæsta tilboð
sem gert hefur verið í íbúð í borg-
inni, ef ekki það hæsta. Að sögn
The New York Daily News er
íbúðin sú dýrasta í Bandaríkj-
unum, en söluaðilinn Steve Klar
hefur sett íbúðina á 100 milljónir
dollara. Tilboð Snorra var að
borga 25 dollara á dag í íbúðina í
12 þúsund ár. Enn er óvíst hvort
söluaðilinn hefur hafnað eða þegið
tilboð Snorra.
Morgunblaðið/Golli
Fasteign Snorri hefur áhuga á að kaupa
dýrustu íbúð New York borgar.
Býður í dýrustu
íbúð New York
Fáðu
garðsláttinn
í áskrift
og slakaðu á í sumar
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is