Morgunblaðið - 27.08.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Margt gerðist um helgina.Kona týndist um helgina í
Eldgjá. Hundruð björgunarsveit-
armanna þyrptust á staðinn og
hófu leit.
Ýmsir fleiri tókuþátt í henni.
Þar á meðal týnda
konan. Það hefði
auðvitað átt að
greiða fyrir ár-
angri en gerði það
ekki.
Norðar héldu félagar í VGfund. Þar var sérstaklega
ekki rætt um aðlögun að ESB sem
flokkurinn stendur fyrir í ríkis-
stjórn. VG hefur ekki í stefnu í
málinu síðan hún sveik sína gömlu
stefnu.
Nú vildu ýmsir finna nýjastefnu. Líka þeir sem týndust
með henni. Katrín Jakobsdóttir
tók þátt í leitinni.
Í fréttum sagði: „Aðspurð hvaðaviðhorf gagnvart Evrópusam-
bandsaðild hafi verið ríkjandi seg-
ir hún stefnu flokksins ekki hafa
breyst hvað það varðar. „Afstaða
fólks til málsins hefur frekar
styrkst en hitt, við stöndum við
okkar stefnu í þeim efnum og vor-
um sammála að einmitt núna þurfi
að fara mjög vandlega yfir stöðu
þess,“ segir Katrín.“
Katrín gaf ekki upp hvaða af-staða hefði styrkst, og ekki
til hvaða máls, en virtist taka fram
að flokkurinn hennar myndi
standa við þá stefnu sem hann hef-
ur svo rækilega svikið.
Björgunarsveitir hljóta að veralagðar af stað til leitar enda
er komin upp eldgjá á milli flokks
og þjóðar.
Katrín
Jakobsdóttir
Katrín tók þátt
í leitinni
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 9 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað
Vestmannaeyjar 9 skýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 13 skýjað
Kaupmannahöfn 16 þrumuveður
Stokkhólmur 17 skúrir
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 13 skúrir
London 20 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 20 skýjað
Berlín 18 skýjað
Vín 17 alskýjað
Moskva 20 skýjað
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 skýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 25 skúrir
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:58 21:02
ÍSAFJÖRÐUR 5:54 21:15
SIGLUFJÖRÐUR 5:36 20:59
DJÚPIVOGUR 5:25 20:33
Mikil aðsókn hefur verið í Bláa lónið
í ár og sumarið gengið mjög vel. Að-
sóknin hefur þróast í takt við fjölgun
ferðamanna til Íslands á þessu ári,
að sögn Magneu Guðmundsdóttur
kynningarstjóra. Einnig var fjölgun
á síðasta ári eftir fækkun á gosárinu
2010. Erlendir gestir eru í meiri-
hluta, en upplýsingar eru ekki veitt-
ar um fjölda gesta.
Gestum frá Bretlandi og Banda-
ríkjunum hefur fjölgað í Bláa lóninu
og er það í samræmi við fjölgun ferðamanna frá
þessum löndum.
Glórulaus hækkun
Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa áhyggjur af
fyrirhugaðri hækkun á virðisaukaskatti á gist-
ingu ferðamanna hér á landi. Magnea segir að
hækkunin muni draga úr samkeppnishæfni Ís-
lands á alþjóðamarkaði og hafa þau áhrif að ferða-
mönnum til landsins muni fækka umtalsvert.
Hún segir að forsvarsmenn Bláa lónsins taki heils
hugar undir ábendingar Samtaka ferðaþjónust-
unnar og annarra aðila sem hafi bent á að þessi
ákvörðun stjórnvalda sé algjörlega glórulaus.
„Ef hækkunin verður að veruleika gerum við ráð
fyrir fækkun gesta Bláa lónsins,“ segir Magnea.
„Hækkunin mun sérstaklega hafa áhrif á verðmæta
ráðstefnu- og hvataferðahópa sem skipuleggja ferð-
ir sínar fram í tímann og eru mikilvægur hópur
ferðamanna utan háannatímans. Ákvörðun um
áfangastað þessara hópa veltur að miklu leyti á
verði á gistingu og flugi. Þessum hópum mun fækka
og hefur það bein áhrif á fjölda ferðamanna utan há-
annatímans.“ aij@mbl.is
Færri gestir með hærri skatti
Mikil aðsókn í Bláa lónið Hækkun hefði áhrif á ráðstefnu- og hvataferðahópa
Magnea
Guðmundsdóttir
Norðurheimskautsbaugshlaup verð-
ur haldið í Grímsey 8. september nk.
en þetta er fyrsta almennings-
hlaupið sem efnt er til í Grímsey.
Aldrei áður hefur almenningshlaup
verið haldið norðar á Íslandi. TVG
Zimsen er styrktaraðili hlaupsins.
Ræst verður í hlaupið kl. 11.00 að
morgni laugardagsins 8. september
við félagsheimilið Múla í Grímsey.
Tvær vegalengdir verða í boði – ann-
ars vegar einn hringur um eyjuna
sem er 12 km og hins vegar tveir
hringir sem eru 24 km. Tímataka
verður á báðum leiðunum.
Hægt er að komast til Grímseyjar
með ferjunni Sæfara og með flugi
með Norlandair og Flugfélagi Ís-
lands. Skráning er í hlaupið á vefn-
um www.hlaup.is en skráningu lýkur
föstudaginn 31. ágúst kl. 22.00. Ekk-
ert skráningargjald er í hlaupið.
Hlaupið yfir
heimskauts-
bauginn
Grímseyjarviti Hefur aðdráttarafl.