Morgunblaðið - 27.08.2012, Síða 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Í karlafans Inga Þórey Jóhannsdóttir sýningarstjóri, Sossa myndlistarkona, Guðlaug María Lewis verkefnisstjóri
ámenningarsviði og Valgerður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðsins við uppsetningu „Allt eða ekkert.“
dóma, leikir og lærðir saman í
fyrsta sinn.“ Valgerður Guð-
mundsdóttir framkvæmdastjóri
tók þó skýrt fram að hér væri
ekki um stefnubreytingu að ræða
hjá Listasafni Reykjanesbæjar, en
sú venja hefur skapast að heima-
fólk hefur verið í aðalhlutverki á
sýningu Listasafnsins. Sýningin
verður opnuð á fimmtudag, 30.
ágúst kl. 18:00, og stendur til 21.
október.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna tónleika á útisviði við Ægis-
götu bæði á föstudags- og laugar-
dagskvöld en þar mætir landsliðið
í tónlistinni, að því er fram kemur
á vef Ljósanætur. Retro Stefson,
Jónas Sig og ritvélar framtíð-
arinnar, Nýdönsk, Blár opal, Gál-
an, Eldar, Tilbury og Moses
Hightower koma þá fram, ásamt
Valdimar Guðmundssyni, Sigurði
Guðmundssyni, Ragnheiði Gröndal
og Sigríði Torlacius sem ætla að
heiðra minningu tónlistarsystk-
inanna úr Höfnum, Vilhjálms og
Ellyjar Vilhjálmsbarna og flytja
þeirra helstu dægurlagaperlur.
Þau systkini fengu stjörnuspor
Ljósanætur árið 2005, hugmynd
sem fengin var að láni frá Los
Angeles og afhent var á árunum
2003-2009.
Sjá nánar á vefsíðunni
www.ljosanott.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Baðherbergisvörur
20 -70% afsláttur
ÚTSALA
Teppi og dúkar
25% afsláttur
Í Grasagarðinum mátti sjá hefðarfrúr
á ferð með glæsilega hatta síðast-
liðið fimmtudagskvöld, en þá var
haldið svokallað „Ladies high tea“ að
breskum sið á Café Flóru.
„Mig hafði lengi dreymt um að
skapa svona stemningu hjá okkur og
ætlunin er að hafa þetta árlegt héðan
í frá. Þarna gafst konum tækifæri til
að klæða sig upp á, bera höfuðföt,
smakka á litlum, sætum skonsum,
kökum og samlokum og auðvitað
drekka kampavín. Þau Hrafnkell Már
Einarsson og Rakel María Axelsdóttir
tóku lagið og hér voru samankomnar
rúmlega 50 konur. Ég vildi líka minna
fólk á að sumarið er síður en svo búið
hér í Grasagarðinum,“ segir Mar-
entza Poulsen, veitingakona á Café
Flóru.
Teboð á Café Flóru
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Gleði Marentza Poulsen tekur vel á móti hattskrýddum gestum sínum.
Skonsur, kampavín og hattar
Veitingar Á borðum voru litlar kökur og önnur girnileg sætindi.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Dömuboð Kampavínið má ei vanta.
Karl Hermannsson var fyrsti
söngvari Hljóma og hefur sam-
ið bæði texta og lög, þótt að-
eins eitt þeirra hafi ratað á
plötu, Léttur í lundu. Guð-
mundur bróðir hans (Mummi)
hefur ekki síður verið áberandi
í tónlistarlífinu og hefur einnig
samið og gefið út plötur. Það
rifjast upp fyrir þriðja bróð-
urnum, Eiríki, í samtali við
blaðamann að það var einmitt
þegar Mummi var að pússa til
nokkur lög fyrir plötuútgáfu að þeir Karl voru fengnir til að syngja
bakraddir í hljómsveit sem hann setti saman við það tækifæri. „Þetta
var á M-hátíð í Keflavík fyrir margt löngu,“ sagði Eiríkur. Nú eru þeir
hins vegar allir jafnir og Eiríkur sagði gaman að þeir skyldu fá þetta
tækifæri, því þótt allir hefðu þeir sungið mikið í gegnum tíðina hefðu
þeir ekki sungið saman.
„Einhverjum datt í hug að fá okkur til að syngja saman á 60 ára af-
mælistónleikum Myllubakkaskóla, en faðir okkar, Hermann Eiríksson,
var skólastjóri þar í 27 ár. Þar sungum við eitt lag saman, Nowhere
man Bítlanna, en á Með blik í auga II syngjum við saman brot úr sex
lögum í syrpu.“ Eitt laganna í syrpunni er áðurnefnt lag og texti Karls,
Léttur í lundu, sem hann samdi fyrir hljómsveitina Dáta fyrir hartnær
hálfri öld. „Ég bauð þér á ball í Krossinn/þar bauðst mér fyrsti koss-
inn,“ var hent úr fyrir „Ég bauð þér á ball í Stapa/á því var engu að
tapa“ enda Krossinn þá aflagður sem skemmtistaður og Stapinn í
næsta nágrenni tekinn við sem einn aðalskemmtistaður Suðurnesja-
manna. Með laginu vildi Karl fanga stemninguna í Keflavík og þar
voru Pónik og Einar sem fluttu lagið fyrst í Stapanum.
„Ég bauð þér á ball í Stapa“
SÖNGBRÆÐUR KOMA SAMAN
Söngbræður Guðmundur, Karl og Eiríkur
koma saman á Ljósanótt.