Morgunblaðið - 27.08.2012, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Ég er ennþá að reyna að ákveða mig. Mér finnst gaman að fápakka en ekkert sérstakt að halda veislu. Allt sem flokkastundir vesen, við viljum það ekki,“ segir Heiða Dóra Jóns-
dóttir heilsuhagfræðingur sem er enn að reyna að gera upp við sig
hvort hún eigi að halda upp á þrítugsafmæli sitt með pomp og prakt.
Hún segist þó ætla að hita upp fyrir afmælishald um næstu helgi
með því að hitta gamla félaga úr hagfræðináminu. „Afmælið er
samt eiginlega notað sem yfirskin til að smala fólki saman. Það er
erfitt að segjast ekki mæta í þrítugsafmæli!“ segir hún glettin.
Undanfarið hefur Heiða Dóra starfað sem verkefnastjóri hjá Risk
Medical Solutions. Því verki fer senn að ljúka og segist hún því
þurfa að hafa augun hjá sér eftir nýrri vinnu. Hún er menntaður
heilsuhagfræðingur en hún segist jafnvel geta hugsað sér doktors-
nám úti í heimi þar sem hlýtt er í veðri í framtíðinni.
Heiða Dóra hefur lengi verið viðloðandi magadans og varð meðal
annars tvisvar sinnum Íslandsmeistari í dansinum sem hún segir
hafa fallið nokkuð í skuggann af nýjum dönsum sem hafi komist í
tísku undanfarið. Hún kenndi um tíma magadans en núna segist hún
aðallega koma fram á árshátíðum eða gæsapartíum. „Mig er samt
jafnvel farið að langa aftur í tíma. Það gæti verið gaman,“ segir
hún. kjartan@mbl.is
Heiða Dóra Jónsdóttir er þrítug í dag
Heilsuhagfræðingur Heiða segist jafnvel geta hugsað sér að fara í
doktorsnám úti í heimi, einhversstaðar þar sem hlýtt er í veðri.
Afmælið sem yfir-
skin fyrir smölun
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Laufey Sölmundardóttir, Tara Líf Franksdóttir, Ágústa Bergrós Jakobsdóttir,
María Kristín Sigurðardóttir og Teitur Sölmundarson seldu dót og spiluðu á
hljóðfæri og söfnuðu með því 12.983 kr. sem þau gáfu Rauða krossi Íslands.
Söfnun
Reykjavík Einar Máni fæddist 19.
mars kl. 10.33. Hann vó 3.345 g og var
49 cm langur. Foreldrar hans eru Ingi-
björg Sigurðardóttir og Guðni Ellert
Edvardsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Eygló Perla Blöndal fædd-
ist 29. nóvember kl. 6.13. Hún vó
3.945 g og var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Ása Margrét Sigurjóns-
dóttir og Sigurður Garðar Flosason.
S
jón (Sigurjón Birgir Sig-
urðsson)fæddist í
Reykjavík og lauk stúd-
entsprófi frá FB 1982.
Hann var einn af for-
kólfum Me-dúsu, hóps ungra súr-
realista í upp-hafi níunda áratug-
arins, var starfsmaður í Fellahelli
1979-85, einn af stofnendum list-
smiðjunnar Gagn og gaman í Gerðu-
bergi, var veraldlegur ráðgjafi út-
gáfufyrirtækisins One Little Indian
1995-97, andlegur ráðgjafi OZ.com
1997-99, var gestaprófessor við
Freie Universität í Berlín 2007-2008
og hefur kennt við Listaháskólann í
Reykjavík.
Ljóðabækur Sjóns eru Sýnir Yrk-
ingar, 1978; Birgitta: hleruð símtöl,
1979; Madonna, 1979; Hvernig elsk-
ar maður hendur? (ásamt Matthíasi
S. Magnússyni), 1981; Reiðhjól
blinda mannsins, 1982; Sjónhverf-
ingabókin, 1983; Oh! (isn’t it wild),
1985; Drengurinn með röntgen-
augun, ljóð 1978-1986, 1986; Leik-
fangakastalar sagði hún það er
ckkert til sem heitir leikfangakas-
talar, 1986; Ég man ekki eitthvað
um skýin, 1991; Myrkar fígúrur,
1998, og Söngur steinasafnarans,
2007.
Skáldsögur Sjóns: Stálnótt, 1987;
Engill, pípuhattur og jarð-
arbcr,1989; Augu þín sáu mig, 1994;
Með titrandi tár, 2001; Skugga-
Baldur, 2003; Argóarflísin, 2005 og
Rökkurbýsnir, 2008.
Barna- og unglingabækur Sjóns
eru Ævintýri Tinnu og Hreins
Borgfjörð 1937, 1989; Sagan af húf-
unni fínu, 1995; Númi og höfuðin
sjö, 2000, og Sagan af furðufugli,
2002.
Leikrit Sjóns eru Tóm ást, fyrir
Herranótt í MR, 1989; Keiluspil, rit-
Sjón - rithöfundur og skáld - 50 ára
Morgunblaðið/Heiddi
Hjónin Sjón og kona hans, Ásgerður Júníusdóttir söngkona en myndin var tekin á frumsýningu á Ufsagrýlum.
Sífellt sögum ríkari
Morgunblaðið/Valdís Thor
Afmælisbarnið Myndin var tekin af
Sjón í tilefni af tökum á myndinni
Whale Watching Massacre.
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður