Morgunblaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Bandaríski geimfarinn Neil Arm-
strong er látinn, 82 ára að aldri.
Fjölskylda hans tilkynnti andlátið í
fyrradag en Armstrong lést af
fylgikvillum hjartaaðgerðar sem
hann gekkst undir vegna krans-
æðastíflu. Armstrong komst í sögu-
bækurnar fyrir að stíga fyrstur
manna á tunglið þann 22. júlí árið
1969. Armstrong stýrði tunglför-
inni en með honum í geimferjunni
Apollo 11 voru þeir Edwin „Buzz“
Aldrin og Michael Collins. Aldrin
gekk einnig á tunglinu en ekki Coll-
ins.
„Ein af mestu hetjum
Bandaríkjanna“
Þegar geimfarið lenti á tunglinu
tilkynnti Armstrong þeim 500 millj-
ónum manna, eða þar um bil, sem
fylgdust með lendingunni í beinni
sjónvarpsútsendingu, að „örninn
væri lentur“. Ummæli Armstrongs
er hann steig fæti á tunglið eru svo
einhver þau fleygustu á 20. öldinni:
„Þetta er lítið skref fyrir mann en
risastökk fyrir mannkynið.“
Meðal þeirra sem minnst hafa
Armstrongs er Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, en hann hitti
geimfarann í Hvíta húsinu fyrir
tveimur árum, þegar 40 ár voru lið-
in frá tunglferðinni. „Neil Arms-
trong var ein af mestu hetjum
Bandaríkjanna. Ekki aðeins hetja
sinnar samtíðar heldur allra tíma,“
segir í yfirlýsingu frá forsetanum
og ljóst að Armstrong var og verð-
ur mikil þjóðhetja í heimalandi
sínu. Geimfarinn Michael Collins
sendi einnig frá sér yfirlýsingu og
segir í henni að Armstrong hafi
verið „sá besti“ og að hann muni
sakna hans óskaplega.
Hlédrægur og einrænn
Geimvísindastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, sendi verðandi tungl-
fara hingað til lands tvisvar sinnum
til æfinga fyrir tunglferðina, á ár-
unum 1965 og 1967 og stunduðu
þeir æfingar og rannsóknir í Öskju
og Veiðivötnum. Nauðsynlegt þótti
að geimfararnir hefðu þekkingu í
jarðfræði til að geta sinnt rann-
sóknum á tunglinu og nutu þeir því
leiðsagnar jarðfræðinganna Sig-
urðar Þórarinssonar og Guð-
mundar E. Sigvaldasonar. Arm-
strong kom hingað með seinni
hópnum, árið 1967.
Sverrir Pálsson, ljósmyndari og
fréttaritari Morgunblaðsins, tók
myndir af honum í þeirri ferð og
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið í gær að Armstrong hefði
verið hlédrægur og einrænn, þótt
gott að vera í rólegheitum og verið
afskaplega elskulegur maður.
Hann hafi hitt hann fyrst við Hellu-
vað en þá hafi hópurinn verið á leið
austur í Dyngjufjöll, í Drekagil þar
sem hann hafi slegið upp tjaldbúð-
um. Armstrong hafi fengið lánaða
veiðistöng og ætlað að renna fyrir
silung í hólmunum við Helluvað í
Mývatnssveit. Sverrir myndaði
Armstrong með veiðistöngina og
spjallaði við hann en segist ekki
vita hvort bitið hafi á hjá geimfar-
anum. helgisnaer@mbl.is
Ljósmynd/Sverrir Pálsson
Þjóðhetja Bandaríski geimfarinn Neil Armstrong við veiðar á Íslandi árið
1967. Hann kom hingað til lands með hópi verðandi tunglfara.
AFP
Geimfari Ljósmynd sem tekin var
af Armstrong í júlí árið 1969.
Þjóðhetjan Neil Armstrong látin
Fyrsti maðurinn sem steig á tunglið Æfði sig á Íslandi fyrir tunglgönguna
árið 1967 Fréttaritari Morgunblaðsins minnist hans sem elskulegs manns
Uppreisnarmenn
í Sýrlandi segja
stjórnarherinn
þar í landi hafa
framið fjölda-
morð í bænum
Daraya í ná-
grenni höfuð-
borgarinnar Da-
maskus. Í það
minnsta 320 lík
hafi fundist í
bænum, m.a. látnar konur og börn.
Uppreisnarmenn segja flest fórnar-
lambanna hafa verið tekin af lífi af
hermönnum sem farið hafi hús úr
húsi. Máli sínu til stuðnings hafa
uppreisnarmenn sett á netið mynd-
bönd af líkum og þá m.a. af börnum
sem virðast hafa verið skotin í höf-
uðið, að því er fram kemur í frétt á
vef Reuters.
320 lík fundust í
Daraya í Sýrlandi
Bashar al-Assad,
forseti Sýrlands
Tvær ónefndar
konur úr pönk-
sveitinni Pussy
Riot hafa flúið
heimaland sitt
Rússland til að
komast hjá hand-
töku, að því er
greint er frá á vef
breska ríkis-
útvarpsins. Á
Twitter-síðu
Pussy Riot segir að konurnar ætli að
fá erlenda femínista í lið með sér og
undirbúa næstu skref. Þrír af fimm
liðsmönnum Pussy Riot voru dæmd-
ir til tveggja ára fangelsisvistar fyrr
í mánuðinum fyrir mótmælagjörn-
ing sem hljómsveitin framdi í kirkju
í Moskvu í febrúar síðastliðnum.
Tvær úr Pussy Riot
flúnar úr landi
Stuðningsmaður
Pussy Riot í Berlín