Morgunblaðið - 25.09.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
Íslensk hönnun
og handverk
Salattöng 13.900.-
Eilífðarrósin, skúlptúr til í tveimur stærðum
lítil rós 41.500.-
stór rós 44.800.-
Úrval morgungjafa
Handsmíðaðir hringar
úr 14 karata gulli með
hvítagullshúðaðri rönd
149.900.- parið
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Borðbúnaður og
skúlptúrar
úr eðalstáli, skreytt
íslenskum steinum
Ostahnífur
7.900.-
Smjörhnífur
7.900.-
Ný sending
Kjóll á 11.900 kr.
Fleiri litir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Rauðage
rði 25 · 108 Reyk
javík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Verslunarkælar í miklu úrvali
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
og
20% afsláttur
af svörtum síðbuxum frá
Auk þess 20% afsláttur af
nokkrum gerðum af kjólum,
tunicum, bolum og jökkum
Tilboðið gildir til 30. september
Lögreglan lokaði tveimur skemmtistöðum í borginni um
helgina vegna brota á lögum um veitinga- og skemmti-
staði. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fjöldi
annarra skemmtistaða hafi að auki fengið kærur vegna
brota á sömu lögum.
Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð 5
sem sinnir eftirliti í miðborginni, segir misjafnt hvaða
ástæður liggi að baki slíkum lokunum. Slíkt geti komið til
vegna þess að lögbundnir afgreiðslutímar séu ekki virtir
en einnig ef áberandi sé að ungmenni undir tvítugu hafi
áfengi um hönd inni á stöðunum. Spurður um viðurlög við
slíkum brotum segir Jóhann að rekstraraðilar fái bréf
eftir þrjú brot þar sem athygli sé vakin á vandamálinu.
„Eigendum er gefinn kostur á að bæta sig. Ef brotin
halda áfram er tekin ákvörðun um lokun t.d. yfir eina
helgi. Verði framhald á lögbrotum geti komið til end-
anlegar sviptingar á leyfum,“ segir Jóhann.
Lögreglan heldur uppi virku eftir-
liti á skemmtistöðum borgarinnar um
helgar. Ómerktir lögreglumenn fara
inn á skemmtistaði í miðborginni og
fylgjast með. „Allir dyraverðir eiga að
vera með leyfi frá lögreglustjóranum
á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu-
menn líta inn á staðina og athuga
hvort fjöldatakmarkanir séu virtar.
Ef grunur leikur á að ungmenni undir
aldri séu á staðnum er beðið um skil-
ríki og ef um áberandi lögbrot er að
ræða þá rýmum við staðinn,“ segir Jóhann og bætir við
að lögreglan haldi einnig uppi fíkniefnaeftirliti á
skemmtistöðum. Jóhann segir að ástandið sé nokkuð
stöðugt, af og til séu staðir rýmdir og þeim tilfellum hafi
hvorki fækkað né fjölgað undanfarið. heimirs@mbl.is
Lokuðu skemmtistöðum
Lög Virkt eftirlit
er í miðborginni.
Innheimta sérstaks gistináttagjalds,
sem byrjað var að innheimta í byrjun
ársins, skilaði 56 milljónum króna í
ríkissjóð fyrstu sex mánuði ársins.
Oddný G. Harðardóttir, fjármála-
ráðherra, sagði á í svari á Alþingi í
gærvið fyrirspurn frá Unni Brá Kon-
ráðsdóttur, þingmanni Sjálfstæðis-
flokks, að þetta væri í samræmi við
áætlanir en á fjárlögum fyrir þetta ár
var gert ráð fyrir að gjaldið skilaði 115
milljónum króna.
Fyrirhuguð hækkun virðisauka-
skatts á ferðaþjónustu kom einnig til
umræðu á þingi. Sigurður Ingi Jó-
hannsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, sagði þannig að hætt hefði
verið við áform um að byggja 60 her-
bergja hótel í Skagafirði vegna
þeirrar óvissu sem við blasti í
ferðaþjónustunni. Af sömu ástæðu
hefðu álíka áform í bæði Vík í
Mýrdal og Reykhólasveit verið
slegin af.
Oddný sagði að hlutur ferða-
þjónustunnar í vergri landsfram-
leiðslu væri mun hærri hér en víð-
ast hvar annars staðar.
Hún sagði að allar greiningar
bentu til að ferðamönnum til Ís-
lands myndi ekki fækka þótt
ferðaþjónusta yrði færð í sama
virðisaukaskattsþrep og aðrar at-
vinnugreinar; fjölgun þeirra yrði
bara ekki jafn mikil og verið hefði
undanfarin ár.
Gisting Gistináttagjaldið er m.a. innheimt af tjaldstæðum.
Gistináttagjald hefur
skilað 56 milljónum
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Fulltrúar sjálf-
stæðismanna í
bæjarráði Hafnar-
fjarðar hafa lagt
fram fyrirspurn
þar sem óskað er
eftir skýringum á
því hvers vegna
ekki hafi verið
ákveðið að draga
launalækkanir
eða kjaraskerð-
ingar allra starfsmanna bæjarins til
baka. „Við skiljum ekki hvers vegna
ekki var skoðað að leiðrétta kjör
þeirra sem lentu í skerðingu starfs-
hlutfalls eða skerðingu bifreiða-
styrkja. Okkur finnst óréttlæti felast
í ákvörðuninni og ekki sé verið að
gæta jafnræðis milli allra hópa. Þetta
mun kynda undir óánægju starfs-
manna sem getur ekki verið góðs
viti,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
ráði. Hún segist ítrekað hafa kallað
eftir svörum í bæjarstjórn um hvort
áætlanir séu uppi um að breyta kjör-
um starfsmanna í því skyni að gæta
jafnræðis en engin svör hafa fengið.
Sjálfstæðismenn
segja ójafnræði felast
í launahækkunum
Rósa
Guðbjartsdóttir