Morgunblaðið - 13.08.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRinnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Verktakafyrirtækin kvarta undan
því að stóru verkefnin skorti. Það er
mikið áhyggjuefni ef það verða ekki
umskipti þannig
að stórar fram-
kvæmdir geti far-
ið af stað með
haustinu. Við hjá
ASÍ höfum
áhyggjur af því
að fjölgun starfa
yfir hábjargræð-
istímann gangi til
baka í haust. Það
er ekki annað að
heyra á sérfræðingum Vinnumála-
stofnunar,“ segir Gylfi Arnbjörns-
son, forseti Alþýðusambands Ís-
lands, um skort á nýframkvæmdum.
„Atvinnuástandið er auðvitað best
í júlí og ágúst og svo dregur veru-
lega saman hjá ferðaþjónustunni
þegar það fer að hausta. Þá skiptir
auðvitað máli að eitthvað annað sé
að fara í gang. Við höfum áhyggjur
af því að það verði ekkert til að taka
við því vinnuafli sem losnar þegar
það fer að þrengja að störfum í
ferðaþjónustu,“ segir Gylfi sem
gagnrýnir skort á nýfjárfestingu í
hagkerfinu.
Stóru verkefnin fari af stað
„Það skortir á fjárfestingu og sú
staða er enn þá uppi að atvinnulífið
er með umfram afkastagetu. Þörfin
fyrir að fjárfesta hefur því almennt
ekki verið til staðar. Þess vegna höf-
um við lagt áherslu á að það verði
reynt að koma stórum verkefnum
áfram, á borð við Helguvík og stór-
verkefni í vegagerð. Slíkar fjárfest-
ingar geta dregið með sér umsvif í
einstaka greinum.“
Gylfi telur ríkisstjórnina hafa lagt
stein í götu virkjanaframkvæmda
með því að setja rammaáætlun um
virkjanasvæði í pólitískan farveg.
„Við hjá ASÍ höfum gagnrýnt
stjórnvöld fyrir að greiða ekki betur
fyrir því að hægt sé að taka ákvarð-
anir. Það vegur þungt að ramma-
áætlunin skyldi fara í þann farveg
sem hún fór í eftir tólf ára vinnu. Því
miður fór svo að hún endaði í póli-
tísku krukki og það er ekki útséð
með að hægt sé að koma henni í
gegnum Alþingi. Það auðvitað þýðir
að enn er óvissa um hvar orkufyrir-
tækin mega bera niður. Þau geta
ekki tekið ákvarðanir eða fylgt eftir
þeim viðræðum sem þau eiga í varð-
andi einstaka áhugasama aðila, enda
er ekki ljóst hvar má virkja.
Þegar reynt er að taka ákvarðanir
á grundvelli núverandi löggjafar
snupra stjórnmálamennirnir emb-
ættismennina fyrir að taka ákvarð-
anir á grundvelli laga sem þeir
hyggjast breyta en ná þó ekki sam-
stöðu um að breyta. Þetta er merki-
legur stjórnarháttur en veldur því
að það kemst ekkert áfram og það er
kannski markmiðið. Mér sýnist að
það sé ætlunin að koma í veg fyrir að
hlutirnir fari af stað,“ segir Gylfi.
Verktakar kvíða haustinu
Forseti ASÍ segir skort á framkvæmdum og fjárfestingum áhyggjuefni
Átelur stjórnvöld fyrir að „krukka“ í rammaáætlun þannig að ekkert gerist
Þolinmæðin á þrotum
» Gylfi Arnbjörnsson gagn-
rýndi stjórnvöld harðlega fyrir
að rammaáætlun skyldi ekki
koma fram fyrir áramót er
hann fór yfir stöðuna í janúar.
» „Það er alveg klárt að næstu
kosningar munu snúast um at-
vinnumál og störf. Þessi ríkis-
stjórn er einfaldlega á skilorði
hvað það varðar,“ sagði Gylfi.
Gylfi
Arnbjörnsson
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Sumarið hefur verið okkur Íslend-
ingum einstaklega gott en alls hafa
45 dagar rofið 20 stiga múrinn.
Útlit er fyrir að hitametið sem
féll á laugardaginn, með 20 stiga
hita á landinu 16 daga í röð, verði
enn rækilegra því hlýtt loft verður
áfram yfir landinu. Með þessu hef-
ur hitametið verið slegið frá ár-
unum 1990 og 2008 en þá komst
hiti á Íslandi í 20 stig 15 daga í
röð.
Vindátt mun ráða því hvar hitinn
verður mestur en ekki er útilokað
að hitastigið í Reykjavík fari yfir
20 stigin í fyrsta sinn í sumar.
Hæsti hiti sumarsins mældist svo
á Hallormsstað á Austurlandi síð-
astliðinn föstudag þegar hitinn fór
upp í 26,6 stig.
Gæti fært borgarbúum hita
Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir á bloggi sínu að þótt loftið
sem verður yfir landinu næstu
daga sé kaldara en það sem kom
hitanum eystra upp í 27-28 stig á
fimmtudag, gefi það samt meira en
20 stiga hita á landinu næstu daga.
Trausti tekur einnig fram að
regnsvæðið sem er nú yfir Vest-
urlandi fari vestur fyrir land í dag
og í kjölfar þess sé hlý suðaust-
anátt sem muni síðar snúast til
austurs.
„Þetta þýðir að hlýna mun um
landið norðvestanvert og síðar
einnig suðvestanlands. Nái sólin að
brjótast fram verður furðuhlýtt
næstu daga. Varla er þorandi að
minnast á 20 stiga hita í Reykjavík,
en ef austanáttin nær sér á strik er
sá möguleiki opinn í fyrsta skipti í
sumar. En austanáttin á sér ýmsar
hliðar á Suðvesturlandi – með
henni koma oft úrkomubakkar eða
hnútar sem halda hitanum vel í
skefjum meðan þeir fara hjá,“ segir
Trausti.
Útlit fyrir
framhald á
hlýindum
Hitametið var slegið um helgina
Vindátt mun ráða hæsta hitastiginu
Morgunblaðið/Ómar
Veður Mjög gott veður hefur verið á
landinu í nánast allt sumar.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir
var vígð til embættis vígslubiskups á
Hólum í gær. Séra Solveig er önnur
konan sem tekur biskupsvígslu á Ís-
landi, á eftir núverandi biskupi Ís-
lands, Agnesi Sigurðardóttur, sem sá
um vígsluna. Séra Solveig var kjörin í
embætti vígslubiskups á Hólum í
júnímánuði, og tekur til starfa 1. sept-
ember næstkomandi.
Vígsluvottar voru séra Jón Að-
alsteinn Baldvinsson, biskup á Hól-
um, séra Kristján Valur Ingólfsson,
biskup í Skálholti, ásamt sex erlend-
um biskupum auk séra Gylfa Jóns-
sonar, eiginmanns séra Solveigar og
Unnar Halldórsdóttur djákna.
Solveig segir að sér lítist mjög
vel á hið nýja embætti sitt og að það
sé mjög spennandi verkefni að fá að
halda utan um söfnuði og kirkjustarf
og taka þátt í því frábæra starfi sem
kirkjan sé að vinna um allt land.
Í vígsluræðu sinni sagði séra
Solveig meðal annars að hún væri
stolt af því að tilheyra kirkju sem
setti jafnréttismál á oddinn, og stolt
að tilheyra kirkju sem hefði á einu ári
gert tvær konur að biskupum. Í sam-
tali við Morgunblaðið sagði hún að
þetta væri mikil breyting fyrir kirkj-
una á einu ári, þar sem henni hefði
verið þjónað af karlkyns biskupum í
rúmlega þúsund ár. Það þyrfti þó að
koma í ljós hversu miklar breytingar
yrðu á kirkjunni við þessi tímamót.
Solveig sagði að hún mundi í störfum
sínum leggja áherslu á að hlúa að því
góða starfi og því góða fólki sem þjón-
aði kirkjunni í umdæmi Hólabisk-
upsstóls, sem nær frá Djúpavogi til
Hrútafjarðar.
Fyrsti kvenbiskupinn
á Hólum í Hjaltadal
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígð til embættis vígslubiskups á Hólum
Önnur konan sem tekur biskupsvígslu á Íslandi Segist
stolt að tilheyra kirkju sem setji jafnréttismál á oddinn
Ljósmynd/Þjóðkirkjan
Biskupsvígsla Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, vígir séra Solveigu Láru til embættis vígslubiskups á Hólum.
Ljósmynd/Þjóðkirkjan
Fríður flokkur Nývígður vígslubiskup á Hólum ásamt vígsluvottum og
öðrum þjónum kirkjunnar sem voru við athöfnina.
Mikil hlýindi hafa verið á Norð-
austurlandi undanfarnar vikur,
en samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands hefur hita-
stig og úrkoma töluverð áhrif á
vatnavöxt í ám.
Loka þurfti vegi 88 við
Hrossaborg á Mývatnsöræfum
þegar vatn flæddi yfir veginn,
en lokunina má rekja til flóða í
ám við Herðubreiðarlindir. Veg-
inum var lokað síðastliðinn
föstudag og var vegurinn lok-
aður í einn sólarhring.
Loka þurfti
veginum
VEÐURFAR
Guðrún M. Valgeirsdóttir, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, segir að eng-
in samskipti hafi farið fram á milli
sveitarstjórnar hreppsins og Um-
hverfisráðuneytisins um reglugerð um
verndun Mývatns og Laxár frá því að
sveitarstjórnin skilaði inn fyrstu at-
hugasemdum sínum í byrjun septem-
ber 2011 þar til sveitarstjórnin frétti af
reglugerðinni í apríl 2012. Fullyrðing-
ar ráðuneytisins um víðtækt samráð
við sveitarstjórnina séu því beinlínis
rangar. Í aðsendri grein sem birtist í
blaðinu í dag segir Guðrún ásamt Dag-
björtu Bjarnadóttur, oddvita hrepps-
ins að ljóst sé að umhverfisyfirvöld líti
varg ekki sömu augum og Mývetning-
ar og að það skjóti skökku við að heima
menn séu í stríði við yfirvöldin um það
hversu langt megi ganga til að stemma
stigu við vargi. »15
Engin sam-
skipti við
ráðuneytið
Gagnrýnir svör
umhverfisráðuneytis