Morgunblaðið - 27.08.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og
skráning á www.kontakt.is.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með matvæli. Ársvelta um 300 mkr.
Allt að 100% hlutur í rótgrónu fyrirtæki með einkennisfatnað. Góð afkoma og
vaxtamöguleikar.
Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði. Ársvelta 60 mkr. og
yfir 100% álagning.
Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði. Stöðug velta allt
árið.
Meðeigandi óskast að innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í loft-
kælingu. Viðkomandi þarf að mikla þekkingu á þessu sviði og hafa stjórnunar-
hæfileika. Fyrirtækið er mjög arðbært og mun skila eigendum góðri ávöxtun.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með vinsæla fjárfestingavöru fyrir heimili.
Stærsta fyrirtækið á þessu sviði og hefur verið með stöðuga veltu (um 130
mkr.) síðustu árin. Góður hagnaður og hagstæðar skuldir sem hægt er að
yfirtaka.
Óvenjulegt matvælafyrirtæki í smásölugeiranum sem hægt er að þróa mjög
skemmtilega. Ársvelta 150 mkr., stöðugt vaxandi frá 2004. EBITDA 24 mkr.
sem auðvelt er að auka í 40 mkr. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
Framleiðslufyrirtæki á matvælasviði með eigin verslanir. Ársvelta 450 mkr.
EBITDA 70 mkr.
Deild úr heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði. Ársvelta um 100 mkr.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Þann 7.september gefur
Morgunblaðið út sérblað tileinkað
börnum og uppeldi.
Víða verður komið við í
uppeldi barna bæði í
tómstundum þroska og öllu
því sem viðkemur börnum.
SÉRBLAÐ
MEÐAL EFNIS:
Öryggi barna innan og utan heimilis.
Barnavagnar og kerrur.
Bækur fyrir börnin.
Þroskaleikföng.
Ungbarnasund.
Verðandi foreldrar.
Fatnaður á börn.
Gleraugu fyrir börn.
Þroski barna.
Góð ráð við uppeldi.
Námskeið fyrir börnin.
Tómstundir fyrir börnin.
Barnamatur.
Barnaljósmyndir..
Ásamt fullt af spennandi efni um börn.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
3. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
Lögreglan á Selfossi veitti öku-
manni sem grunaður var um ölv-
unarakstur eftirför um klukkan
þrjú í fyrrinótt. Ökumaðurinn
sinnti ekki stöðvunarmerkjum lög-
reglu, jók hraðann og reyndi að
stinga af en endaði utan vegar.
Í Reykjavík var kona á fimmtugs-
aldri handtekin eftir harðan árekst-
ur tveggja bíla á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Sæbraut-
ar laust fyrir kl. 22 í fyrrakvöld.
Ekki urðu slys á fólki. Konan ók
öðrum bílnum og var ölvuð.
Vandræði vegna
ölvaðra ökumanna
Leit að erlendri konu var hætt um
klukkan þrjú í fyrrinótt þegar í
ljós kom að hún hafði allan tímann
verið í rútunni og meira að segja
tekið þátt í leitinni að sjálfri sér.
Konan, sem er af asískum upp-
runa, var talin hafa yfirgefið rútu
við Eldgjá í Skaftártunguafrétti og
ekki snúið aftur. Síðar kom í ljós
að hún kom aftur í rútuna, en
skipti um föt og snyrti sig svo aðr-
ir farþegar báru ekki kennsl á
hana.
50 björgunarsveitarmenn
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar stóð til síðdegis á
laugardag að senda þyrluna til
leitar á svæðinu en um 50 björg-
unarsveitarmenn á Suðurlandi og
lögreglan á Hvolsvelli höfðu allt
frá hádegi leitað konunnar. Þar
sem þokuloft var á svæðinu og
skyggni slæmt var ákveðið að
senda þyrluna ekki af stað.
Sveinn K. Rúnarsson, yfirlög-
regluþjónn á Hvolsvelli, segir í
samtali við mbl.is konuna alls ekki
hafa verið að blekkja samferðafólk
sitt eða björgunarsveitarmenn.
Hún hafi sjálf ekki kannast við lýs-
inguna sem gefin var á „týndu
konunni“ og samferðamenn henn-
ar báru ekki kennsl á hana eftir
fataskiptin.
Ung stúlka í rauðri kápu
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
konu er leitað sem er ekki týnd.
Sagt var frá því í Vísi 7. sept-
ember 1954 að mikil leit hefði ver-
ið gerð að ungri stúlku í rauðri
kápu. Hún hefði farið til berja í
Kjós með hundrað manna hópi en
ekki skilað sér til baka. Leitað var
fram í myrkur og auglýst eftir
henni í útvarpinu. Síðar kom í ljós
að hún hafði sjálf tekið þátt í leit-
inni.
Misskilningurinn stafaði af því
að gefin hafði verið röng lýsing á
fatnaði stúlkunnar „og raknaði
ekki úr flækjunni fyrr en stúlkan
gaf sig fram við lögregluna og
taldi líklegt að leitin hefði verið
gerð sín vegna“.
Tók þátt í leitinni
að sjálfri sér
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Víðast hvar hefur árið verið mjög
gott í skógum landsins og gæðunum
betur skipt heldur í fyrra þegar kuld-
ar voru um norðaustanvert landið
fram eftir sumri,“ segir Aðalsteinn
Sigurgeirsson, forstöðumaður Rann-
sóknarstöðvar skógræktar á Mó-
gilsá. „Maður er
orðinn svo góðu
vanur, að það sem
okkur finnst eðli-
legt í dag hefði
þótt sjálfsagt að
færa í annála fyrir
áratug eða svo.“
Aðalsteinn seg-
ir að lágur sum-
arhiti hafi lengst
af takmarkað
trjávöxt umfram
annað. Nú hafi orðið breyting á og í
ár stefni í að meðalhiti sumarsins
verði um tveimur gráðum yfir með-
allagi. Dreifing hita hafi einnig verið
góð og hlýrra alls staðar en í með-
alári, tiltölulaga síst þó austast á
landinu, einkum fyrripart sumars.
Ekki spariplanta
Þurrkar á ákveðnum svæðum hafi
gert nýgróðursetningar erfiðari en
ella, en þeir hafi ekki áhrif á tré sem
séu búin að koma sér fyrir. Vegna
þurrka hafi menn haldið að sér hönd-
um við gróðursetningu og á Vest-
urlandi dregið þær fram á haustið.
Takmarkað fjármagn spili einnig inn
í.
Aðalsteinn segir að árssprotar séu
víðast hvar góðir og nefnir sér-
staklega greni og furu sunnanlands.
„Flestar tegundir hafa spjarað sig vel
í ár og ég get nefnt öspina, sem
margir héldu fyrir um 20 árum að
væri slík spariplanta að hún ætti bara
heima í frjósömum einkagörðum, en
ekki úti í skóginum. Staðreyndin er
að öspin vex býsna vel á rýrum land-
gæðum sem menn héldu áður fyrr að
væri ekki við hæfi aspa,“ segir Að-
alsteinn.
Aðalsteinn segir að með hlýnandi
veðurfari hafi ýmsir skaðvaldar
komið til sögunnar sem vegi upp á
móti ánægjunni. Í ár hafi þó ekki
verið mikið um sveppasjúkdóma í
trjám.
Fiðrildið ertuygla hafi hins vegar
verið áberandi á Suður- og Vestur-
landi. Hún hafi einnig verið að
færa út kvíarnar og sé komin miklu
lengra inn í land en áður. Ertuygla
sé nánast alæta á gróður og sé
áberandi á lúpínu, en leggist einn-
ig á fjölmargar trjátegundir, t.d.
greni, ösp, og víðitegundir. Ekki sé
víst að ertuygla drepi tré þó að
hún éti lauf og nálar nánast upp til
agna. Mörg dæmi séu um tré sem
hafi verið aflaufguð eftir ertuygl-
una, en lifðu það af. Aðrar fiðrilda-
lirfur svo sem tígulvefari og annar
trjámaðkur á birki og víði séu í lág-
marki.
Asparglytta hafi breiðst út á
höfuðborgarsvæðinu og í vestan-
verðri Árnessýslu undanfarið. Eins
og nafnið ber með sér leggst þessi
bjöllutegund á aspir, en einnig
sumar víðitegundir. Hún hefur ver-
ið áberandi á höfuðborgarsvæðinu
í sumar og valdið því að víðirunnar
eru víða brúnir yfir að líta. Hún sé
kræsin á tegundir og líti ekki við
sumum víðitegundum, en éti aðrar
upp til agna.
Étur innvefi blaða
Úr pödduríkinu nefnir Aðalsteinn
einnig birkikembu, smávaxna
flugu, sem náð hefur bólfestu hér
á landi á síðustu árum. Hún hefur
verið áberandi á suðvesturhorninu
í sumar, en lirfurnar smjúga inn í
laufblöðin á vorin, koma sér þar
fyrir og éta innvefi blaðanna. Eftir
því sem lirfurnar dafna taka blöðin
að sölna, en fullvaxnar lirfur skríða
út úr belgnum og hverfa niður í
svörð þar sem þær púpa sig og
bíða næsta vors á því þroskastigi.
Ýmsir skaðvaldar koma til sög-
unnar með hlýnandi veðurfari
EKKI MIKIÐ UM SVEPPASJÚKDÓMA Í SUMAR
Slíkt sumar hefði farið
í annála fyrir áratug
Gott ár í skógum landsins Nýir skaðvaldar
Ljósmynd/Edda Sigurdís Oddsdóttir
Gróska Frá Mógilsá á fallegum sumardegi. Mikill vöxtur hefur verið í skógum landsins í sumar.
Aðalsteinn
Sigurgeirsson
Eldur kviknaði út frá eldavél í gisti-
heimili á Veghúsastíg laust fyrir
klukkan 18 í gærkvöldi. Þegar
slökkvilið mætti á staðinn fyllti reyk-
ur bygginguna og hiti var mikill.
Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum
eldsins en töluvert tjón varð á húsinu.
Reykur í gistihúsi
í miðbænum