Morgunblaðið - 25.09.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012
Unnur Brá Konráðsdóttirreyndi í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær að fá töluleg rök hjá
Steingrími J. Sigfússyni fyrir þeirri
fullyrðingu að atvinnuástandið sé
að batna hér á landi eins og tals-
menn stjórnarflokk-
anna hafa haldið
fram.
Ekki tókst Unnifrekar en öðr-
um að draga þessar
röksemdir upp úr
ráðherranum, en
hann lét í staðinn
eftir sér að sýna
þann hroka og pirr-
ing sem fyrir löngu
er farinn að ein-
kenna forystumenn
stjórnarinnar þegar
leitað er svara við
sjálfsögðum spurn-
ingum.
Unnur vísaði meðal annars í orðforseta ASÍ sem hefði sagt
„að langtímaleitni á vinnumarkaði
bendir til þess að atvinnuástandið
sé að versna fremur en batna og að
gera megi ráð fyrir slæmu ástandi
þegar líða tekur á veturinn“.
Steingrímur og Jóhanna hafagreinilega hugsað sér að fara í
gegnum kosningaveturinn með því
að fullyrða að atvinnuástandið sé
að batna hratt án þess að færa fyrir
því rök.
Það sem komst næst því í ræðuSteingríms að vera röksemd
var að fjölgun starfa væri ekki
komin fram enn vegna þess að
tímatöf væri á milli efnahagsbata
og atvinnusköpunar.
Ástandið er með öðrum orðum eftil vill að batna, það hefur þó
ekki batnað en gæti gert það að
lokum. Þetta er auðvitað stórkost-
legur árangur.
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Beðið eftir bata
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 24.9., kl. 18.00
Reykjavík 11 rigning
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 10 skýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað
Vestmannaeyjar 9 skýjað
Nuuk 6 skúrir
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 skúrir
Stokkhólmur 10 skýjað
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 15 skýjað
Dublin 10 skúrir
Glasgow 11 skúrir
London 15 léttskýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 13 skúrir
Hamborg 12 skýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 22 skýjað
Moskva 8 alskýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 26 skýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 13 alskýjað
Montreal 13 léttskýjað
New York 15 heiðskírt
Chicago 15 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:21 19:18
ÍSAFJÖRÐUR 7:27 19:23
SIGLUFJÖRÐUR 7:10 19:06
DJÚPIVOGUR 6:51 18:48
Tvö tilfelli af nýjum ban-
vænum öndunarfæra-
sjúkdómi hafa komið upp í
Katar og Sádi-Arabíu á
stuttum tíma. Hin nýja veira
nefnist coronia og veldur
öndunarfærasjúkdómi líkt
og sars-veiran skæða sem
barst til 30 landa og lagði
um 800 manns að velli árið
2002.
Þórólfur Guðnason, stað-
gengill sóttvarnalæknis, seg-
ir að samanburður við sars-
veiruna sé ótímabær. „Cor-
onia-veiran er mjög algeng
veira, en þetta er nýtt af-
brigði. Það er allt of snemmt
að tala um þetta sem ein-
hvern faraldur. Það eru allt-
af að koma upp tilfelli þar
sem menn veikjast alvarlega
af einhverjum veirum. Það
er ekkert sem bendir til þess
að útbreiðslan sé eins ör og
þegar sars-veiran kom
fram,“ segir Þórólfur.
Ekki tímabært að hafa áhyggjur af faraldri að svo stöddu
Þórólfur Guðnason
Arnarlax ehf. á Bíldudal hefur keypt
fiskeldisstöð Bæjarvíkur í Tálkna-
firði. Er þetta liður í undirbúningi
Arnarlax fyrir laxeldi í sjókvíum á
Arnarfirði.
Fiskeldisstöð Bæjarvíkur er á Gil-
eyri í Tálknafirði. Þar er nú stundað
bleikjueldi. Valdimar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Arnarlax, segir
að bleikjueldi verði hætt og hafin
framleiðsla laxaseiða fyrir væntan-
legt sjókvíaeldi. „Við hefjum seiða-
eldi í Bæjarvík eftir áramót og
reiknum með að vorið 2014 verði
fyrstu seiðunum sleppt í kvíar á
Arnarfirði,“ segir Valdimar. Hann
segir að þetta sé stór og góður
áfangi í uppbyggingu fyrirtækisins.
Bæjarvík hefur unnið að endur-
bótum á stöðinni. Valdimar segir að
áfram verði unnið að því og nútíma-
væðingu og stækkun stöðvarinnar.
Aðstæður til seiðaeldis eru hent-
ugar í Tálknafirði. „Þarna er líka
gott starfsfólk með áratuga reynslu
og stöðin er í nálægð við þann stað
þar sem við byggjum upp okkar sjó-
eldi,“ segir Valdimar.
Arnarlax hefur aflað sér leyfa til
að hefja sjókvíaeldi í Arnarfirði. Þá
er fyrirhugað að koma upp aðstöðu á
Bíldudal til að slátra laxinum og full-
vinna afurðirnar.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Slátrun Unnið við bleikjuslátrun
hjá Bæjarvík í Tálknafirði.
Arnarlax
hefur seiða-
eldi í stöð
Bæjarvíkur