Morgunblaðið - 13.08.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 226. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ísland fékk 700 milljarða króna
2. Varla þorandi að nefna 20°C
3. Kári hafnaði í 42. sæti
4. Facebook fært yfir á veruleikann
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvartett saxófónleikarans Jóels
Pálssonar kemur fram á djass-
tónleikum á Kex Hostel á morgun
klukkan 21. Auk hans skipa hljóm-
sveitina Ómar Guðjónsson, Tómas R.
Einarsson og Matthías Hemstock.
Morgunblaðið/Eggert
Kvartett Jóels á
djasstónleikum
Eiríkur Fannar
Torfason, trymbill
Múgsefjunar,
hyggst hefja
meistaranám í
tölvunarfræði við
sögufrægan há-
skóla í Sviss, EHT
í Zürich. Skólinn
er meðal annars
þekktur fyrir einn af fyrrverandi nem-
endum sínum, Albert Einstein. Um 20
nóbelsverðlaunahafar hafa stundað
nám eða kennt við skólann.
Múgsefjunartrymbill
í skóla Einsteins
Guðný Jónasdóttir sellóleikari og
Elisabeth Streichert píanóleikari
frumflytja sellósónötu nr. 1 Vísanir –
Allusions eftir banda-
ríska tónskáldið og
bassaleikarann Cart-
er Callison á sum-
artónleikum Lista-
safns Sigurjóns á
morgun klukkan
20.30. Þær flytja
einnig verk eftir
Sergei Prokofiev og
Astor Piazzolla.
Sellósónata frumflutt
í Listasafni Sigurjóns
Á þriðjudag Austlæg átt, 5-15 m/s, hvassast syðst. Rigning eða
súld sunnan- og suðaustanlands, en annars skýjað með köflum og
þurrt að kalla. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustlæg átt, 2-15 m/s, rigning eða súld
sunnan- og vestanlands, en bjart norðaustantil. Hiti 10 til 23 stig,
hlýjast norðaustanlands.
VEÐUR
FH-ingar náðu í gærkvöld
fimm stiga forystu í Pepsi-
deild karla í fótbolta þegar
þeir unnu Breiðablik, 1:0, í
Kópavogi á meðan KR-ingar
töpuðu, 2:3, fyrir Vals-
mönnum á heimavelli.
Spennan jókst hinsvegar í
fallbaráttunni því botnliðin
tvö unnu sína leiki, Selfoss
skellti Fram, 4:2, og Grinda-
vík vann óvæntan sigur á
Stjörnunni í Garðabæ, 4:3.
»Íþróttir
FH með fimm
stiga forystu
Kári Steinn Karlsson lét steinvölu í
skónum og risastóra blöðru undir il-
inni ekki stöðva sig í maraþonhlaup-
inu á Ólympíuleikunum í
London í gær. Hann
hafnaði í 42. sæti og er
afar ánægður með
hlaupið. „Þetta snýst
allt um sætin, á Ól-
ympíuleikunum er
bara spurt um
hvaða sæti mað-
ur lenti í,“ sagði
Kári við Morg-
unblaðið. »4-5
Steinninn og blaðran
stöðvuðu ekki Kára
„Þetta er draumur allra þjálfara og
leikmanna. Þetta gefur okkur öllum
trú á þá aðferðafræði sem við
vinnum eftir og þá sýn sem við höf-
um. Áherslur okkar sem þjálfara og
leiðtoga virka í mótum,“ sagði Þórir
Hergeirsson frá Selfossi sem varð
um helgina ólympíumeistari sem
þjálfari norska kvennalandsliðsins í
handknattleik. »4-5
Draumur allra
þjálfara og leikmanna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Gómsætt nýupptekið íslenskt
grænmeti af mörgum gerðum má
nálgast í verslunum landsins á
þessum árstíma. Mikill annatími er
hafinn hjá grænmetisbændum sem
uppskera nú það sem þeir sáðu til
í vor.
Vel lítur út með uppskeruna í ár
að sögn Georgs Ottóssonar, for-
manns Sölufélags garðyrkjumanna
og garðyrkjubónda á Flúðum.
„Það er mikil uppskera, falleg
og góð. Í heildina litið verður lík-
lega meðaluppskera í ár en varan
er góð. Núna er tímabilið þar sem
við erum að skera upp rosalega
fallega vöru, maður sér hana ekki
ferskari og betri,“ segir Georg.
Hann segir að snemma hafi verið
byrjað að uppskera þetta sumarið
enda veðurfarið búið að vera
óvenjulega hlýtt. „Þeir sem vökv-
uðu ekki á þurrkatímanum lentu
illa í því en þeir stærstu eru búnir
að koma upp vökvunarkerfi og því
hélst þetta í góðu horfi.“
Vinsældir spergilkálsins vaxa
Eftirspurnin frá verslunum eftir
íslensku grænmeti er góð að sögn
Georgs og segir hann framleið-
endur ánægða með hvað það er
mikill metnaður hjá verslunum að
vera með íslenskt grænmeti og
láta vita af því. „Núna eru að
koma gulrætur, spergilkál, blómkál
og kínakál. Öll afbrigði af kart-
öflum eru að koma og það virðist
ætla að verða góð uppskera í öllum
tegundum.“
Spurður hvort tískusveiflur séu í
grænmetisneyslu landsmanna
svarar Georg að vinsældir sperg-
ilkálsins hafi vaxið á hverju ári.
„Fyrir nokkrum árum seldum við
sáralítið af grænkáli en núna er
mikil eftirspurn eftir því. Ég held
að það sé þessi hollustuumræða.“
Skemmtilegur annatími
Sigrún H. Pálsdóttir hjá Garð-
yrkjustöð Sigrúnar á Flúðum segir
að uppskeran í ár líti út fyrir að
verða mikil. „Þetta var gott
sumar fyrir káltegundir, reynd-
ar alltof þurrt en við fjár-
festum í vökvunarbúnaði og
gátum því brugðist vel við,“
segir Sigrún. „Nú erum við
komin með rigningu og hita
og þá eru svaka sprettudagar.“
Hjá Garðyrkjustöð Sigrúnar eru
ræktuð um 200 tonn af káli á ári,
þá aðallega hvítkál en einnig rauð-
kál, kínakál, blómkál og spergilkál.
Fyrsta uppskera var send í búðir
um miðjan júlí. Uppskerutíminn er
skemmtilegur tími en annasamur
og erfiður að sögn Sigrúnar. „En
það er alltaf gaman ef maður fær
góða uppskeru.“
Gaman að fá góða uppskeru
Vel lítur út með
grænmetisupp-
skeruna í ár
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gott sumar Útlit er fyrir mikla uppskeru hjá garðyrkjubændum eins og Guðjóni Birgissyni á Melum á Flúðum.
Ekki er byrjað að taka upp gulrætur á bænum
Akurseli í Öxarfirði en þar er allt í startholunum
fyrir upptöku og von á hinum ljúffengu gulrótum
í búðir innan skamms. „Við erum að vökva og
sjáum til hvernig þetta verður en upptaka byrjar
næstu daga,“ segir Sara Stefánsdóttir, heimasæta
í Akurseli. Hún starfar með foreldrum sínum, Sig-
urbjörgu Jónsdóttur og Stefáni Gunnarssyni, að rækt-
uninni.
Sara segir allt líta vel út með uppskeru enda sumarið bú-
ið að vera mjög gott fyrir utan að vætu hefur vantað norð-
anlands. „Við höfum þurft að vökva mikið,“ segir Sara.
Garðlöndin vökva þau með vatni úr Jökulsá á Fjöllum.
Í Akurseli eru eingöngu ræktaðar lífrænar gulrætur utan-
dyra og telur uppskeran ár hvert um 100 tonn.
LÍFRÆNAR GULRÆTUR FRÁ AKURSELI Í ÖXARFIRÐI
Hafa þurft að vökva mikið