Morgunblaðið - 25.09.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2012
Hermenn og vopnaður hópur uppreisnarmanna hafa drepið tugi dýra, m.a.
fjallagórillur sem eru í útrýmingarhættu, á síðustu mánuðum í Virunga-
þjóðgarðinum í Austur-Kongó, elsta þjóðgarði Afríku. Átök hafa geisað á
svæðinu milli stjórnarhermanna og uppreisnarmanna frá því í apríl og
starfsmenn þjóðgarðsins segja að stríðsmennirnir hafi m.a. drepið flóð-
hesta, simpansa, fíla, antilópur, ljón og fugla. Starfsmennirnir hafa einkum
áhyggjur af fjallagórillunum vegna þess að 480 af 790 fjallagórillum
heimsins lifa í þjóðgarðinum. Á svæðinu voru einnig 27.000 flóðhestar árið
1980 en þeir eru nú færri en 300. Á myndinni er munaðarlaus fjallagórilla.
Fjallagórillur í hættu í Austur-Kongó
AFP
Stríðsmenn hafa stráfellt
dýr í elsta þjóðgarði Afríku
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Wang Lijun var eitt sinn þjóðræmdur í Kína fyrir baráttu
gegn skipulagðri glæpastarfsemi en var í gær dæmdur í
15 ára fangelsi fyrir yfirhylmingu og fleiri lögbrot í
tengslum við morðmál sem olli miklum titringi í komm-
únistaflokknum.
Wang var lögreglustjóri í stórborginni Chongqing en
flúði í bandaríska ræðismannsskrifstofu 6. febrúar til að
óska eftir hæli í Bandaríkjunum vegna máls sem varð ein-
um af valdamestu mönnum Kína, Bo Xilai, og eiginkonu
hans að falli. Bo var leiðtogi kommúnistaflokksins í
Chongqing, átti sæti í stjórnmálaráði flokksins, æðstu
valdastofnun hans, og búist hafði verið við að hann yrði
skipaður í fastanefnd ráðsins sem tekur allar lykilákvarð-
anir í kínverskum stjórnmálum. Níu menn eiga sæti í
fastanefndinni og gert er ráð fyrir að sjö þeirra víki úr
henni í næsta mánuði.
Talið er að Bo sé nú haldið í stofufangelsi. Eiginkona
hans, Gu Kailai, var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir
morð á breskum kaupsýslumanni, Neil Heywood, sem
fannst látinn á hótelherbergi í Chongqing í nóvember. Bú-
ist er við að dómnum verði breytt í lífstíðarfangelsi.
Bo Xilai saksóttur?
Wang er sakaður um að hafa tekið þátt í því að hylma
yfir með Gu Kailai. Wang er m.a. sagður hafa falið nánum
vini Gu að rannsaka morðið og leynt mikilvægum gögnum
um málið. Svo virðist sem Wang og Bo hafi sinnast eftir að
rannsókn málsins hófst og hermt er að Bo hafi greitt lög-
reglustjóranum bylmingshögg í höfuðið þegar Wang
skýrði honum frá því að eiginkona flokksforingjans væri
grunuð um morðið.
Wang flúði í skrifstofu ræðismannsins og dvaldi þar í
33 klukkustundir fjórum dögum eftir að kommúnista-
flokkurinn í Chongqing tilkynnti að hann væri ekki lengur
lögreglustjóri borgarinnar.
Sem lögreglumaður hafði Wang getið sér orð fyrir að
vera mikið hörkutól og gerð var sjónvarpsþáttaröð sem
byggðust á ævintýrum hans í baráttunni gegn skipulagðri
glæpastarfsemi. Sagt er að hann sé með tuttugu ör á lík-
amanum eftir byssukúlur og önnur sár. Undir stjórn hans
handtók lögreglan þúsundir meintra félaga í glæpa-
samtökum.
Hermt er að leiðtogar kommúnistaflokksins deili nú
um hvort saksækja eigi Bo Xilai fyrir að hylma yfir með
eiginkonu sinni. Talið er að nokkrir gamlir bandamenn
hans leggist gegn því.
„Ofurlögga“ dæmd
í 15 ára fangelsi
Er sagður hafa hylmt yfir með
eiginkonu eins af æðstu leiðtog-
um Kína í morðmáli
AFP
Í fangelsi Wang Lijun, fyrrv. lögreglustjóri, fyrir rétti í
borginni Chengdu. Hann var dæmdur í 15 ára fangelsi.
62 ára Svíi, sem
var dæmdur fyrir
átta morð sem
framin voru á ár-
unum 1976 til
1988, verður ekki
saksóttur að nýju
fyrir morð á
tveimur norskum
konum í Ósló árin
1981 og 1985.
Maðurinn, Sture
Bergwall, sem áður hét Thomas
Quick, var dæmdur til lífstíðarvistar
á réttargeðdeild árið 2000 fyrir
morðin. Dómarnir byggðust á játn-
ingum hans en hann dró þær til baka
og í apríl sl. var ákveðið að taka mál
hans upp á nýjan leik. Frá þeim tíma
hefur hann verið sýknaður af alls
fimm morðum en þrjú standa eftir
og Bergwall hefur farið fram á að
hann verði einnig sýknaður af þeim.
Bergwall játaði á sínum tíma að
hafa framið morðin átta auk rúm-
lega tuttugu annarra morða í Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi. Í desem-
ber 2008 dró hann játningarnar til
baka, kvaðst hafa sóst eftir athygli
og verið undir áhrifum lyfja þegar
hann játaði morðin á sig. Miklar efa-
semdir hafa verið um sekt mannsins
í mörg ár. Engar tæknilegar sann-
anir eða vitnisburður studdu játn-
ingarnar. guna@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
Sýknaður af fimm
morðum sem hann
var dæmdur fyrir
Bergwall fyrir rétti
árið 2001.
í kvöld 25. september kl. 20:00-21:30
Jarðskjálftar -- er jörðin að segja okkur eitthvað?
Sigríður Kristjánsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR
Hvað er jarðskjálfti? Hvað geta jarðskjálftar sagt okkur um jörðina okkar? Höfum við eitthvað um það að segja hvar
eða hvenær jarðskjálfti á sér stað? Eru þeir alltaf óvelkomnir eða eru þeir lykillinn sem opnar okkur dyr að huliðsheimum
jarðskorpunnar?