Morgunblaðið - 27.08.2012, Page 5
Icelandair kynnir nýja ferðamöguleika fyrir Íslendinga
Sumarið 2013 býður Icelandair beint áætlunarflug til þriggja nýrra
áfangastaða, St. Pétursborgar í Rússlandi, Zürich í Sviss og Anchorage
í Alaska. Fleiri áfangastaðir renna fjölbreyttari stoðum undir hlutdeild
félagsins í farþegaflugi yfir Norður-Atlantshaf og gera þannig félaginu
kleift að sinna því meginhlutverki Icelandair að tryggja reglulegar og
tíðar flugsamgöngur á milli Íslands og Evrópu og Norður-Ameríku.
+ Nánari upplýsingar á icelandair.is
Nýr áfangastaður St. Pétursborg
Fáar borgir búa yfir jafn miklu aðdráttarafli og St. Pétursborg sem oft
er kölluð „Feneyjar norðursins“. Með síkjum sínum, brúm, torgum og
glæsihöllum er St. Pétursborg ólík öllum öðrum stöðum, sígilt safn
fágætrar listar og menningar.
Verið með okkur