Morgunblaðið - 27.08.2012, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Hollande,forsetiFrakk-
lands, á ekki sjö
dagana sæla. Ekki
einu sinni hveiti-
brauðsdagana, ef
marka má skrif
fréttaskýrenda. Hann flaut
reyndar inn í sitt embætti á
ógöngum og óvinsældum
Sarkozys, fyrirrennara síns.
En þær óvinsældir sóttu miklu
síðar á Sarkozy en þær gera á
Hollande nú.
Ekki eru þó allar fréttir af
Hollande forseta súrar og
svekkjandi fyrir hann. Ein sú
síðasta sagði frá því að nú væri
það fræga safn Madame Tuss-
aud búið að gera af honum
mynd í fullri líkamsstærð og
koma fyrir í sínum sölum (en
þeir Sarkozy eru nákvæmlega
jafnlangir þótt „stórblöðin“
geri ekkert með hæðina á Hol-
lande í sínum skrifum en mjög
var híað á Sarkozy).
Safn Tussaud í London er sí-
fellt mjög vel sótt og langar
biðraðir myndast þar á hverj-
um degi. Frú Marie Tussaud
var myndhöggvari, eins og
kunnugt er, og konan sem er
nú aðalmyndhöggvarinn í vax
þar á bæ gat þess aðspurð,
þegar lokahönd var lögð á for-
setann að gerð hverrar styttu
kostaði 150 þúsund pund, sem
er rétt tæpar 30 milljónir ís-
lenskra króna.
Þessi góða frétt af „vaxandi“
frama franska forsetans beinir
huganum af vaxmyndasafninu
okkar. Af einhverjum ástæð-
um hefur það safn alltaf verið
hálfgert feimnismál á Íslandi.
Ekki er til góð skýring á því
fyrirbæri. Vera má að það sé
vegna aðdraganda þess eða þá
vegna þess að Halldór Lax-
ness, sem settur var með sínu
samþykki í vax fékk síðar bak-
þanka. Vera má að Þjóðminja-
safninu hafi heldur ekki þótt
þessi gjöf Íslandsbersa, sem
engum mönnum var líkur og
stórmenni í mörgum skilningi,
ætti beint heima í safninu. En
ef notuð er tala myndhöggvar-
ans hefur gjöfin verið svo sem
eins og einn milljarður á nú-
virði!
En hvað sem framan-
greindri feimni líður þá hefur
íslenskur almenningur hennar
vegna sárasjaldan fengið að
berja þetta safn augum síðustu
áratugina. Að vísu segir sagan
að Æskulýðsfylkingin hafi eitt
sinn fengið Stalín lánaðan til
hátíðarbrigða niður í Tjarnar-
götu 20 og Stalín hafi týnst um
hríð í framhaldinu (rétt eins og
stefna VG í ESB-málum) og
það hafi verið óþægilegt fyrir
safnið og eiginlega sérstakt
feimnismál. Sé þetta sönn saga
er hún bara skemmtileg.
En upplýsingar
aðalmyndhöggv-
ara hjá Madame
Tussaud um kostn-
að við gerð hverrar
vaxmyndar sýnir
að minningargjöf
Óskars Halldórs-
sonar um son sinn hefur verið
einhver stórbrotnasta gjöf ein-
staklings til sinnar þjóðar,
enda maðurinn stórtækari en
flestir aðrir menn. Í gjöf hans
voru vaxmyndir af íslensku og
erlendu frægðarfólki. Þar voru
í vaxi: Anna Borg, Ásgeir Ás-
geirsson, Benedikt Sveinsson,
Björn Ólafsson, Björn Þórðar-
son, Davíð Stefánsson, Einar
Arnórsson, Helgi Pjeturss,
Hermann Jónasson, Jónas frá
Hriflu, Ólafur Friðriksson,
Ólafur Thors, Óskar Hall-
dórsson, Óskar Theódór Ósk-
arsson, Sigurður Nordal,
Sveinn Björnsson, Vilhjálmur
Stefánsson, Vilhjálmur Þór,
Halldór Kiljan Laxness, Hans
Christian Andersen, Roald
Amundsen, Robert Baden-
Powell, Napoleon Bonaparte,
Winston Churchill, Thomas
Alva Edison, Paul von Hind-
enburg, Adolf Hitler, Chiang
Kai-Shek, Martin Luther, Be-
nito Mussolini, Franklin D.
Roosevelt, William Shake-
speare og Stalín. Það hefur
ekki í annan tíma verið annar
eins hópur á einum stað.
Það er fyrir löngu kominn
tími til að hætta að sýna þess-
ari stórgjöf Óskars Halldórs-
sonar ósóma vegna spé-
hræðslu eða einhvers annars.
Ef safninu væri komið fyrir
með aðgengilegum hætti yrði
það vafalítið eftirsótt af al-
menningi. Og kannski eru enn
þá til stórhuga menn sem vildu
bæta við þetta merka safn og
auka þar með enn gildi þess og
aðdráttarafl. Þarna mætti
bæta við Jónasi Hallgrímssyni
og Einari Benediktssyni og
bæta þeim upp einmanaleik-
ann úr heiðursreitnum á Þing-
völlum, sem Laxness drap líka.
Tómas, Steinn og Hannes
myndu punta upp á. Og það
færi t.d. ekki illa á því að
þarna sætu þeir Fischer og
Spassky að tafli við sitt fræga
borð (eða eitt af þeim). Og ekki
ættu þeir síður heima þarna
hetjurnar frá fundinum í
Höfða 1986, þeir Ronald Reag-
an og Mikhaíl Gorbatsjov, eða
þær Hófí, Guðrún og Linda,
Armstrong í Ódáðahrauni,
Sigurbjörn biskup, Eiríkur
Kristófersson, Björk og Vig-
dís, svo nokkrir séu nefndir af
handahófi. Færi ekki best á
því að Ernst Backman myndi
hafa þetta safn til umsjónar í
námunda við sitt myndarlega
safn í Perlunni um fólk frá
fornum tíma?
Aðeins lítill hópur
hefur fengið að sjá
vaxmyndasafnið,
sem gæti verið vísir
að öðru meira}
Vaxmyndir úr skáp
R
ökin gegn því að ganga í Evrópu-
sambandið hafa aldrei verið jafn
augljós og sannfærandi og einmitt
nú. Enginn veit hve háar upp-
hæðir aðildarríkin eiga eftir að
greiða í sameiginlega björgunarsjóði fyrir
bankaskuldir Suður-Evrópu. Enginn veit hvern-
ig evrunni reiðir af né Evrópusambandinu eftir
örfá misseri.
Tvennt er þó sennilegt: Ef ESB verður áfram
til, breytist það í fullkomið ríkjasamband með
eina utanríkis-, fjármála- og skattastefnu og
hefðbundið framkvæmdavald. Ríkisstjórnir
þeirra þjóða sem þar eru innanborðs breytast í
einhvers konar sveitarstjórnir og þjóðirnar
missa endanlega sitt fullveldi, nema auðvitað
stórveldin sem fara sínu fram í krafti yfirburða.
Ef við göngum í Evrópusambandið við slíkar
aðstæður breytist þjóðin í Kópasker Evrópu og skrifar undir
óútfylltan tékka sem enginn veit hvað verður hár né hvenær
eða hversu oft hann verður innleystur. Afsalið verður end-
anlegt og óvissan algjör.
Til að bæta gráu ofan á svarta Evrópupólitík Samfylking-
arinnar hafa allar marktækar skoðanakannanir um ESB-
aðild sl. fjögur ár bent til þess að mikill og sívaxandi meiri-
hluti þjóðarinnar kjósi Ísland en hafni ESB.
Enn getur vont versnað því ríkisstjórn og ríkisstjórnar-
flokkar skipa sér í andstæðar fylkingar um þessa kostulegu
aðildarumsókn og málpípur Evrópusinna eru rökþrota og
þagnaðar ef frá eru talin örfá, einmana flettiskilti, fjár-
mögnuð af ESB. En hvers vegna situr Samfylk-
ingin samt við sinn keip, þrátt fyrir allt þetta og
margt fleira? Hver er ástæða þráhyggjunnar?
Hún verður ekki skýrð nema með ýtrustu
flokkshagsmunum þessa góða flokks.
Samfylkingin er dyntótt og óráðið stjórn-
málaafl. Hún á enn langt í land með að sýna að
hún sé annað og meira en stjórnmálaflokkur
einnar kynslóðar – 68 kynslóðarinnar. Sú kyn-
slóð hefur að vísu ekki látið deigan síga, en hún
er u.þ.b. á leiðinni í þjónustuíbúðir aldraðra.
Samfylkingin varð upphaflega til sem pott-
réttur úr afgöngum Alþýðuflokksins, Alþýðu-
bandalagsins, klofningsframboðs Jóhönnu og
Kvennalista. Þessi fylking stóð í upphafi frammi
fyrir einum meginvanda: utanríkisstefnu. Þar
þurfti að sætta tvo hatramma andstæðinga:
Staðfasta málsvara vestrænnar samvinnu sem
þá voru u.þ.b. að vinna kalda stríðið, og harða hernáms-
andstæðinga sem sumir höfðu í heildina gengið hringinn í
kringum landið í Keflavíkurgöngum og fórnað röddinni fyrir
slagorðið: Ísland úr Nató – herinn burt!
Þetta var eins og að búa til pottrétt úr gamalli jólaköku og
12 ára hákarli. Hér þurfti því heldur betur „þriðja kryddið“.
Aðild að Evrópusambandinu er þetta „þriðja krydd“ og límið
í Samfylkingunni.
Þjóðin hefur ekkert við þetta krydd að gera og vill ekki sjá
það – en spurningin er auðvitað sú, hvort Samfylkingin geti
verið án þess – þegar það hverfur.
kjartangunnar@mbl.is
Kjartan G.
Kjartansson
Pistill
Þegar kryddið hverfur
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
A
ldrei hafa fleiri Íslend-
ingar sótt skóla en um
þessar mundir. Endan-
legar skráningartölur
fyrir skólaárið sem er að
hefjast liggja ekki enn fyrir en sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar var
107.741 nemandi skráður í nám við
upphaf haustannar 2011 allt frá leik-
skólastigi og upp í framhaldsnám í
háskóla. Það voru tæp 34 prósent af
öllum Íslendingum hinn 1. janúar í
ár.
Í nýrri skýrslu Eurydice, sem er
upplýsinganet um menntamál í Evr-
ópu, kemur fram að á Íslandi hafi
hæst hlutfall landsmanna verið skráð
í skóla í Evrópu árið 2009 eða rúm-
lega þrjátíu prósent. Það er rakið til
þess að á Íslandi sé næsthæst hlutfall
fólks undir þrítugu á svæðinu á eftir
Tyrklandi.
Þetta er talsvert hærra hlutfall
en í Evrópusambandslöndunum þar
sem það var 21,5 prósent að meðaltali
árið 2009. Þar hafði það lækkað um
1,2 prósent frá árinu 2000 samkvæmt
tölum evrópsku hagstofunnar.
Þróun sem heldur áfram
Jón Torfi Jónasson, prófessor og
forseti Menntavísindasviðs Háskóla
Íslands, segir það ekkert nýtt að
hlutfall skólafólks hækki á Íslandi.
Eftirspurnin eftir menntun hafi lengi
verið í vexti.
„Sókn fólks í viðurkennda
menntun hefur aukist í heila öld.
Stundum er lát á í einhver ár en í
heildina eykst ásóknin stöðugt.
Langtímaþróunin er sterk og skýr og
mun halda áfram,“ segir hann.
Mest hefur fjölgunin orðið á há-
skólastiginu þar sem hún hefur verið
stöðug um 4-5 prósent á milli ára að
jafnaði en hún nær yfir öll skólastig
og aldurshópa að sögn Jóns Torfa.
Skólasókn er hlutfallslega mest á
leik- og grunnskólaaldrinum þar sem
nánast allir úr hverjum árgangi eru í
skóla og framhaldsskólastigið nálg-
ast það að mettast.
„Þar er talsverð sókn í menntun
hjá fólki sem ekki lauk framhalds-
skóla á sínum tíma. Hlutfallið vex í
öllum aldurhópum, ekki síst yfir þrí-
tugu. Hlutfallslega færri úr þeim
hópi sækja skóla en þeim fjölgar
samt líka,“ segir hann.
Sveiflur í stærð árganga hafa til-
tölulega lítil áhrif á hlutfall þeirra
sem sækja efri skólastigin vegna
þess hve aldursdreifingin er mikil.
Aðgengið batnað
Hann segir menntun lúta lög-
málum neysluvörunnar.
„Það eru mikil verðmæti fólgin í
þekkingunni og ekki síst prófgráð-
unum. Þeim mun fleiri sem hafa þær,
þeim mun fleiri sækjast eftir þeim.
Fólk notar þær til að styrkja sam-
keppnisstöðu sína á vinnumarkaði en
það gerir sér líka grein fyrir því að
menntunin gefur margvíslegt vega-
nesti,“ segir Jón Torfi.
Aðgengi að námi segir hann
hafa batnað mikið, til dæmis með því
að nú séu víðar framhalds- og háskól-
ar en áður fyrr. Auk þess opnist alls
konar möguleikar fyrir fólk með fjar-
námi. Hvort tveggja hafi liðkað fyrir
þessari mikilvægu aukningu.
Styrkleiki sem má ekki fórna
Þrátt fyrir þann vanda sem
brottfall nemenda skapar segir Jón
Torfi kerfið á móti búa yfir þeim
mikla styrkleika að vera mjög opið.
Þeim kosti kerfisins megi ekki fórna.
„Hér hefur fólk tækifæri og tök
á að komast inn í skóla eftir að venju-
legum skólaaldri lýkur. Þetta er gríð-
arlega mikilvægur hlekkur í íslensku
skólakerfi. Sumir átta sig ekki á hvað
þetta er nánast ómögulegt í sumum
löndum,“ segir hann.
Morgunblaðið/Eggert
Menntavegur Nemendum hefur fjölgað mest í háskólum landsins.
Háskólanemum fjölgaði um tvö þúsund frá 2007 til 2011.
Eftirspurnin eftir
menntun eykst stöðugt
42.365
er fjöldi grunnskólabarna á Íslandi
við upphafi haustannar 2011 skv.
tölum Hagstofu Íslands
26.153
er fjöldi framhaldsskólanema á
landinu á sama tíma
18.647
er fjöldi nemenda sem skráðir voru í
nám í háskólum landsins haustið
2011
452
doktorsnemar stunduðu rannsóknir
við háskólana á sama tíma
‹ FJÖLDI Á SKÓLASTIGI ›
»