Morgunblaðið - 27.08.2012, Side 23
að fyrir útskriftarhóp Leiklistar-
skólans, 1990; Ástir Bjartmars Ísi-
dórs, Leikfélag Kvennaskólans
1991; Skuggaleikur, ópera í sam-
vinnu við Karólínu Eiríksdóttur,
frumflutt af Strengjaleikhúsinu
2006; Ufsagrýlur, frumsýnt af Lab
Loka 2010; Tales from a Sea Jour-
ney, frumsýnt af New International
Encounter 2011; The Motion Dem-
on, ópera í samvinnu við Steingrím
Rohloff, frumsýnd af Figura En-
semble 2011.
Þá gerði hann kvikmynda-
handritið Allt er svo, sjónvarps-
leikrit, hjá RÚV 1992, og Regína,
ásamt Margréti Örnólfsdóttur, 2002.
Auk þess handritin að Önnu og
skapsveiflunum, 2007, og Reykjavik
Whale Watching Massacre, 2009.
Hann gerði söngtexta fyrir
söngvamyndina Dancer in the Dark,
í samvinnu við Lars von Trier, hefur
gert texta á plötum Bjarkar Guð-
mundsdóttur og á ýmsum öðrum
hljómplötum, og gaf út slagarann
Luftgítar, undir nafninu Johnny
Triumph, í samvinnu við Sykurmol-
ana og hljómdiskinn Kanildúfur,
með Baldri J. Baldurssyni, útg.
1998.
Sjón hefur haldið nokkrar einka-
sýningar á myndverkum; í Skruggu-
búð 1982; Gallerýi Langbrók 1985;
Gallerí Kinoshita (Liége)
1989; Laugavegi 22, 1991 og í
Gallcrí Gangi 2002.
Verk eftir Sjón hafa verið þýdd á
fjölda tungumála og tilnefnd til bók-
menntaverðlauna víða um heim.
Hann hlaut Menningarverðlaun DV
1995; Viðurkenningu úr Rithöf-
undasjóði Ríkisútvarpsins 1998;
Menningarverðlaun DV 2002; til-
nefningu til Óskarsverðlauna 2001
og Golden Globe-verðlaunanna
2001, ásamt Björk og Lars von
Trier, í flokknum besta frumsamda
sönglag í kvikmynd: I’ve seen it all,
og hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, 2005, fyrir skáld-
söguna Skugga-Baldur.
Sjón hefur setið í stjórn Smekk-
leysu frá 1998, er forseti PEN á Ís-
landi, formaður stjórnar Bók-
menntaborgar UNESCO, situr í
stjórn Alþjóðlegu bókmenntahátíð-
arinnar í Reykjavík og er fulltrúi í
Mannréttindaráði Reykjavíkur-
borgar.
Fjölskylda
Eiginkona Sjóns er Ásgerður
Júníusdóttir, f. 26.9. 1968, söngkona.
Hún er dóttir Guðrúnar Guðlaugs-
dóttur, f. 20.7. 1944, blaðamanns, og
Júníusar Kristinssonar, f. 12.2.
1944, d. 7.1. 1983, sagnfræðings.
Börn Sjóns og Ásgerðar eru
Júnía Líf Maríuerla, f. 21.7. 1992, og
Flóki, f. 30.4. 1999.
Hálfsystkini Sjóns, samfeðra, eru
Ragnheiður, f. 30.5. 1968; Gísli, f.
13.9. 1970; Ragnar, f. 23.9. 1974; Jó-
hann Örn, f. 10.6. 1976.
Foreldrar: Áslaug Jónína Sverr-
isdóttir, f. 24.9. 1936, fyrrv. banka-
starfsmaður, og Sigurður Geirdal
Gíslason, f. 4.7, 1939, d. 29.11. 2004,
bæjarstjóri í Kópavogi.
Úr frændgarði Sigurjóns Birgis Sigurðssonar (Sjón)
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Eskifirði
Sigurjón Einarsson
sjóm. á Eskifirði
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Móum í Kjalarnesi
Jóhanna Lovísa Gísladóttir
húsfr. á Vatn
Sjón
Sigurður Geirdal Gíslason
bæjarstj. í Kópavogi
Áslaug Jónína Sverrisdóttir
fyrrv. bankam.
Sverrir Matthíasson
framkvæmdastj. í Keflavík
Sigfríð Sigurjónsdóttir
húsfr.
Freyja Geirdal
húsfr. í Keflavík
Gísli Sigurðsson
sjóm. í Keflavík
Dagbjört Ásgrímsdóttir
húsr. á Grund í Svarfaðardal
Kristinn Ásgrímsson
járnsm. á Stóra-Grindli
Páll Ásgrímsson
verslunarm. á Sigluf.
Þorsteinn Svörfuður
fyrrv. yfirlæknir
Árni Garðar Kristinsson
auglýsingastj.Morgunblaðsins
Indriði Pálsson
fyrrv. forstj. Skeljungs
Sigurður Ásgrímsson
b. á Vatni í Fljótum
Steinólfur Geirdal
skólastj. og úterðarm. í Grímsey
Halla
skáld á Laugarbóli
Hólmfríður Sigurgeirsdóttir
ljósmóðir
Kristján
Sigurgeirss.
verkam. á
Húsavík
Arnór
Kristjánsson
form.Verka-
lýðsfélags
Húsavíkur
Benóný
Arnórsson
oddviti á
Hömrum
Kári
Arnórsson
skólastj.
Arnór
Benónýsson
leikari og
leikstjóri
Ástþór Matthíasson
lögfr. í Eyjum
Gísli Ástþórsson
ritstj. og teiknari
Matthías Þórðarson
skipstj. og útgerðarm. á Móum
Björn Þórðarson
forsætisráðherra
Þórður Björnsson
saksóknari
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2012
Anna Elísabet Ólafsdóttir ,fyrrverandi forstjóri Lýð-heilsustöðvar, hefur varið
doktorsritgerð sína í lýðheilsuvís-
indum við Brunel-háskóla í London.
Doktorsritgerð Önnu fjallar um
áhrif stjórnunarhátta (e. govern-
ance) á heilbrigðiskerfi og heitir
„Áhrif stjórnunarhátta á afköst og
gæði heilbrigðiskerfa“, „Governance
and health systems: An exploration
of the association and possible mec-
hanisms through which governance
affects health systems“. Dokt-
orsritgerðin er samþáttun þriggja
stórra rannsóknarverkefna, sem
framkvæmd voru í þremur löndum,
þ.e. í Afríku sunnan Sahara, á Ís-
landi og í Malasíu. Nú þegar hefur
verið birt ein ritrýnd grein í tímarit-
inu BMC Public Health um rann-
sóknarverkefnið sem unnið var í
Afríku sunnan Sahara. Greinin heit-
ir „Health systems performance in
sub-Saharan Africa: governance,
outcome and equity“.
Anna Elísabet starfar nú sem
fagstjóri hjá rannsóknarstofnuninni
Ifakara Health Institute í Dar Es
Salaam í Tansaníu (www.ihi.or.tz),
sem er ein virtasta rannsóknarstofn-
unin í Afríku á sviði heilbrigðisvís-
inda. Stofnunin hefur verið starf-
rækt í meira en 50 ár og hjá henni
starfa um það bil 30 sérfræðingar
með doktorsgráðu, sem birta að
jafnaði um 50 ritrýndar greinar á ári
hverju. Auk umræddrar dokt-
orsgráðu er Anna Elísabet með
MSc.-gráðu í næringarfæði frá Ósló-
arháskóla og MBA-gráðu frá Há-
skóla Íslands.
Anna Elísabet er gift Viðari Við-
arssyni verkfræðingi og eiga þau
þrjá syni. Hún er dóttir hjónanna
Ólafs Sverrissonar og Önnu Inga-
dóttur.
Doktor
Doktor í
lýðheilsuvísindum
90 ára
Arnviður Ævar Björnsson
Hermann Kr. Sigurjónsson
85 ára
Anna Marín
Kristjánsdóttir
80 ára
Jón Aðalbjörn Bjarnason
Magnús Þorgeirsson
Þorsteinn G. Sigurðsson
Þórunn Karvelsdóttir
75 ára
Ásgeir Gestsson
Brynja Guðmundsdóttir
Elísabet Bjarnadóttir
Guðni Kristjánsson
Guðný Georgsdóttir
Njáll Þorbjarnarson
Sólberg Steindórsson
70 ára
Anna Elsa Jónsdóttir
Jón Ólafur Jónsson
María Hjálmarsdóttir
Sigurður B. Friðriksson
Sigurjón Ólafsson
Sveinlaug Valtýsdóttir
Þórdís Árnadóttir
60 ára
Bryndís Pálína Hrólfsdóttir
Freyja Sigurmundsdóttir
Grétar Markússon
Guðríður Guðmundsdóttir
Karl Bergmann
Oddur Garðarsson
Pálmi B. Larsen
Rögnvaldur Ólafsson
Sigurgeir Þorgeirsson
50 ára
Bryndís Helga Jónsdóttir
Elísabet Haraldsdóttir
Inga Guðrún Halldórsdóttir
Jón Hilmar Friðriksson
Kristín G. Gunnarsdóttir
Lára María Theódórsdóttir
Magnús Steinarr Norðdahl
Ólafía Erla Guðmundsdóttir
Ólöf Kristín Stefánsdóttir
Sigríður Erna Ingólfsdóttir
Sigurður Halldórsson
Snjólaug E. Sigurðardóttir
Snædís Gíslín Heiðarsdóttir
Unnur Guðrún Óttarsdóttir
40 ára
Anton Pétursson
Árni Gústafsson
Halldór Bogi Sigurðsson
Hallfríður Brynjólfsdóttir
Hildur Fjóla Svansdóttir
Íris Harðardóttir
Jaroslaw Kotowski
Jón Haukur Ísfeld
Jónína Einarsdóttir
Lilja Björk Ómarsdóttir
Lóa Karen Agnarsdóttir
Róbert Ragnar Spanó
Sigurður Ragnar
Þorkelsson
Steffen Baethge
30 ára
Andrzej Arkadiusz Florek
Ari Alexander
Guðjónsson
Atli Helgason
Berglind Eva
Benediktsdóttir
Davíð Héðinsson
Emilia Poplawska
Ewa Saniewska
Freyr Björnsson
Gunnar Sigurbjörnsson
Haukur Eiríksson
Heiða Dóra Jónsdóttir
Hjalti Kristjánsson
Kári Ævarsson
Lára Kristín Jónsdóttir
Sukanya Vidarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurður ólst upp á
Hellissandi en hefur búið í
Reykjavík frá 2005 og er
vöruflutningabílstjóri hjá
Gámaþjónustunni.
Maki: Harpa Rún Eysteins-
dóttir, f. 1988, sjúkraliði.
Sonur Sigurðar: Guð-
mundur Sölvi, f. 2006.
Sonur Hörpu: Kristófer
Árni, f. 2008.
Foreldrar: Sölvi Guð-
bjartsson, f. 1956, sjóm.,
og Katrín Sigurjónsdóttir,
f. 1962, skólaliði.
Sigurður Pétur
Sölvason
30 ára Margrét ólst upp í
Reykjavík, lauk MACC-
prófi í reiknishaldi og end-
urskoðun frá HÍ 2008 og
starfar hjá Deloitte.
Maki: Jón E. Jóhannsson,
f. 1975, rekstrarstjóri.
Börn: Hrafnhildur, f.
2002; Aron Daði, f. 2008,
og Bjarni Þór, f. 2009.
Foreldrar: Hrafnkell
Gunnarsson, f. 1957,
framkvæmdastjóri og
Kristín Jónsdóttir, f. 1957,
hjá Ríkisendurskoðun.
Margrét Lilja
Hrafnkelsdóttir
30 ára Sigurður ólst upp á
Akranesi, er hjóðupptöku-
maður og hefur starfrækt
eigið stúdíó frá 2010.
Kærasta: Heiðrún Bald-
ursdóttir, f. 1986, leik-
skólakennari á Akranesi.
Börn Sigurðar: Laufey, f.
2002, og Aron Benedikt, f.
2006.
Foreldrar: Laufey Sigurð-
ardóttir, f. 1948, bókari og
Þorvaldur Ólafsson, f.
1946, starfsmaður við
Járnblendiverksmiðjuna.
Sigurður Ingvar
Þorvaldsson
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
ALVÖRU
MÓTTAKARAR
MEÐ LINUX
ÍSLENSK VALMYND
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is