Morgunblaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Umboðsmaður skuldara hefur þvælt með þetta
mál fram og til baka og þetta er orðið algjört
rugl,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður hjá
lögmannsstofunni Lagarökum, sem ásamt Hlyni
Ingasyni lögmanni hefur aðstoðað sjálfstæðan
atvinnurekanda sem óskaði eftir greiðsluaðlögun
hjá embætti Umboðsmanns skuldara.
Hafði beiðni mannsins verið samþykkt þegar
embættið tilkynnti að hann skuldaði skatta þó að
hann hefði gert upp við tollstjóra með skulda-
bréfi til fimm ára vegna tveggja milljóna króna
skattaskuldar. Hélt embættið því fram að hann
hefði fyrirgert rétti sínum á greiðsluaðlögun með
því að hafa samið um skattaskuldina og þannig
gert upp á milli kröfuhafa.
„Maðurinn hafði fengið greiðsluaðlögunina
samþykkta en umboðsmaður er að reyna að
koma honum út úr ferlinum, þar sem þeir telja að
hann skuldi ennþá skatta og eigi þess vegna ekki
rétt á greiðsluaðlögun,“ segir Sævar Þór sem
komið hefur að fjölda skuldamála einstaklinga.
Nýtti sér úrræði stjórnvalda
Um er að ræða einyrkja, eða sjálfstæðan at-
vinnurekanda, sem hafði verið með allt í skilum
að því undanskildu að skuld á opinberum gjöld-
um hjá Tollstjóra var komin í um 2 milljónir
króna. Sævar Þór segir manninn hafa nýtt sér
úrræði stjórnvalda varðandi skattaskuldir ein-
yrkja, samkvæmt lögum nr. 24/2010 um greiðslu-
uppgjör á gjöldum lögaðila og einstaklinga í at-
vinnurekstri sem voru þá í gildi. Borgaði hann
upp skuldirnar með útgáfu á skuldabréfi, sem
hann mun greiða af á fimm árum. Eftir þetta er
skuldastaðan hjá Tollstjóra sögð í núlli.
Sævar Þór segir að þar sem skattaskuldir séu
ekki afskrifaðar, þegar sótt er um úrræði hjá
Umboðsmanni skuldara, hafi maðurinn talið
mikilvægt að gera fyrst upp sínar skattaskuldir.
Sótti hann um hjá umboðsmanni og var um-
sóknin í fyrstu samþykkt. Síðan var honum sagt
að hann skuldaði skatta, sem hann neitaði eftir
að hafa gert upp við Tollstjóraembættið með
skuldabréfinu. Þá var maðurinn beðinn um það
hjá umboðsmanni að draga umsókn sína til
baka, staðgreiða skuldabréfið og sækja aftur
um greiðsluaðlögun. Þá myndi umsóknin fara í
gegn.
Afskrifa þarf einnig skattaskuldir
„Þetta er hið furðulegasta mál. Maðurinn átti
auðvitað engar tvær milljónir á staðnum til að
staðgreiða þessa skattaskuld en þá kom um-
boðsmaður og sagði að hann hefði mismunað
kröfuhöfum með því að borga upp skattaskuld
en ekki aðrar skuldir. Umboðsmaður er þarna
að skipta sér af skuld sem hvort eð er er ekki
hægt að afskrifa hjá embættinu og hann er að
vinna gegn hagsmunum umbjóðanda míns sem
sótti um úrræði ríkisstjórnarinnar fyrir þá sem
skulduðu skatta. Honum er refsað fyrir eitthvað
sem hann hafði fullan rétt á að gera. Þetta er
orðið algjört rugl og virðist sem embættið viti
ekkert hvað það er að gera,“ segir Sævar Þór og
telur brýnt að afskrifa einnig skattaskuldir í
núverandi úrræðum, það séu líka skuldir
eins og skuldir hjá fjármálafyrirtækj-
unum.
„Það þarf að taka heildstætt á vand-
anum. Í þessu tilviki er um að ræða mann
sem stundaði eigin rekstur, lenti í vand-
ræðum og sótti um úrræði. Hann fékk
þau samþykkt en núna á að taka þau af
honum af því að hann nýtti sér úr-
ræði sem ríkisstjórnin var búin að
búa til fyrir hann. Þetta er með
Skattaskuld hamlar greiðsluaðlögun
Einyrki fékk ekki samþykkta greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara vegna skattaskuldar
Hafði samið um skuldina með skuldabréfi Þetta er orðið algjört rugl, segir lögmaður mannsins
Morgunblaðið/Eggert
Skuldir Embætti Umboðsmanns skuldara í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni fær til sín
fjölda skuldamála og mörgum þarf að hafna vegna skattaskuldar viðkomandi einstaklings.
Svanborg Sigmarsdóttir, talsmaður Um-
boðsmanns skuldara, segir að almennt sé
litið þannig á að skattaskuld sé enn til
staðar þó að búið sé að semja við toll-
stjóra með skuldabréfi. Samkvæmt lög-
um um uppgjör um opinber gjöld, nr. 24/
2010, sé ákvæði um að ef bú viðkomandi
sé tekið til gjaldþrotaskipta falli sam-
komulagið úr gildi.
„Tollstjóri hefur litið svo á að greiðslu-
aðlögun sé sambærileg við gjaldþrota-
skipti og myndi ekki samþykkja samning
um greiðsluaðlögun ef há skuld á virð-
isaukaskatti er til staðar. Tollstjóri hefur
einnig litið svo á að ekki sé hægt að vera í
þessu tvöfalda kerfi; annars vegar með
samkomulag við tollstjóra og hins vegar í
greiðsluaðlögun hjá okkur,“ segir Svan-
borg.
Hún tekur undir með lögmanni manns-
ins um að það ætti að vera auðveldara
en það er að semja um skattaskuldir
í greiðsluaðlögun, sér í lagi ef um
lágar fjárhæðir er að ræða. Vísar
Svanborg til þess sem Norð-
menn gerðu við úrvinnslu
skuldamála; að taka allar
skuldir með í reikninginn,
einnig skattaskuldir. Emb-
ættið vísi frá mörgum um-
sóknum vegna skatta-
skuldar einstaklinga.
Skattaskuldin
enn til staðar
TALSMAÐUR UMBOÐSMANNS
Casamode
ÍTÖLSK
HÖNNUN
eins og hún gerist best
Glæsilegar flísar
fyrir fagurkera
Ármúli 8 I 108 Reykjavík
Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Svanborg
Sigmarsdóttir