Morgunblaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Heimafólk er að gerastóra hluti í bæði tón-list og myndlist ogstærstu atburðir Ljós-
anætur þetta árið eru tónleikarnir
Með blik í auga og Allt eða ekk-
ert!, samsýning listamanna af Suð-
urnesjum,“ segir Valgerður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
menningarsviðs Reykjanesbæjar,
um 13. Ljósanóttina sem fram-
undan er. Efst á baugi er tónlist
og myndlist og helstu straumar og
stefnur í hönnun, handverki og
listum. Björk Þorsteinsdóttir, for-
maður menningarráðs Reykjanes-
bæjar, sagði að ekkert yrði gefið
eftir til þess að halda Ljósanóttina
sem fjölbreyttasta og glæsilegasta
sem endranær. „Við eigum mikið
og gott úrval af listafólki á öllum
sviðum og þessi hópur hefur vaxið
stöðugt frá fyrstu hátíðinni og er
árið í ár engin undantekning þar
á.“
Tónlist og tíðarandi
7. áratugarins
Tónleikarnir Með blik í auga
II í Andrew-leikhúsi hefur und-
irtitilinn Gærur, glimmer, gadda-
vír en þar verða tónlist og tíðar-
anda áratugarins 1970-1980 gerð
skil í tali, tónum og myndum. Tón-
leikarnir eru framhald af Með blik
í auga I sem vakti athygli á síð-
ustu Ljósanótt en þá var fjallað
um árin 1950-1970. Frumsýnt
verður miðvikudagskvöldið 29.
ágúst og tvær aðrar sýningar á
fimmtudagskvöldi og sunnudags-
kvöldi Ljósahátíðar. Að sögn
Kristjáns Jóhannssonar, handrits-
höfundar og fararstjóra, var hug-
myndin að láta tónleikana ekki
stangast á við aðra viðburði hátíð-
arinnar.
Flytjendur eru allir af Suður-
nesjum og tónlistin m.a. eftir
þekkta tónlistarmenn úr bítlabæn-
um. Það verður að teljast til tíð-
inda að feðgarnir Valdimar Guð-
mundsson og Guðmundur
Hermannsson syngja saman op-
inberlega í fyrsta sinn. Guð-
mundur mun einnig koma fram
með bræðrum sínum Karli og Ei-
ríki. Valdimar, sem hefur oftsinnis
komið fram á Ljósanótt sem bás-
únuleikari, söng í fyrsta sinn á
Ljósanótt fyrir ári með hljóm-
sveitinni Með blik í auga og þó
þeir feðgar hafi báðir komið fram
þá, var það hvor í sínu lagi, en
ekki saman eins og nú. „Það er
gaman að fá þetta tækifæri,“ sagði
Valdimar með hógværð og svaraði
neitandi spurningu blaðamanns
um hvort samkeppni væri á milli
þeirra feðga. „Þetta rennur bara
ljúflega.“ Guðmundur sagði enga
frekari samvinnu á döfinni en ekk-
ert væri útilokað þó. Hann hló svo
við þegar Valdimar fór að lauma
að honum ráðum við að muna
textana í lögunum. „Eggið er farið
að kenna hænunni.“
Myndlist eftir Suðurnesja-
menn skoðuð án fordóma
Annar stórviðburður Ljósa-
nætur er samsýning listamanna af
Suðurnesjum í Listasafni Reykja-
nesbæjar, Duushúsum, sem sendu
inn verk þegar leitað var að verk-
um fyrir sýninguna. Engin skil-
yrði voru sett enda er markmiðið
fyrst og fremst að sýna þá miklu
grósku myndlistar sem er á svæð-
inu. Tæplega 60 manns voru til-
búnir til þess að taka þátt og
sagði Inga Þórey Jóhannsdóttir
sýningarstjóri í samtali við blaða-
mann að breidd verkanna væri
mikil, „ekki bara í efnistökum og
framsetningu heldur einnig í aldri
listafólksins. Hér er stórt kyn-
slóðabil, rúm 60 ár á milli yngsta
og elsta þátttakanda.“ Hún sagði
sýninguna, sem nefnist Allt eða
ekkert, sýna þverskurð samfélags-
ins á Suðurnesjum og einstaka í
sinni röð. „Svona sýningar eru
mjög sjaldgæfar núorðið enda
opna söfnin ekki sali sína fyrir
ómenntaða listamenn. Það má því
segja að þetta sé myndlist án for-
Bræður, feðgar og
breytt aldursbil
Ljósanótt, menningarhátíð Reykjanesbæjar, verður formlega sett með blöðruslepp-
ingu fimmtudaginn 30. ágúst og í framhaldi rekur hver atburðurinn annan sam-
fleytt í 4 daga. Þar mun fjöldi listamanna af ýmsum sviðum koma saman.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Feðgar Valdimar Guðmundsson og Guðmundur Hermannsson syngja sam-
an opinberlega í fyrsta sinn á tónleikunum Gærur, glimmer, gaddavír.
Teheimurinn er víðfeðmur og geta te-
unnendur átt fullt í fangi með að
fylgjast með því sem er að gerast úti
í þeim stóra heimi. Ef þú vilt geta
fylgst með því sem efst er á baugi hjá
nágrönnum okkar Englendingum,
sem eru miklir teunnendur, er rétt að
kíkja á vefsíðuna www.lovetea.co.uk.
Þar er að finna flest það sem teunn-
andann gæti fýst að vita. Til að
mynda má finna upplýsingar um
tehátíðir á vefsíðunni og eins umfjöll-
un um te og tedrykkju úr blöðum og
tímaritum. Þarna er líka að finna
myndband í léttum dúr um ungan
mann sem segir frá reynslu sinni af
því að uppgötva te.
Vefsíðan www.lovetea.co.uk
Morgunblaðið/María Ólafsdóttir
Hressandi Að drekka te þykir mörgum gott í dagsins önn.
Skyggnst inn í teheiminn
Sýningin Arsbo-
realis – Mannlíf
og menning
norðurslóða verð-
ur opnuð í Ketil-
húsi á Akureyri
miðvikudaginn
29. ágúst kl. 15.
Sýningin er liður í
hátíðahöldum
vegna 150 ára af-
mælis Akureyrarbæjar og á henni
verða til sýnis munir og efni frá Græn-
landi, Íslandi, Færeyjum, Noregi og
norðvesturhéruðum Kanada. Sýndir
verða þjóðbúningar landanna, hand-
verk sem byggist á þjóðlegri hefð og
kvikmyndir frá síðustu öld sem sýna
vel þær ótrúlegu breytingar sem orðið
hafa á þjóðum norðurslóða. Sjónlista-
miðstöðin er opin alla daga vikunnar
nema mánudaga og þriðjudaga frá kl.
13 til 17 og aðgangur er ókeypis í boði
Akureyrarbæjar en sýningunni lýkur 7.
nóvember.
Endilega…
…sjáið sýningu
í Ketilhúsi
Norðurslóðir Ís-
björn slapar af.
Síðsumartónleikar í Þjóðmenning-
arhúsinu er yfirskrift tónleikaraðar
sem efnt verður til dagana 29.
ágúst til 4. september næstkom-
andi og þann 23. september. Í tón-
leikaröðinni koma fram nokkrir
framúrskarandi flytjendur; sópran-
söngkonan Antonia Maria Em-
anuela Palazzo, píanóleikararnir
Paolo Scibilia, Signe Bakke, Seb-
astiano Brusco, Peter Bortfeldt og
Kristín Jónína Taylor og Michael
Süssmann fiðluleikari. Yfirskrift
fyrstu tónleikanna þann 29. ágúst
er List hef ég séð eða Vissi d́arte
og hefjast þeir kl. 20 í bókasal
Þjóðmenningarhússins. Þar munu
Antonia Maria Emanuela Palazzo
sópran og Paolo Scibilia píanóleik-
ara flytja aríur úr ítölskum óperum
eftir Puccini, Verdi, Bellini o.fl.
Listrænir stjórnendur tónleikarað-
arinnar eru Sigurður Bragason,
Guðrún Birgisdóttir og Guðni
Bragason. Miðar verða seldir við
innganginn og er miðaverð á hvern
viðburð 2000 kr. en 1000 kr. fyrir
eldri borgara og nemendur. Eftir
tónleikana verður hægt spjalla við
tónlistarmennina yfir léttum veit-
ingum.
Síðsumartónleikar Þjóðmenningarhússins
Tónleikaröðin hefst með aríum
úr ítölskum óperum
Flytjendur Antonia Maria Emanuela
Palazzo og Paolo Scibilia.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
LAGER
SALA