Morgunblaðið - 13.08.2012, Síða 8
Í síðasta Reykjavíkurbréfi, 10.þessa mánaðar sagði: „Vinstri
grænir eru búnir að átta sig á að
æruleysið er ekki vænlegasta flaggið
til að veifa í atkvæðaveiðum í næstu
kosningum. Mönnum er frjálst að
geta sér til um hver var seinastur í
VG til að komast að þeirri nið-
urstöðu. Þess vegna sé flokkurinn
nauðbeygður til, þegar á fyrstu
haustmánuðum, að láta skerast í
odda í Evrópumálum. Tilefnin, sem
hægt er að nota til uppsetts ágrein-
ings, eru fleiri en skrúfurnar sem
finna má í hillunum í Byko og Bau-
haus samanlagt. Og tímasetningin sé
augljóslega hin rétta. Fyrr hefði ekki
verið þorandi að stilla samstarfs-
flokknum upp við vegg.“
Haustmánuðir skullu á fyrr envarði, því rétt rúmum sólar-
hring síðar staðfestu tveir ráðherrar
VG í verki framangreind skrif, að-
spurðir af fréttastofu RÚV.
Fréttastofan gat auðvitað ekki umhvers vegna hún bar spurn-
ingar sínar fram einmitt þetta
laugardagssíðdegi. Kannski vitrun?
Hún tók fram að hún hefði ekkináð í neinn forystumann Sam-
fylkingar til að tjá sig, sem er afrek
þegar jafn stutt er í milli og þarna er.
En í staðinn vitnaði fréttastofan íónafngreinda þingmenn Sam-
fylkingar sem sögðu að VG mætti alls
ekki svíkja ESB-atriði stjórnar-
sáttmálans.
Af hverju ekki? Eru þau merki-legri en allt hitt sem VG hefur
svikið fyrir sælustund í samfylking-
arskauti?
Haustar fyrir
tímann
STAKSTEINAR
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
Veður víða um heim 12.8., kl. 18.00
Reykjavík 15 skýjað
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 16 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað
Vestmannaeyjar 12 súld
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 22 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 16 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 21 skýjað
London 25 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 20 heiðskírt
Vín 22 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 27 skýjað
Winnipeg 17 skúrir
Montreal 23 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:15 21:51
ÍSAFJÖRÐUR 5:05 22:11
SIGLUFJÖRÐUR 4:48 21:54
DJÚPIVOGUR 4:41 21:24
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Einelti er vaxandi vandamál á Vest-
urlöndum að sögn Jóhannesar Óla
Ragnarssonar en hann er einn stofn-
enda Sólskinsbarna. Samtökin voru
nýlega stofnuð en markmið þeirra er
að vekja athygli á einelti og afleið-
ingum þess. Samtökin verða með
höfuðstöðvar á Akureyri.
„Einelti er því miður of algengt
í okkar samfélagi og afleiðingar þess
eru alltaf neikvæðar fyrir það fólk
sem þarf að þola einelti. Dæmi eru
um að ungmenni og eldra fólk hafi
fyrirfarið sér vegna eineltis og þess
vegna er mikilvægt að vekja athygli
á þessum vanda og vinna með skól-
um og fyrirtækjum að því að koma í
veg fyrir einelti,“ segir Jóhannes.
Jóhannes og aðrir sem koma að
samtökunum þekkja það af eigin
raun hvernig það er að lenda í einelti
og geta því miðlað eigin reynslu og
hjálpað fólki að koma auga á einelti
t.d. í skólum.
Hafa þurft að skipta um skóla
„Því miður er einelti allt of al-
gengt í dag og hér á Akureyri veit ég
um fjölda dæma þess að börn hafi
þurft að skipta um skóla vegna ein-
eltis,“ segir Jóhannes en nokkuð er
um það að þolendur eineltis hafi sett
sig í samband við hann og þá sem
standa að samtökunum.
Vekja athygli á einelti og afleiðingunum
Segir einelti vera vaxandi vandamál
Höfuðstöðvar verða á Akureyri
Einelti Jóhannes Óli er einn af
stofnendum Sólskinsbarna.
Ísland er í 5. sæti í sínum riðli eft-
ir 9 umferðir á ólympíumótinu í
brids, sem nú stendur yfir í Lille í
Frakklandi. Spilað er í fjórum riðl-
um og komast fjögur efstu liðin úr
hverjum riðli í úrslit.
Íslenska liðið vann alla þrjá leiki
sína í gær. Fyrst gegn Lettlandi,
19:11, síðan Reunion, 25:2 og loks
Finnlandi, 19:11. Ísland er nú með
165 stig í 5. sæti í riðlinum. Móna-
kó er efst með 196 stig, þá Ísrael
með 189 stig, Noregur með 178
stig og Tyrkland er í 4. sæti með
169 stig.
Íslenska liðið spilar við Grikk-
land, Tyrkland og Venesúela í dag
en riðlakeppninni lýkur á þriðju-
dag með þremur leikjum.
Þungt hugsi Spilarar í þungum
þönkum á ÓL í brids.
Ísland í
baráttu um
úrslitasæti