Morgunblaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Til sölu
Góður rekstur „Einstakt tækifæri“ Góð afkoma.
Vorum að fá í einkasölu lítið smásölufyrirtæki sem er með sitt
eigið “vörumerki“
Eigin framleiðsla, miklir vaxtamöguleikar.
Öll tæki og búnaður af bestu gerð.
Einkaleyfi á Íslandi.
Fyrirtækið er einungis 2 ára og hefur verið rekið með góðum
hagnaði frá upphafi.
Fyrirtækið er mjög skuldlítið og er því ekki um yfirtöku á
neinum áhvílandi lánum að ræða.
Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Arnari Sölva í síma 896-3601
eða með tölvupósti í arnar.solva@gmail.com
og hjá Hannesi Sigurgeirssyni í síma 840-6801 eða með
tölvupósti í hannes@stakfell.is.
Bókið tíma og fáið allar nánari upplýsingar um félagið.
•
•
•
•
•
•
Fasteignasala • Íbúðarhúsnæði • Skúlatún 2, 105 Rvk
Grunnur að góðu lífi
:: 535_1000
um á krónunni en við þurfum að
horfa til lengri tíma. Það hefur verið
erfitt að vera í eina flokknum sem
hefur þar eitthvert plan og nú hljót-
um við að fara að rukka eftir því að
aðrir flokkar segi hvaða leiðir þeir
vilji fara í þeim efnum og setjast þá
niður og ræða allar þær leiðir með
opnum huga,“ segir Katrín.
Hún segir það ekki koma að sök þó
að hún hafi sjálf ekki komið með
beinum hætti að vinnu við fjárlaga-
frumvarpið sem lagt verður fram við
upphaf þings. Katrín bendir á að nú
hefji hún sitt tíunda ár á Alþingi og
hún hafi í gegnum tíðina komið
óbeint að vinnu við fjárlagagerð
bæði sem þingmaður og ráðherra.
„Oddný Harðardóttir hefur haft
veg og vanda af því að vinna þetta
frumvarp og hún mun fylgja því inn í
þingið. Svo er það á forræði þingsins
að ljúka málinu en ráðuneytið er til
stuðnings,“ segir Katrín. Hún vill
ekki tjá sig um einstök mál fyrr en
hún hefur tekið formlega við emb-
ætti og neitaði til dæmis að svara
spurningum um hækkun virðisauka-
skatts á hótelgistingu.
„Ég kem inn í þingið 1. október og
þá verður fjárlagafrumvarpið komið
inn til fjárlaganefndar og mér finnst
ekki tímabært að ég tjái mig um það
fyrr en ég sé það í lokamynd.“
Gjaldmiðlamál
verði sett á oddinn
„Erfitt að vera í eina flokknum sem hefur eitthvert plan“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samfylking Flokkstjórnarfundur samþykkti um helgina tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur um að Katrín Júlíusdóttir
tæki við fjármálaráðuneytinu af Oddnýju Harðardóttur sem mun þó fylgja fjárlagafrumvarpinu eftir inn í þingið.
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
„Við þurfum að taka gjaldmiðlaum-
ræðuna hressilega upp á yfirborðið
og krefja aðra flokka um hvaða leiðir
þeir sjái. Það er mikið horft til Sam-
fylkingarinnar því við erum eini
flokkurinn sem er með einhverja
áætlun og nú hlýtur sú umræða að
vera orðin knýjandi í samfélaginu
um að fá svör við því hvaða leiðir við
viljum fara,“ segir Katrín Júlíusdótt-
ir sem tekur við embætti fjármála-
ráðherra af Oddnýju G. Harðardótt-
ur 1. október næstkomandi.
Katrín segir að tvö mál fái forgang
þegar hún taki við ráðuneytinu. Það
sé annars vegar gjaldeyrismálið og
hins vegar aðgerðir til að örva fjár-
festingu í landinu.
Grunnvinnan búin
Katrín segir að tími sé kominn til
að taka gjaldeyrismálin til umræðu
með mun afgerandi hætti en hingað
til. „Það er eitt af stóru verkefnun-
um, ekki síst fyrir atvinnulífið og
heimilin. Við erum búin að vinna
grunnvinnuna og ef við ætlum að
koma á stöðugleika til lengri tíma
verðum við að hafa gjaldmiðilinn inni
í myndinni með skýrari hætti en ver-
ið hefur. Við höfum náð ágætis tök-
menn eru í samstarfi við aðra þá kall-
ar það á málamiðlanir og að menn
virði lýðræðislega afgreiðslu, líka
innan eigin flokks,“ segir Árni Þór.
Hann bendir á að stefnumótun VG
feli það í sér að þjóðin fái lokaorðið
um ESB-málið. „Ég tel að þetta sé
besta ræða sem ég hef heyrt hana
flytja, eða ein af þeim allra bestu,
sérstaklega Evrópusambandskafl-
inn,“ segir Björn Halldórsson,
flokksráðsmaður í VG, um ræðu
Katrínar. Hann segir andstöðu
flokksins við aðild að ESB alltaf hafa
verið skýra. „Okkar afstaða liggur
fyrir í samstarfssamningnum og þar
liggur einnig fyrir að flokkarnir eru
ósammála.“ Hann segir VG jafn-
framt hafa fulla heimild til að fjalla
um Evrópumálin.
Ræða Katrínar
ýmist gagn-
rýnd eða lofuð
Vinstri grænir deila hart um ESB
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Á Hólum Frá fundi VG sem haldinn
var á föstudag og laugardag.
Vinstri grænir og ESB
» Jón Bjarnason segir Katrínu
Jakobsdóttur hafa vegið ómak-
lega að ESB-andstæðingum
innan VG.
» Jón segir Vinstri græna hafa
verið stofnaða til að berjast
gegn aðild að ESB.
» Árni Þór Sigurðsson segir
ríkisstjórnarsamstarfið kalla á
málamiðlanir.
» „Besta ræða sem ég hef
heyrt hana flytja,“ segir Björn
Halldórsson flokksráðsmaður.
FRÉTTASKÝRING
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Óhætt er að segja að orð Katrínar
Jakobsdóttur, varaformanns
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, á flokksráðsfundi VG um
að samstaða og samheldni innan
flokksins væri horfin hafi hrært upp
í flokksmönnum. Vísaði Katrín þar
til illdeilna vegna aðildarviðræðna
Íslands við ESB og sagði hún flokks-
menn skiptast í þrjá hópa eftir af-
stöðu þeirra til ESB. Afstaða flokks-
manna til ræðunnar er æði misjöfn.
Frumvarp um slit á viðræðum
„Hún ræðst með mjög ómaklegum
hætti að baráttufólki og einlægum
andstæðingum ESB innan flokks-
ins,“ segir Jón Bjarnason, þingmað-
ur VG, um ræðu Katrínar en Jón
mætti sjálfur ekki á flokksráðsfund-
inn. Hann segir andstæðinga ESB,
sem Katrín kallar einsmálsmenn,
vera fólk sem staðið hafi með grunn-
stefnu Vinstri grænna. „Það er mikil
andstaða meðal stuðningsmanna VG
við þá vegferð sem flokkurinn hefur
verið á,“ segir Jón og sakar Katrínu
um að draga flokksmenn í dilka.
Hann segir flokkinn hafa verið stofn-
aðan til að berjast gegn aðild að
ESB. Jón Bjarnason hyggst við upp-
haf þings leggja öðru sinni fram
frumvarp þess efnis að Ísland hætti
aðildarviðræðum við ESB. „Tillagan
er tilbúin og ESB-umsóknin verður
að afgreiðast út af borðinu sem allra
fyrst,“ segir Jón.
„… við höfum af einurð gert kröfu
um að stefnu flokksins sé fylgt. Nú
er það úthrópað sem hinn stærsti
glæpur“, skrifar Bjarni Harðarson,
fv. þingmaður Vinstri grænna, á
heimasíðu sína. „Með ræðu sinni hef-
ur Katrín Jakobsdóttir blásið hressi-
lega á allar hugmyndir manna um að
forystan hafi í hyggju að endurmeta
ESB-ferlið og ESB-sinnar geta and-
að léttar,“ skrifar Bjarni.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður
VG og formaður utanríkismála-
nefndar, sat flokksstjórnarfundinn
um helgina sem hann segir hafa ver-
ið góðan vinnufund. Hann bendir á
að flokkurinn hafi samþykkt stjórn-
arsáttmálann við Samfylkinguna
nánast samhljóða á sínum tíma og
flokkurinn vinni samkvæmt því. „Ef
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
„Það hefur ekki farið fram hjá nein-
um að við höfum lent í ýmsu og það
hefur náttúrlega verið sárt að sjá
þingmenn yfirgefa þingflokkinn,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, spurður um orð
Katrínar Jakobsdóttur, varafor-
manns VG, um að samstaða og sam-
heldni innan flokksins hafi horfið.
Katrín lét þau orð falla í ræðu
sinni við upphaf flokksráðsfundar
VG sem fram fór á Hólum í Hjalta-
dal um helgina. „Auðvitað vildum við
sjá meiri samstöðu í gegnum þessa
erfiðu tíma en
það breytir ekki
því að uppistöðu
til hefur flokk-
urinn staðið þétt
saman og flokks-
ráðið á bak við
ráðherra, þing-
flokk og stjórn og
það endurspegl-
aðist á þessum
fundi.“
Steingrímur sagði flokksráðs-
fundinn um helgina hafa verið góðan
og að nú væri vinna að komast á fullt
fyrir komandi kosningabaráttu.
„Þetta var góður fundur og mæt-
ingin var góð að mínu mati þrátt
fyrir að fundurinn væri haldinn úti á
landi og við lok sumarleyfa, það
mættu um 80 manns.“
Steingrímur sagði mikla sam-
stöðu innan flokksins um að fara
þyrfti yfir stöðuna í Evrópumál-
unum. Hann vildi þó ekki gefa ná-
kvæmlega upp hvort flokkurinn
hefði það á stefnuskránni fyrir
næstu kosningar að hætta aðildar-
viðræðum við ESB.
„Það hefur ýmislegt gengið á og
býsna langur tími síðan þetta ferli
hófst fyrir um þremur árum. Við
þurfum að skoða það og það er vilji
flokksráðsins að fara yfir stöðuna í
málinu m.a. með samstarfs-
flokknum,“ sagði Steingrímur.
Samstaða um að fara yfir
stöðuna í Evrópumálum
Vinstri grænir undirbúa komandi kosningabaráttu
Steingrímur J.
Sigfússon
„Það rennur nú upp fyrir æ
fleirum að Ísland er á réttri
leið undir stjórn okkar jafn-
aðarmanna,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir, forsætisráð-
herra og formaður Samfylk-
ingarinnar, á flokksstjórnar-
fundi Samfylkingarinnar um
liðna helgi.
„Fram hefur komið að fleiri
Íslendingar telja landið á
réttri leið en íbúar flestra
annarra Evrópulanda, aðeins
Svíar eru jákvæðari.“
Jóhanna sagði engum
blöðum um það að fletta að
Íslendingar ættu enn mikið
inni í hagvexti og auknum
efnahagsumsvifum. Hag-
vöxtur væri þó ekki markmið
í sjálfu sér heldur væri sjálf-
bær hagvöxtur ávísun á lífs-
gæði.
„Ísland er á
réttri leið“
HAGVÖXTUR MUN AUKAST