Morgunblaðið - 25.09.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012
✝ SteingrímurKristinn Sig-
urðsson fæddist á
Húsavík 30. sept-
ember 1964. Hann
lést þann 13. sept-
ember 2012.
Foreldrar hans
eru Sigurður Jó-
hannes Jónsson f.
14. maí 1939 og
Þuríður Hallgríms-
dóttir f. 17. mars
1942. Steingrímur var fjórði í
hópi sex systkina sem eru: Hall-
grímur Jón f. 24. júlí 1958, Helgi
f. 11. nóvember 1960, Sigurður
Gunnar f. 3. júní 1963, Lilja f. 7.
september 1974 og Ruth f. 3. júlí
1975.
Eiginkona Steingríms er
María Þórdís Guðmundsdóttir f.
13. maí 1968. Foreldrar hennar
eru Guðmundur Guðmundsson
f. 24. mars 1954 og Ólína María
Steinþórsdóttir f. 2. maí 1947.
Systkini Maríu eru: Auðunn Að-
og keyptu Steingrímur og María
bakaríið af honum árið 2005 eft-
ir að hafa leigt reksturinn um
tíma.
Helsta áhugamál Steina var
knattspyrna og var hann harður
stuðningsmaður Völsungs og
Manchester United. Á seinni ár-
um studdi hann jafnframt KA á
Akureyri enda tveir synir hans
sem leika með liðinu. Steini var
mjög duglegur að mæta á völl-
inn og styðja við sín lið. Þá voru
Steini og Maja eiginkona hans
dugleg að styðja allskonar fé-
lagsstarf á Húsavík með fram-
lögum úr bakaríinu. Enda er
óhætt að segja að fjöldi bæj-
arbúa hafi á beinan eða óbeinan
hátt notið góðs af þessum stuðn-
ingi þeirra hjóna.
Síðustu ár hafði Steini mikla
dellu fyrir mótorhjólum og hef-
ur átt nokkur slík. Var hann fé-
lagi í Mótorhjólaklúbbi Húsavík-
ur og þeystist um landið með
þeim góða félagsskap. Veiðar og
útilega voru einnig ofarlega í
huga Steina síðustu ár.
Útför Steingríms fer fram frá
Húsavíkurkirkju þriðjudaginn
25. september 2012 og hefst at-
höfnin kl. 14.
alsteinn f. 16. maí
1963, Guðný Þóra f.
15. maí 1981.
Steingrímur og
María eignuðust
sex syni sem eru: 1)
Guðmundur Óli f.
11. febrúar 1986, 2)
Sveinbjörn Már f.
19. ágúst 1988, 3)
Hallgrímur Mar f.
2. október 1990, 4)
Hrannar Björn f.
19. júní 1992, 5) Ólafur Jóhann f.
23. ágúst 1999, 6) Andri Berg-
mann f. 22. ágúst 2008.
Steini bakari, eins og hann
var oftast kallaður, ólst upp á
Húsavík og bjó þar til dauða-
dags. Bróðurpart starfsævi
sinnar starfaði Steingrímur í
bakaríinu á Húsavík. Hann hóf
störf sem nemi í brauðgerð
Kaupfélags Þingeyinga árið
1984 þar sem Helgi bróðir hans
var stjórnandi. Síðar kaupir
Helgi bakaríið af Kaupfélaginu
Elsku Steini okkar. Orð fá því
ekki lýst hversu mikill söknuður
okkar foreldranna er. Minning þín
lifir í hjörtum okkar og þakklæti
fyrir þann tíma sem við áttum
saman. Guð geymi þig, elsku vinur,
og við sjáumst síðar á nýjum vett-
vangi.
Hann Steini fékk hér bakað daglegt
brauð,
var besti drengur, fús til allra verka,
var gjafmildur, hann besta þokka bauð
og býsna hjálpsöm reyndist höndin
sterka.
Með konu sinni hlaut hann drengjahóp
og heimilið var opið öllum gestum,
ef einhver var í neyð þá hratt hann
hljóp,
hann hérna eyddi vandamálum
flestum.
Hans fagra sál af réttlæti var rík,
hann reyndist okkur öllum vænsti bróð-
ir,
hann lifði dreyminn hér á Húsavík,
hjá honum voru allir vinir góðir.
Hann Steini bæði harm og gæfu hlaut
og honum þótti lífið mikils virði
en síðan reyndist dagsins þunga
þraut
hans þjáning og hans erfiðasta byrði.
Hann fór sinn veg er bugað hjartað
brann
en birta hans mun hátt til himna rísa,
það veit það fólk sem þekkti þennan
mann
að þrekið hans mun okkar vegferð
lýsa.
Við kveðjum mann sem öllum vildi
vel,
hans vinskapur var merkilegur
sjóður.
Já, einstakt hjartalag og hugarþel
hér hlaut að prýða þann sem var svo
góður.
Í starfi varst þú aldrei aumur þræll
en áttir kraft og stoltur gekkst þú
veginn.
Já, Steini, kæri vinur, vertu sæll,
við vonum að við sjáumst hinum meg-
in.
(Kristján Hreinsson.)
Kveðja,
mamma og pabbi.
Elsku pabbi okkar. Sumt skilur
maður ekki í þessu lífi. Þú ert far-
inn og það er sárt. En við minn-
umst þín eingöngu sem besta
pabba í heimi og það er mikilvægt
að við skildum sáttir. Við erum
alls ekki reiðir, ekki við þig. Þú
áttir ekki skilið að fara svona
fljótt, þú sem varst búinn að vinna
svo mikið alla þína ævi og búinn
að uppskera besta bakarí landsins
og meira til. Það sem okkur finnst
leiðinlegast er hvað þú vannst
mikið alltaf, ekki okkar vegna
heldur þín vegna. Við vildum óska
þess að þú hefðir fengið að gera
meira í lífinu, lifað lengur og upp-
lifað meira.
Þú fékkst aldrei að fara í utan-
landsferð nema til Manchester.
Við erum samt þakklátir fyrir
þann tíma sem við fengum með
þér. Okkur fannst alltaf gaman að
fá þig með í fótboltaferðalög, þú
varst vinur okkar allra og við
hlógum alltaf með þér og þú með
okkur. Þín verður minnst sem
húmorista sem hafðir gaman af
lífinu og við munum ávallt elska
þig elsku pabbi okkar.
Guðmundur Óli, Sveinbjörn
Már, Hallgrímur Mar
og Ólafur Jóhann Stein-
grímssynir.
Elsku pabbi minn, fimmtu-
dagsmorgninum 13. september
2012 mun ég aldrei gleyma. Ég
var að fara heim eftir vinnu í bak-
aríinu og kvaddi því strákana á
kaffistofunni og fór út í bíl. Þú
varst staddur inni á skrifstofu að
tala í símann svo ég ákvað að vera
ekkert að koma inn og trufla og
fór því án þess að kveðja þig. Ég
var lagður af stað á bílnum þegar
þú komst hlaupandi á eftir mér
með einhver vinnutengd skilaboð
á miða sem ég átti að fara með
heim og láta mömmu fá og fyrir
það verð ég ævinlega þakklátur
því þetta var í síðasta sinn sem ég
átti með þér lifandi stund. Aldrei
hefði mér dottið í hug að þetta
yrði okkar síðasta mínúta saman
en við enduðum samtalið hlæjandi
og þú kvaddir „Sjáumst vinur“.
Þessa stund þykir mér óendan-
lega vænt um og ég mun geyma
hana ásamt svo mörgum öðrum
góðum í hjarta mínu alla ævi.
Ég hreinlega trúði því ekki
þegar Lilja frænka kom til mín
um kvöldið og sagði mér að þú
værir farinn frá okkur. Pabbi
minn og þessi góði vinur minn var
farinn burt. Allt svo óraunveru-
legt. Ég er samt ekki reiður, ég er
þakklátur. Ég er þakklátur fyrir
að hafa notið nærveru þinnar í 20
dásamleg ár. Ég er þakklátur fyr-
ir það líf sem þú og mamma gáfuð
mér og mínum yndislegu bræðr-
um. Og ég er rosalega þakklátur
og ekki síst gífurlega stoltur af því
að vera sonur þinn, sonur Steina
bakara, eins mesta öðlings sem
Húsavík hefur alið af sér. Það er
heiður að fá að vera Steingríms-
son.
Alla mína vinnuævi, eða síðan
2006, hef ég unnið með þér í bak-
aríinu. Ég fór aldrei í vinnuskól-
ann því ég vildi bara vera í bak-
aríinu. Það var samt aðeins fyrr
sem ég fékk að kíkja með þér um
helgar og vinna með þér og ég
gleymi þeim tíma aldrei. Ég var
12-13 ára gamall og mér fannst
svo töff að vakna á nóttunni og
upplifa það að vinna í bakaríi með
pabba mínum og sagði oft sögur af
því í skólanum vikurnar á eftir.
Mér fannst þetta algjör snilld.
Það verður skrítið að vinna án þín
Steingrímur Krist-
inn Sigurðsson✝Faðir okkar,
SIGTRYGGUR HELGASON,
Hlyngerði 12,
Reykjavík,
lést föstudaginn 14. september.
Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 27. september kl. 13.00.
Þórhildur Sigtryggsdóttir,
Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, dóttir, systir og mágkona,
FANNEY ELÍN ÁSGEIRSDÓTTIR,
Kóngsbakka 14,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnu-
daginn 16. september.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
27. september kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á styrktarsjóð Landspítalans, Von, bankareikn.
0513-26-3147, kt. 490807-1010.
Guð og englarnir geymi þig.
Orri Ragnar Árnason Amin,
Helgi Pétur,
Ágúst Ólafur,
Kristjana Ragnheiður,
Steinunn Ingibjörg,
Rakel Ósk,
Sigurður Árni,
Ásgeir H. Sigurðsson, Kristjana G. Hávarðardóttir,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Árni Þór Hallgrímsson,
Sigurður Ásgeirsson, Dagmar B. Jóhannesdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi,
KRISTINN T. MÖLLER,
Bassi frá Siglufirði,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést sunnudaginn 23. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Harpa Möller, Sigurður Ingólfsson,
Jón Ómar Möller, Magna Sigbjörnsdóttir,
Bylgja Möller, Gísli Þór Gíslason,
Örvar Möller, Ólöf Björnsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
SVAVAR BJARNASON
tæknifræðingur,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 20. september.
Hann verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla-
kirkju föstudaginn 28. september kl. 15.00.
Brynja Bærings Halldórsdóttir,
Halldór G. Svavarsson, Tatiana Dimitrova,
Ásta Svavarsdóttir, Þorsteinn Hauksson,
Árný Anna Svavarsdóttir, Snæbjörn Freyr Valbergsson,
Helgi Páll Svavarsson,
Unnar Bæring, Brynja Björg, Ingibjörg Ásta,
Thereza Petkova, Samuil Petkov, Svavar Bæring,
Haukur Bæring, Ólafur, Árný Bærings, Simeon Bæring,
Sóley Bærings, Magnús Bæring og Áshildur Bærings.
✝
Okkar ástkæra,
AÐALHEIÐUR FRANKLÍNSDÓTTIR
frá Steinadal,
Knarrarbergi 2,
Þorlákshöfn,
lést 13. september á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför.
Aðstandendur.
✝
Okkar ástkæra móðir, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
SVANHILDUR SIGURJÓNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum
fimmtudaginn 20. september.
Minningarathöfn verður í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum föstudaginn 28. september kl. 16.00.
Útför hennar fer fram í Skarðskirkju á Landi laugardaginn
29. september og hefst athöfnin kl. 14.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á starfsemi FAAS.
Kristín Jóhannsdóttir,
Vigdís Jóhannsdóttir, Marteinn Jónasson,
Davíð Jóhannsson, Inger Kertelhein,
Jóhann Þ. Jóhannsson, Hildur Halldórsdóttir,
Ástþór Jóhannsson, Katrín Ævarsdóttir,
Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Valgarður Gunnarsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL STEFÁNSSON
kennari,
Lindasíðu 4,
Akureyri,
lést miðvikudaginn 19. september.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 28. september kl. 13.30.
Stefán Lárus Karlsson, Elisabeth Zitterbart,
Hermann Þór Karlsson,
Snorri Karlsson, Ragnheiður Árnadóttir,
Rósa Karlsdóttir
og afabörn.
✝
Móðir okkar,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
áður til heimilis að Asparfelli 6,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn
22. september.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju í Garði
fimmtudaginn 27. september kl. 14.00.
Erla Vilborg Adolfsdóttir,
Kristín Gréta Guðrún Adolfsdóttir,
Ásdís Adolfsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELLA SJÖFN ELLERTSDÓTTIR,
Didda,
Sunnubraut 5,
Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 20. september.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn
28. september kl. 15.00.
Ólafur Björgvinsson,
Bergþóra Ólafsdóttir, Arnar Karlsson,
Ellert Þórarinn Ólafsson, Jóna Björg Antonsdóttir,
Arnbjörg Ólafsdóttir, Guðjón Magnús Axelsson,
Linda Ólafsdóttir, Þröstur Ástþórsson,
Harpa Ólafsdóttir, Þorsteinn Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR ÁSGEIR KRISTJÁNSSON,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn
23. september.
Erna Jensdóttir,
Rafn Sigurðsson, Suzanne Sigurðsson,
Sigurður Þór Sigurðsson, Hjördís Bergsdóttir,
Jens Sigurðsson, Patrica Sequra Valdes,
barnabörn og langafabörn.