Morgunblaðið - 13.08.2012, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú mega fjölskyldumálin ekki sitja
á hakanum lengur. Taktu að þér verk sem
skipta máli fyrir allan heiminn.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er um að gera fyrir þig að njóta
þess frelsis sem þú hefur öðlast. Hví ekki
að láta undan nautnum sínum? Ef þú gerir
það ekki á hverjum degi, er allt í góðu
lagi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu augun hjá þér þegar nýir
möguleikar opnast á starfssviði þínu.
Treystu öðrum til þess að leysa þig af.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert hæfileikaríkur og verður að
finna athafnaþrá þinni farsælan farveg.
Talaðu skýrt og þú semur fyrir miðnætti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Aðstæður sem virðast aðkallandi eru
ekki svo mikið vandamál þegar upp er
staðið. Sumt er bara svona og við því er
ekkert að gera nema viðurkenna stað-
reyndir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mikill áhugi þinn á vini kemur þér í
nýjar aðstæður. Sinntu honum og legðu
allt annað til hliðar á meðan.
23. sept. - 22. okt.
Vog Svefnvenjur þínar eru óstöðugar um
þessar mundir. Njóttu þess að vera í faðmi
fjölskyldunnar og byrjaðu svo á nýju verk-
efni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhverra hluta vegna fara
samstarfsmenn þínir í taugarnar á þér.
Reyndu að ná jafnvægi, þú getur ekki neit-
að þér um allt. Þroski þinn kennir öðrum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu þú sjálf/ur í dag í stað
þess að vera ólánsöm útgáfa af vænt-
ingum annarra. Reyndu að hafa hemil á
eyðsunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er nokkur áskorun fólgin í
því að halda væntingunum innan skyn-
samlegra marka. Bíddu rólegur meðan hin-
ir láta gamminn geysa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Umburðarlyndi og þolinmæði er
nokkuð sem stundum er af skornum
skammti hjá þér og það á við þessa dag-
ana. Afbrýðisemi gæti einnig skotið upp
kollinum í samböndum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Rómantískasta kvöldið sem þú get-
ur átt er heima fyrir, ekki úti á lífinu. Ef þú
hefur einhverjar hugmyndir varðandi eitt-
hvað mikilvægt skaltu bera þær undir vini
þína.
Eins og oftar fletti ég FiðrildadansiÞorsteins Valdimarssonar nú í
vikunni og rakst þá á þessa limru,
Blygðun:
Það ákvað að erlendum sið,
hið íslenska viðreisnarlið,
að frelsi sé stál
og farsæld sé ál; -
aðeins flibbarnir roðnuðu við.
Fiðrildadans kom út hjá Heims-
kringlu árið 1967, en það var einmitt á
þessum árum sem ál varð að pólitísk-
um rógmálmi vegna heiftúðugrar and-
stöðu Alþýðubandalagsins við Búrfells-
virkjun og stóriðju hér á landi. Mér er
sérstaklega minnisstætt það augnablik
í neðri deild Alþingis þegar Einar Ol-
geirsson hvessti augun á Bjarna Bene-
diktsson og Ólaf Thors og sagði: „Þér
villidýr í frumskógi auðvaldsins!“
Þá var töluð íslenska í þingsölum!
Þessi limra hafði lengi pólitíska skír-
skotun. 14. september 1999 birtist
grein eftir Þórunni Magnúsdóttur, þar
sem til hennar var vitnað með þessum
áhersluorðum: „Ál og stál er í miklum
mæli haft til að tortíma lífi, verðmæt-
um náttúrunnar og menningar-
fjársjóðum.“ Og Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra taldi affarasælla
fyrir okkur Íslendinga að loka álverinu
í Straumsvík fremur en að reisa ný
orkuver. Þegar ég fór yfir þetta með
karlinum á Laugaveginum gat hann
ekki orða bundist:
Eins og ljóst er af myndum og máli
þá mýg-lekur velferðarskáli
þeirra jafnaðarmanna
sem Jó- gerði hanna
og ekki er í kvintið af áli.
Í Hunangsflugum er þessi fer-
henda eftir Guttorm J. Guttormsson
með tilvísun í vísuspart eftir Stephan
G. Stephansson: „Að lepja upp mola
um lífsins stig, / en láta ekki baslið
smækka sig.“:
Þeir kúguðu þurfá yfir sjálfa sig helst að
hækka sig,
því hitt er ei nóg að látá ekki baslið
smækka sig;
að rísa upp á móti ínu ranga en ekki
lækka sig
er ráðið til þess að láta sjálft baslið
stækka sig.
„Hugsjónin“ er yfirskrift þessarar
vísu Guttorms:
Hann berst með hugsjón að hækka
með hæð sinni aðra að lækka:
en enginn annar má stækka
því annars vill munurinn smækka
Og þessa kallar hann Keppinaut-
inn:
Eftir því sem hann er hærri
hygg ég vera meiri og stærri
sigur yfir hann að hækka;
hann má þess vegna ekki lækka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þá var töluð íslenska
í þingsölum!
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
ÞETTA MORGUN-
KORN ER MJÖG
TREFJARÍKT.
TREFJAR? SVO ÞETTA ERÞAÐ SEM VERÐUR UM
TÝNDA SOKKA!
OKKAR KYN-
SLÓÐ LENDIR
ILLA Í ÞVÍ.
ÖLLUM HEIMSINS VANDAMÁL-
UM ER VELT YFIR Á OKKUR.
HVAÐ FINNST ÞÉR AÐ
VIÐ ÆTTUM AÐ GERA?
VELTA ÞEIM BEINUSTU LEIÐ
YFIR Á NÆSTU KYNSLÓÐ!
OPNAÐU DYRNAR OG
LÁTTU OKKUR FÁ ALLT
SEM ÞÚ ÁTT!
ÞÚ HEFÐIR EKKI
GETAÐ VALIÐ
VERRI TÍMA!
AF
HVERJU?
SKATTHEIMTUMAÐUR-
INN VAR HÉRNA FYRIR
HÁDEGI!
GRÍMUR, ÞÚ ÆTTIR AÐ
HREYFA ÞIG MEIRA SVO
ÞÚ VERÐIR LIÐUGUR EINS
OG KÖTTUR.
HEFURÐU TIL
DÆMIS PRÓFAÐ
JÓGA? JÁ,
OFT.
ÞESSI
STELLING
HEITIR „HUNDUR
Á GRÚFU“.
Víkverja þykir gott að vera hannsjálfur. Geta haft sína siði og
ósiði í friði, á meðan þeir trufla ekki
aðra eða valda þeim óþægindum. Og
það hefur bara gengið ágætlega.
Víkverji er, eins og flestir aðrir, dá-
lítið öðruvísi en fjöldinn að einu eða
öðru leyti. Sjálfur er hann bara sæll
og glaður með það, og finnst frábært
þegar aðrir virðast vera það líka.
x x x
Um helgina fór fram einstök hátíðí Reykjavík og víðar. Hinsegin
dagar og Gleðigangan á Íslandi hafa
nefnilega ákveðna sérstöðu umfram
sambærilega viðburði í öðrum lönd-
um. Í fyrsta lagi er óþekkt að svo
stór hluti þjóðarinnar taki þátt í há-
tíðarhöldum (Víkverja grunar að
jafnvel án höfðatölunnar víðfrægu
kæmi Ísland vel út úr þeim saman-
burði) og hinsvegar hafa Íslendingar
ákveðið að Gleðigangan og Hinsegin
dagar séu fjölskylduhátíð. Slíkt er
allt annað en sjálfsagt, en hefur gríð-
arlega þýðingu fyrir stöðu hinsegin
fólks á Íslandi.
x x x
Að vera hinsegin er hvorki siðurné ósiður, heldur eitt af því sem
fólk fær úthlutað í vöggugjöf. Þetta
erum við Íslendingar loksins farnir
að skilja. Það að foreldrar fari með
börn sín í miðbæ Reykjavíkur til að
fagna margbreytileika lífsins og
réttindabaráttu hinsegin fólks sýnir
að við höfum ákveðið að jarðvistin sé
of stutt til að dæma og hata. Við eig-
um þess í stað að virða og elska
hvert annað, líka þá sem eru ekki al-
veg eins og við sjálf.
x x x
Víkverji hefur gaman af litskrúðiog ýkjum Gleðigöngunnar.
Hann veit mætavel að tilgangurinn
er ekki að opna raunsæislegan
glugga inn í heim þeirra sem í henni
ganga, heldur að hrópa með öllum
tiltækum ráðum: „Lífið er yndislegt
og skemmtilegt og ég á sama tilkall
til þess og allir aðrir!“
x x x
Og hver getur, með réttu ráði,andmælt því? Hver getur ekki
glaðst yfir Gleðigöngu?
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til mannsins
vegna og eigi maðurinn vegna hvíld-
ardagsins. (Markús 2, 27.)