Skinfaxi - 01.09.2012, Síða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
15. Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi:
Að baki er velheppnuð og viðburðarík
verslunarmannahelgi á Selfossi. Við, sem sát-
um í framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts
UMFÍ 2012, settum okkur það markmið að
gera mótið sem glæsilegast og að mínu mati
tókst það. Í öllum undirbúningi einsettum
við okkur að taka á móti gestum okkar með
bros á vör og veðurguðirnir lögðu sitt af
mörkum hvað þann þátt varðaði. Hér brosti
sólin sem og aðrir alla helgina. Sveitarfélag-
ið bauð upp á frábæra aðstöðu, jafnt á
keppnissvæðum sem á tjaldsvæði, og var
mikil ánægja meðal gesta með þá aðstöðu
og þjónustu sem í boði var.
Á Unglingalandsmótum UMFÍ hittast kepp-
endur af öllu landinu, í ár var nýtt met slegið
í keppendafjölda. Auk íþróttakeppni var boð-
ið upp á vandaða og fjölbreytta dagskrá alla
landsmótsdagana. Hér var iðandi mannlíf og
bærinn fullur af lífi, kæti og gleði. Þegar ég
fór um Selfoss mótsdagana var ekki hægt að
merkja að hér væru þúsundir á ferð og flugi,
umgengnin var frábær og eiga þeir sem sáu
til þess að hér sást ekkert rusl á götum eða
öðrum svæðum, þakkir skildar. Ég held þó að
fleiri en þeir sem skráðir voru sem sjálfboða-
liðar við hreinsun hafi lagt þar hönd á plóg.
Einn morguninn, þegar ég var að aka inn í
bæinn, enginn sjáanlegur á ferli, tek ég eftir
rusli á Austurvegi en kem þá jafnframt auga
á eldri mann sem var að hreinsa upp það
sem á vegi hans varð. Ég er ekki í vafa um að
þessa góðu vinnu ástunduðu fleiri og sáu
þannig til þess að bærinn skartaði sínu
fegursta.
Í spjalli mínu við börn og ungmenni móts-
dagana kom fram í máli þeirra að á Unglinga-
landsmótum væri mikil stemmning og stuð.
Á mótunum skapist mikil vinátta og margir
nýir vinir og félagar bætist í vinahópinn. Ég
heyrði að nú þegar væru margir farnir að
leiða hugann að því að skipuleggja för á
næsta mót sem haldið verður á Höfn í
Hornafirði að ári.
Unglingalandsmót UMFÍ er í mínum huga
einhver mesta upplifun sem ungmenni
landsins eiga kost á að taka þátt í um versl-
unarmannahelgi. Mótin efla íþróttastarfið,
vináttu og samkennd og þátttakendur
mæta fullir af orku til leiks í íþróttafélögum
sínum að hausti með skemmtilegar minn-
ingar af mótunum.
Ég er þess fullviss að Unglingalandsmótið
er enn ein rósin í hnappagat Héraðssam-
bandsins Skarphéðins og vil hér með nota
tækifærið til þess að þakka Sveitarfélaginu
Árborg fyrir stóran þátt þess í að gera mótið
jafn glæsilegt og raun bar vitni sem og fyrir
frábæra samvinnu við allan undirbúning.
Formanni og framkvæmdastjóra UMFÍ, fram-
kvæmdastjóra og verkefnastjóra mótsins
ásamt meðnefndarfólki mínu í framkvæmda-
nefnd mótsins, björgunarsveit og lögreglu
þakka ég fyrir framlag þeirra.
Innan Héraðssambandsins Skarphéðins er
stór og föngulegur hópur af frábæru fólki
sem kann vel til verka þegar kemur að stór-
mótum. Þar fara fremstir í flokki sérgreina-
stjórar mótsins sem lögðu grunninn, með
aðstoðarfólki sínu, að vel skipulagðri og
skemmtilegri íþróttakeppni.
HSK átti glæsilegan hóp keppenda sem
fengu treyju merkta sambandinu og Arion
banka. Unglingalandsmótsnefnd HSK hafði
veg og vanda af undirbúningi og skipulagn-
ingu þátttöku HSK og færi ég nefndar-
Bautasteinn
afhjúpaður á Selfossi
Eftir setningarathöfn Unglingalands-
mótsins í sumar var afhjúpaður bauta-
steinn á íþróttavallarsvæðinu til minningar
um mótin sem haldin hafa verið á Selfossi,
Landsmótið 1978 og Unglingalandsmótið
sem fram fór í sumar. Það voru þær Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
og Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Sveitarfélagsins Árborgar, sem afhjúpuðu
bautasteininn í sameiningu. Helga Guðrún
sagði af þessu tilefni að það væri heiður
að fá að afhenda sveitarfélaginu fyrir hönd
hreyfingarinnar þennan minnisvarða til
minningar um það dugmikla og kröftuga
starf sem hefur verið unnið á Selfossi.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ,
og Ásta Stefáns-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Árborgar, við
athöfnina þegar
bautasteinninn
var afhjúpaður.
mönnum bestu þakkir fyrir vel unnin störf.
Félagar okkar í HSK voru hvattir til þess að
koma til starfa með framkvæmdanefndinni
og leggja sitt af mörkum svo að mótið yrði
sem glæsilegast og helgin ógleymanleg
gestum okkar. Það má með sanni segja að
því kalli hafi verið svarað kröftuglega. Hundr-
uð sjálfboðaliða lögðu okkur lið og unnu hér
daga og nætur með bros á vör. Framlag
þeirra fáum við seint fullþakkað, án starfa
þeirra hefði mótið ekki verið haldið.
Það var okkur í stjórn HSK afar mikilvægt
að vel tækist til með Unglingalandsmót UMFÍ
þar sem við höldum annað stórmót að ári,
það er Landsmót UMFÍ 2013, í samvinnu við
Sveitarfélagið Árborg. Nú er hálfleikur og ég
er þess fullviss að seinni hálfleikur verður
ekki síður vel spilaður af okkar hálfu. Í leik-
hléinu þurfum við að lagfæra þá hnökra sem
upp komu. Ég er þess fullviss að við mætum
tvíefld til leiks í seinnihlutann og getum
borið höfuðið hátt með bros á vör í leikslok.
Keppendum þakka ég drengilega keppni,
forráðamönnum og öðrum gestum þakka
ég fyrir komuna og skemmtilega daga og
býð ykkur velkomin á Landsmót UMFÍ 4.–7.
júlí 2013 á Selfossi.
Guðríður Aadnegard, formaður HSK:
Líf og fjör á Unglingalandsmóti
Guðríður Aadne-
gard, formaður
HSK.