Morgunblaðið - 13.08.2012, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, verður 89 ára ídag og er víst að mörgum þykir það ótrúlegt enda ber mað-urinn aldurinn með eindæmum vel. Hann kveðst ekki búast
við miklu tilstandi enda væri afmælið ekki mjög merkilegt. „Þetta
er nú ekki nema áttatíu og níu,“ sagði hann í stuttu spjalli við Morg-
unblaðið. Páll er daglegur gestur hjá konu sinni sem dvelur á Hrafn-
istu í Reykjavík og hann býst við að börnin og fleiri afkomendur líti
við.
Páll sinnir enn veðurrannsóknum, ekki síst á loftslagsbreytingum
og afleiðingum þeirra. Hann telur að Íslendingar hugi ekki nægjan-
lega að þeim breytingum sem eru að verða. „Það ruglar okkur dálít-
ið að hér á landi hefur hlýnun alltaf verið æskileg og hagstæð fyrir
flesta atvinnuvegi, bæði landbúnað og sjávarútveg.“ Hækkun sjáv-
arborðsins sé áhyggjuefni en hann telur að hún verði mun meiri en
flestir telja. Þá verði hundruð milljóna manna í hættu. Hér gæti
áhrifanna líka og hann nefnir sem dæmi að ef byggt verði í Vatns-
mýri þá sé eins víst að sú byggð verði komin í kaf eftir 100-200 ár.
Páll sinnir þessu fræðastarfi eftir því sem færi gefst en hann er
einnig í daglegu starfi hjá sjálfu sér við að búa til tíu daga veðurspár
sem hann setur inn á fasbókina, eins og hann kallar Facebook. „Það
tekur mig svona tvo tíma á morgnana. Ég hef gert þetta nú í um
þrjú ár. Það gefur manni vissa fyllingu að hafa eitthvað ákveðið við
að fást á hverjum degi, ekki síst á þessum aldri, ef maður getur
það.“ runarp@mbl.is
Páll Bergþórsson 89 ára
Morgunblaðið/RAX
Spáir Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri.
Er í daglegu starfi
hjá sjálfum sér
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Vestmanneyjar Hákon Þór Smárason
fæddist 6. mars kl. 23.42. Hann vó
14,5 merkur og var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Tinna Ósk Þórsdóttir
og Valur Smári Heimisson.
Nýir borgarar
Með nýrri kynslóð öryggismyndavélakerfa hjá Svar tækni getur þú núna fylgst
með beinni útsendingu úr myndavélunum hvar sem þú ert staddur, hvort sem
er í gegnum tölvu, iPad eða snjallsíma. Hærri upplausn en þekkst hefur hjá
eldri kynslóðum gerir þér svo kleift að þekkja þann sem er á myndinni.
Ný kynslóð
öryggismyndavéla
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
og Rússlands, 1999, í sjóðsstjórn
Stofnunar Leifs Eiríkssonar 2000-
2005, í ritnefnd Aldarsögu Háskóla
Íslands 2005-2011, útg. 2011, og er
stjórnarformaður Ólafíusjóðs í Nor-
egi.
Rit Sigríðar Dúnu um íslenska
kvennabaráttu frá 1870 til 1990, kom
út 1997. Hún hlaut Íslensku bók-
indum, í ráðgjafanefnd fram-
kvæmdastjóra UNESCO um málefni
kvenna 1994-97, sat í ritstjórn NORA
1991-95, í úthlutunarnefnd RANNÍS
1997-99, fór fyrir ráðstefnunni Konur
og lýðræði, haldinni af ríkistjórnum
Íslands og Bandaríkjanna og Nor-
rænu ráðherranefndinni með þátt-
töku ríkisstjórna baltnesku ríkjanna
S
igríður Dúna fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp.
Hún lauk stúdentsprófi
frá MR 1972, B.Sc.-prófi í
mannfræði við London
School of Economics and Political
Science 1975, stundaði nám í mann-
fræði við L’Universite de Paris VII
1976-77 og University of Rochester í
New York en þaðan lauk hún MA-
prófi 1979 og síðar doktorsprófi 1990.
Sigríður Dúna var stundakennari í
mannfræði við HÍ 1980-83 og 1985-
86, alþm. Reykvíkinga fyrir Kvenna-
listann 1983-87, sinnti rannsókna-
störfum 1987-90, var lektor í mann-
fræði við HÍ 1990-94, dósent
1994-2000 og prófessor þar frá 2000 (í
leyfi 2006-2011), sendiherra Íslands í
Suður-Afríku 2006-2008 og sendi-
herra Íslands í Ósló 2008-2011.
Sigríður Dúna sat í samstarfsnefnd
með Færeyingum og Grænlend-
ingum, í Vestnorræna þing-
mannaráðinu, í stjórnarskrárnefnd
1985-92, í stjórn Grænlandssjóðs
1987-90, í stjórn Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands 1989-93, var
formaður Mannfræðistofnunar HÍ
1997-2001, formaður kynningar-
nefndar HÍ, sat í sérfræðinganefnd
Ráðherranefndar Norðurlanda um
umhverfisrannsóknir í félagsvís-
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor við HÍ – 60 ára
Konur og lýðræði Sigríður Dúna hafði veg og vanda af ráðstefnunni Konur og lýðræði sem haldin var í Reykjavík
1999, af ríkisstjórnum Íslands og Bandaríkjanna og Norrænu ráðherranefndinni með þátttöku ríkisstjórna balt-
nesku ríkjanna og Rússlands. Meðal ráðstefnugesta var Hillary Clinton, þá forsetafrú Bandaríkjanna.
Fjölhæf atorkukona
Rætt um samvinnu Sigríður Dúna og Mosisili, forsætisráðherra Lesótó í
Afríku, ræða um aukin samskipti Íslands og Lesótó. Bæði eru ríkin auðug af
endurnýjanlegum orkugjöfum en smá á alþjóðlegan mælikvarða.