Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.09.2012, Side 10

Skinfaxi - 01.09.2012, Side 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15. Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi: Að baki er velheppnuð og viðburðarík verslunarmannahelgi á Selfossi. Við, sem sát- um í framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts UMFÍ 2012, settum okkur það markmið að gera mótið sem glæsilegast og að mínu mati tókst það. Í öllum undirbúningi einsettum við okkur að taka á móti gestum okkar með bros á vör og veðurguðirnir lögðu sitt af mörkum hvað þann þátt varðaði. Hér brosti sólin sem og aðrir alla helgina. Sveitarfélag- ið bauð upp á frábæra aðstöðu, jafnt á keppnissvæðum sem á tjaldsvæði, og var mikil ánægja meðal gesta með þá aðstöðu og þjónustu sem í boði var. Á Unglingalandsmótum UMFÍ hittast kepp- endur af öllu landinu, í ár var nýtt met slegið í keppendafjölda. Auk íþróttakeppni var boð- ið upp á vandaða og fjölbreytta dagskrá alla landsmótsdagana. Hér var iðandi mannlíf og bærinn fullur af lífi, kæti og gleði. Þegar ég fór um Selfoss mótsdagana var ekki hægt að merkja að hér væru þúsundir á ferð og flugi, umgengnin var frábær og eiga þeir sem sáu til þess að hér sást ekkert rusl á götum eða öðrum svæðum, þakkir skildar. Ég held þó að fleiri en þeir sem skráðir voru sem sjálfboða- liðar við hreinsun hafi lagt þar hönd á plóg. Einn morguninn, þegar ég var að aka inn í bæinn, enginn sjáanlegur á ferli, tek ég eftir rusli á Austurvegi en kem þá jafnframt auga á eldri mann sem var að hreinsa upp það sem á vegi hans varð. Ég er ekki í vafa um að þessa góðu vinnu ástunduðu fleiri og sáu þannig til þess að bærinn skartaði sínu fegursta. Í spjalli mínu við börn og ungmenni móts- dagana kom fram í máli þeirra að á Unglinga- landsmótum væri mikil stemmning og stuð. Á mótunum skapist mikil vinátta og margir nýir vinir og félagar bætist í vinahópinn. Ég heyrði að nú þegar væru margir farnir að leiða hugann að því að skipuleggja för á næsta mót sem haldið verður á Höfn í Hornafirði að ári. Unglingalandsmót UMFÍ er í mínum huga einhver mesta upplifun sem ungmenni landsins eiga kost á að taka þátt í um versl- unarmannahelgi. Mótin efla íþróttastarfið, vináttu og samkennd og þátttakendur mæta fullir af orku til leiks í íþróttafélögum sínum að hausti með skemmtilegar minn- ingar af mótunum. Ég er þess fullviss að Unglingalandsmótið er enn ein rósin í hnappagat Héraðssam- bandsins Skarphéðins og vil hér með nota tækifærið til þess að þakka Sveitarfélaginu Árborg fyrir stóran þátt þess í að gera mótið jafn glæsilegt og raun bar vitni sem og fyrir frábæra samvinnu við allan undirbúning. Formanni og framkvæmdastjóra UMFÍ, fram- kvæmdastjóra og verkefnastjóra mótsins ásamt meðnefndarfólki mínu í framkvæmda- nefnd mótsins, björgunarsveit og lögreglu þakka ég fyrir framlag þeirra. Innan Héraðssambandsins Skarphéðins er stór og föngulegur hópur af frábæru fólki sem kann vel til verka þegar kemur að stór- mótum. Þar fara fremstir í flokki sérgreina- stjórar mótsins sem lögðu grunninn, með aðstoðarfólki sínu, að vel skipulagðri og skemmtilegri íþróttakeppni. HSK átti glæsilegan hóp keppenda sem fengu treyju merkta sambandinu og Arion banka. Unglingalandsmótsnefnd HSK hafði veg og vanda af undirbúningi og skipulagn- ingu þátttöku HSK og færi ég nefndar- Bautasteinn afhjúpaður á Selfossi Eftir setningarathöfn Unglingalands- mótsins í sumar var afhjúpaður bauta- steinn á íþróttavallarsvæðinu til minningar um mótin sem haldin hafa verið á Selfossi, Landsmótið 1978 og Unglingalandsmótið sem fram fór í sumar. Það voru þær Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem afhjúpuðu bautasteininn í sameiningu. Helga Guðrún sagði af þessu tilefni að það væri heiður að fá að afhenda sveitarfélaginu fyrir hönd hreyfingarinnar þennan minnisvarða til minningar um það dugmikla og kröftuga starf sem hefur verið unnið á Selfossi. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Ásta Stefáns- dóttir, fram- kvæmdastjóri Árborgar, við athöfnina þegar bautasteinninn var afhjúpaður. mönnum bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Félagar okkar í HSK voru hvattir til þess að koma til starfa með framkvæmdanefndinni og leggja sitt af mörkum svo að mótið yrði sem glæsilegast og helgin ógleymanleg gestum okkar. Það má með sanni segja að því kalli hafi verið svarað kröftuglega. Hundr- uð sjálfboðaliða lögðu okkur lið og unnu hér daga og nætur með bros á vör. Framlag þeirra fáum við seint fullþakkað, án starfa þeirra hefði mótið ekki verið haldið. Það var okkur í stjórn HSK afar mikilvægt að vel tækist til með Unglingalandsmót UMFÍ þar sem við höldum annað stórmót að ári, það er Landsmót UMFÍ 2013, í samvinnu við Sveitarfélagið Árborg. Nú er hálfleikur og ég er þess fullviss að seinni hálfleikur verður ekki síður vel spilaður af okkar hálfu. Í leik- hléinu þurfum við að lagfæra þá hnökra sem upp komu. Ég er þess fullviss að við mætum tvíefld til leiks í seinnihlutann og getum borið höfuðið hátt með bros á vör í leikslok. Keppendum þakka ég drengilega keppni, forráðamönnum og öðrum gestum þakka ég fyrir komuna og skemmtilega daga og býð ykkur velkomin á Landsmót UMFÍ 4.–7. júlí 2013 á Selfossi. Guðríður Aadnegard, formaður HSK: Líf og fjör á Unglingalandsmóti Guðríður Aadne- gard, formaður HSK.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.