Morgunblaðið - 13.08.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
Tvö börn og karlmaður létust í
sprengjuárás á rútu í borginni Homs
í Sýrlandi fyrradag. Uppreisnar-
menn sögðu hermenn stjórnarhers-
ins hafa skotið á rútuna þegar íbúar
úr hverfinu Shammas reyndu að
flýja átök milli stjórnarhersins og
uppreisnarmanna. Ríkissjónvarp
Sýrlands sagði hins vegar uppreisn-
armenn bera ábyrgð á árásinni.
Fregnir herma að minnsta kosti 100
manns hafi látið lífið í harðvítugum
bardögum í gær og þar af 41 í höfuð-
borginni Damaskus, 24 í Homs og 17
í Daraa. Ofbeldið er á báða bóga.
Sífellt fleiri sögur berast af ofbeld-
isverkum uppreisnarmanna. Á sam-
skiptamiðlinum Youtube birtist
myndskeið þar sem sjá má uppreisn-
armenn henda líkum hermanna
stjórnarhersins af þaki byggingar.
„Við fordæmum svona hegðun kröft-
uglega,“ segir Abdul Hafiz Abdul
Rahman aðgerðasinni í sýrlensku
mannréttindasamtökunum MAF.
„Vissulega ríkir stríðsástand. En ef
við framkvæmum slík voðaverk er-
um við orðin eins og harðstjórarnir
sem við berjumst gegn,“ segir
Rahman. vidar@mbl.is
Tvö börn létust í sprengjuárás
Blóðbað í Sýrlandi
» Tvö börn og einn karlmaður
létu lífið í sprengjuárás.
» Ásakanir á báða bóga um
ábyrgð á verknaðinum sem
beindist gegn almennum
borgurum.
» Sífellt berast oftar fregnir af
ofbeldisverkum uppreisnar-
manna.
„Trúðu á Bandaríkin,“ er slagorð Mitts Romneys og
Pauls Ryans, forseta- og varaforsetaefnis repúblikana í
bandarísku forsetakosningunum sem fyrirhugaðar eru í
haust. Romney telur stefnu sína í anda bandarískra gilda
ólíkt stefnu Baracks Obama forseta sem hann segir að
hafi fært Bandaríkin í átt að „evrópskum sósíalisma“.
AFP
Sakar Obama um „evrópskan sósíalisma“
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Leitarstarfi hefur verið hætt eftir
að hundruð bæja og þorpa hrundu í
tveimur jarðskjálftum í norðvestur-
hluta Írans á laugardag. Yfirvöld
segja 227 hafa týnt lífi og 1.380 slas-
ast.
Fyrri jarðskjálftin var upp á 6,4 á
richter, en hinn 6,3 á richter og
skall á einungis ellefu mínútum á
eftir þeim fyrri. Í kjölfarið fylgdi
fjöldi minni eftirskjálfta sem gerði
það að verkum að fólk flúði svæðið
af ótta við enn einn stóran skjálfta.
16.000 manns heimilislaus
Moustafa Mohammad-Najjar inn-
anríkisráðherra sagði um 600 þorp
hafa orðið illa úti í skjálfanum og
þar af tólf sem væru rústir einar.
Tabriz er sú borg sem staðsett er
næst upptökum skjálftanna en hún,
ásamt nærliggjandi bæjum, slapp
með minniháttar skemmdir á bygg-
ingum.
Um 16.000 manns eru heimilis-
laus eftir skjálftana. Mahmoud Ah-
madinejad forseti fyrirskipaði að
enduruppbygging á svæðinu ætti að
hefjast tafarslaust sökum harka-
legra vetrarkulda sem vænta má í
lok árs. Búið er að koma upp tjald-
búðum auk þess sem mataraðstoð
hefur borist þeim sem misstu heim-
ili sín.
Ástæður þess að björgunarstarfi
hefur þegar verið hætt má rekja til
þess hve íbúar á svæðinu þekktu
hver annan vel. Af þeim sökum
gekk greiðlega að átta sig á því
hverra var saknað. Auk þess eru hý-
býli á svæðinu gjarnan smá og til-
tölulega stuttan tíma tók að leita í
rústunum.
Höfnuðu aðstoð
Írönskum stjórnvöldum barst
hjálparboð frá Tyrklandi, Taívan,
Singapúr og Þýskalandi en þáðu
það ekki þar sem þau töldu sig geta
glímt við ástandið upp á eigin spýt-
ur.
Nokkuð algengt er að jarðskjálft-
ar verði í Íran og er þetta ekki í
fyrsta skipti sem eyðileggingin ber
á dyr.
Árið 2003 dó nærri 31 þúsund
manns í jarðskjálfta í borginni Bam
í suðurhluta landsins.
227 látnir og
1.380 slasaðir
Tveir harðir jarðskjálftar með ellefu
mínútna millibili á sama svæði í Íran
AFP
Allt í rúst Íbúi í þorpinu Baje-Baj
virðir fyrir sér rústirnar þar sem
hús hans stóð áður.