Morgunblaðið - 27.08.2012, Síða 32
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 240. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Tók þátt í leitinni að sjálfri sér
2. Sérstakt, engu líkt
3. Rivers langar að slá Rihönnu
4. Ölvuð í hörðum árekstri
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Samhljómur tveggja
radda hjá Sigurjóni
Hlín Pétursdóttir Behrens sópran,
Hólmfríður Jóhannesdóttir messó-
sópran og Jón Sigurðsson píanóleik-
ari koma fram á morgun, þriðjudag
kl. 20.30, á sumartónleikum í Lista-
safni Sigurjóns. Á dagskrá eru m.a
dúettar.
Hádegistón-
leikar í Hafnar-
fjarðarkirkju hefj-
ast nú á ný eftir
sumarleyfi.
Fyrstu tónleikar
vetrarins verða í
Hafnarfjarðar-
kirkju á morgun,
þriðjudag kl. 12.15
- 12.45.
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, org-
anisti Akureyrarkirkju, leikur fjöl-
breytta og fagra orgeltónlist.
Sigrún Magna á
hádegistónleikum
Djassklúbbur Múlans verður með
þrenna tónleika á Jazzhátíð Reykja-
víkur í Norræna húsinu. Í kvöld kemur
hinn færeyski Magnus Johannessen
fram, á morgun verða útgáfu-
tónleikar trommuleikarans Scotts
McLemore og á miðvikudag kemur
fram hljómsveitin Defekt.
Scott McLemore
trommar í Múlanum
Á þriðjudag Norðan 10-18 m/s, hvassast austast. Skúrir fyrir
norðan, en rigning austast. Annars bjartviðri. Hiti 4 til 13 stig.
Á miðvikudag Minnkandi norðanátt, 10-15 við NA-ströndina fram
eftir degi. Skúrir fyrir norðan, en bjartviðri syðra. Hiti 3 til 11 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað og smáskúrir austantil, en víða létt-
skýjað vestantil. Hiti 5 til 15 stig. Líkur á næturfrosti í innsveitum.
VEÐUR
„Ég hef átt sex alveg frábær
ár í Kaupmannahöfn. Fjögur
ár í FCK og tvö ár í AG sem
voru stórkostleg. Ég var bú-
inn að skrifa undir þriggja
ára samning við AG. Þetta
var ekki skemmtileg lífs-
reynsla en það er frábært
að óvissunni sé lokið og
þetta hafi endað vel,“ sagði
Arnór Atlason, landsliðs-
maður í handknattleik, við
Morgunblaðið eftir að hafa
samið við Flensburg. » 1
Arnór færir sig
yfir landamærin
Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild
karla í gærkvöldi. Einar Karl Ingvars-
son lét alla vita af sér með frábæru
marki í Árbænum fyrir FH sem er
með fimm stiga forustu eftir leiki
gærkvöldsins. Stjarnan og ÍBV skildu
jöfn, 1:1, og
skaust ÍA því
upp í fjórða
sætið með
sigri á Grinda-
vík. Þá gerðu
Selfyssingar
og Blikar
jafntefli.
»4-5
FH með fimm stiga
forustu á toppnum
„Þetta var þvílíkt mark hjá Gunnhildi.
Svona mark á skilið að ráða úrslitum
í bikarnum,“ sagði Þorlákur Árnason,
þjálfari Stjörnunnar, að loknum 1:0
sigri á Val í úrslitum Borgunarbikars-
ins. Stjarnan er nú handhafi bæði Ís-
lands- og bikarmeistaratitils kvenna í
knattspyrnu. Þorlákur segist vera
gríðarlega ánægður með hvernig liðið
hefur staðið sig í sumar. »2
Stjarnan handhafi
beggja titlanna
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það sem við erum að grafa upp
núna er frá 9. til 11. öld. Það hefur
verið samfelld mannvist á svæðinu
frá þessum tímum og við höfum
þurft að grafa okkur í gegnum þær
leifar. Um er að ræða athafnasvæði
þar sem fólk kom til að vinna. Það er
einkar áhugavert þar sem slíkt svæði
hefur ekki fundist áður hérna, að
minnsta kosti ekki í Reykjavík.
Þarna var til að mynda járnvinnsla,
fiskvinnsla og ullarvinnsla,“ segir
Una Helga Jónsdóttir, meistaranemi
í fornleifafræði sem hefur, auk ann-
arra, unnið að uppgreftri og kynn-
ingu á Alþingisreitnum. Í sumar hafa
verið kynningar á minjunum alla
virka daga á ensku og á sunnudögum
hafa þær verið á íslensku. Í gær var
síðasta kynningarferðin um svæðið.
„Það er verið að klára það sem var
eftir í uppgreftrunum árin 2008 og
2009. Það sem við höfum fundið í
sumar er til dæmis perlubrot, silfur-
armband, met, brot úr bökunar-
hellum og allskyns munir. Það fannst
einnig fjöldinn allur af dýrabeinum,“
segir Una og tekur fram að meðal
beinanna hafi verið bein úr ketti.
Minjar undir Tjarnargötunni
Að sögn Unu var svæðið talsvert
öðruvísi á 9. öld en það er núna. Sjór-
inn náði lengra upp í land, lækur
rann á milli sjávar og Tjarn-
arinnar og holtin umhverfis
Kvosina voru þakin birkiskógi.
Staðurinn var afar búsæld-
arlegur og talsverðar líkur á
því að þarna megi finna
talsvert meira af forn-
leifum frá landnámsöld.
„Fornleifarnar halda
áfram undir nærliggj-
andi götur og hús. Það
er einn veggur þarna
sem hægt er að sjá sem
liggur til að mynda að mestu undir
Tjarnargötunni. Við náðum bara rétt
í skottið á honum,“ segir Una. Að
hennar sögn svíður henni og sam-
starfsfólki hennar svolítið að vita af
minjunum en geta ekki grafið þær
upp.
„Kannski verður einhvern tímann
gefið leyfi til þess að grafa upp
Tjarnargötuna til að kanna þetta
nánar en það mun bara allt koma í
ljós síðar,“ segir Una. Hún segir
jafnframt að ekki liggi allt ljóst fyrir
varðandi framhaldið.
„Ég veit ekki hvort það verður
settur dúkur yfir svæðið fyrir vet-
urinn eða hvort það verður strax
fyllt upp í það. Það mun samt sem
áður verða byggt yfir það að lokum,
að öllum líkindum bílastæði,“ segir
Una.
Minjar undir næstu götum
Greftri lýkur í
Alþingisreitnum
Áhugavert svæði
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fornleifar Fjöldi var saman kominn á Alþingisreitnum í gær er síðasta kynning sumarsins á íslensku fór fram. Upp-
greftrinum lýkur nú í haust og mun að öllum líkindum rísa bílastæði þar sem á landmámsöld stóðu vinnuhús.
Aðspurð segir Una að margt hafi
komið á óvart í uppgreftrinum.
„Það er erfitt að gera upp á milli
barna sinna. Silfurarmbandið
kom samt mjög á óvart, það var
ekki beint í samhengi við neitt
þarna. Það er mjög sérstakt
að finna silfurarmband á
vinnusvæði, það hlýtur
bara að hafa týnst
þarna. Það var
tekið upp í
moldarklump-
inum sem umlukti það og farið
með það í Þjóðminjasafnið,“ segir
Una.
Alls fundust tólf snældusnúðar
á svæðinu, fjöldi dýrabeina og
önglar ásamt fleiru. Una segir þó
að minjarnar séu fremur illa farn-
ar.
„Rústirnar eru rosalega lask-
aðar. Það hefur verið svo mikil
mannvist á svæðinu í gegnum tíð-
ina að það hefur talsvert verið átt
við þessar rústir,“ segir Una.
Silfurarmband kom í leitirnar
SKARTGRIPUR FANNST Á HELDUR ÓLÍKLEGUM STAÐ
Una Helga
Jónsdóttir