Morgunblaðið - 13.08.2012, Page 1
M Á N U D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 187 . tölublað 100. árgangur
BENNI VALSSON
OG STÓRU
STJÖRNURNAR
DÝRÐIN Í
ANDSTÆÐUNUM
LEIKFANGA-
BANGSAR VALDA
MILLIRÍKJADEILU
NÁTTÚRA ÍSLANDS Í NÝRRI BÓK 10 ÓVENJULEG HERFERÐ 14SÝNING Á AKUREYRI 26
Ólympíuleikunum í Lundúnum lauk formlega í gærkvöldi
með glæsilegri lokaathöfn á Ólympíuleikvanginum. Tilkomu-
mikil leikmynd var sett upp sem myndaði breska fánann. Með-
al áhorfenda var íslenska íþróttafólkið sem barði sjónarspilið
augum. Á athöfninni tróðu upp margir af þekktustu tónlist-
armönnum Bretlands fyrir þær 80 þúsundir manna sem þar
voru saman komnar. Áætlað er að um milljarður manna hafi
horft á sjónvarpsútsendingu frá athöfninni sem stóð yfir í
tæpar þrjár klukkustundir. Íslendingar luku keppni í gær
þegar Kári Steinn Karlsson kom 42. í mark í maraþonhlaupi á
2 klst. og 18,47 mín. Kári var 97. eftir 5 kílómetra en hljóp
uppi 55 keppendur áður en hann kom í endamark. » Íþróttir
Lokaathöfn Ólympíuleikanna mikið sjónarspil
Morgunblaðið/Golli
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Átta af tólf þingmönnum Vinstri
grænna vilja endurskoða aðildarvið-
ræðurnar við ESB áður en gengið
verður til þingkosninga næsta vor.
Kemur þar bæði til þróun aðildar-
viðræðna við sambandið og þróunin
innan þess og á evrusvæðinu síðan
aðildarumsókn var lögð fram 2009.
Mikil ólga hefur verið innan VG
vegna umsóknarinnar síðustu mán-
uði, ekki síst á landsbyggðinni, og
dró til frekari tíðinda í málinu um
helgina þegar tveir ráðherrar VG,
Svandís Svavarsdóttir og Katrín
Jakobsdóttir, lýstu því yfir að end-
urmeta þyrfti ESB-viðræðurnar.
Ættu að ræða fiskveiðimálið
Með því ganga þær til liðs við Ög-
mund Jónasson innanríkisráðherra
en samtöl Morgunblaðsins við þing-
flokk VG benda til að minnst fimm
þingmenn VG séu sama sinnis.
Spurð um ummæli Katrínar og
Svandísar kveðst Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, þingmaður Samfylking-
ar, telja þau benda til kosninga-
skjálfta. „Það er í gildi stjórnarsátt-
máli og ef VG vill breyta honum
þarf að fara formlega fram á það.
Rætt er um að þetta verði tekið fyr-
ir á flokksráðsfundi hjá VG. Mér
finnst að þau ættu að ræða fisk-
veiðistjórnunina sem er í stjórnar-
sáttmálanum og þau virðast ekki
geta klárað í samræmi við sína
stefnu.
Mér finnst það kannski liggja
þeim nær að einhenda sér í það
enda hefur landsfundur VG margoft
áréttað þessa stefnu. Evrópusam-
bandið er í samningaferli og verður
áfram að öllu óbreyttu. Sjávarút-
vegsmálin eru mál sem Vinstri græn
hafa meira vald á og eru í forystu í
þeim málaflokki í ríkisstjórn. Það
væri tilvalið gagnvart þeirra kjós-
endum að þau sýndu þar forystu.“
Skýrist fyrir kosningar
Flokksbróðir hennar, Björgvin G.
Sigurðsson, telur að meginlínur við-
ræðna geti skýrst fyrir kosningar.
Ekki náðist í Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra út af málinu.
Jón Bjarnason, þingmaður VG,
segir formann VG að einangrast.
Katrín og Svandís reyni nú að skapa
fjarlægð við formanninn.
MÁtta af tólf vilja staldra við »4
Meirihluti snýst
gegn umsókn
8 af 12 þingmönnum VG vilja endurmeta ESB-viðræður
Þingmaður VG segir formann flokksins að einangrast
Meirihluti á þingi?
» Hinn 16. júlí 2009 studdu 33
alþingismenn tillögu um að
sækja um aðild að ESB, 28
voru á móti og tveir greiddu
ekki atkvæði.
» Samfylkingin er nú með 20
þingmenn og VG er með 12.
» Með því að 8 þingmenn VG
vilja endurmeta stöðuna sýnist
þingmeirihluti í málinu veikur.
Litlu munaði að illa færi þegar rúta
sem var þétt setin af farþegum fór
út af veginum skammt norðan
Húsavíkur, á Tjörnesi, í gær.
Ökumaður rútunnar missti stjórn
á bifreiðinni í krappri beygju, en
rútan endaði hálfvegis út af veg-
inum og lokaði með því fyrir allri
umferð á veginum. Að sögn lögregl-
unnar á Húsavík var rútan ekki á
miklum hraða þegar atvikið gerðist.
Rútan er ósködduð og enginn
slasaðist þegar óhappið átti sér
stað, en kippa þurfti rútunni af
veginum þar sem hún sat föst á
kviðnum. Atvikið olli farþegum rút-
unnar ekki miklum töfum og var
önnur rúta send á staðinn svo far-
þegarnir kæmust leiðar sinnar.
pfe@mbl.is
Ljósmynd/Bruce McMillan
Óhapp Farþegar rútunnar fylgdust með rútunni vega salt í gær.
Þétt setin rúta
vó salt á vegbrún
Missti stjórn á rútunni í krappri beygju