Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.2012, Síða 16

Skinfaxi - 01.09.2012, Síða 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Áhersla á heilbrigði og hreyfingu Dagana 18.–25. ágúst í sumar sem leið var haldin ráðstefna á vegum UFOLEP (Union Française des Oeuvres Laïques d’Education Physique) og ISCA (Interna- tional Sport and Culture Association) sem bar yfirskriftina „Swell: Youth training for health and wellness“. Ungmennafélagi Íslands var boðið sæti fyrir tvo fulltrúa á aldrinum 18–30 ára á ráð- stefnunni. Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ, sótti ráðstefnuna ásamt Elmari Eysteinssyni og Jóhönnu Guðrúnu Snæfeld Magnúsdóttur. Á ráðstefnunni var megináhersla lögð á heilbrigði og hreyf- ingu út frá þremur mismunandi sjónarmið- um, mikilvægi hreyfingar fyrir líkamlega heilsu, andlega og félagslega vellíðan og út frá sjónarhorni mannréttinda og for- varnastarfs. Þau segja hér frá ferðinni sem var vel heppnuð og ógleymanleg í alla staði. Við vorum þrjú fersk sem lögðum af stað snemma morguns 18. ágúst út á Keflavík- urflugvöll, gífurlega spennt fyrir því sem fram undan var. Ferðinni var heitið til Xonrupt-Longmere í Frakklandi. Veður- spáin var æðisleg, 25 stiga hiti eða meira og sól allan tímann, og ráðstefnuna átti að halda einhvers staðar uppi í fjöllum. Við flugum fyrst til Basel þar sem konurn- ar þurftu að fá að skreppa í lífsnauðsyn- lega ferð í H&M. Þá vildi ekki betur til en svo að við hálfvilltumst á leiðinni til baka og vorum því nærri búin að missa af lest sem átti að flytja okkur á áfangastað. Við fengum leigubílstjóra til þess að aka okkur á fleygiferð á lestarstöðina. Tíma tók að koma okkur á réttan stað og við hlupum út um alla lestarstöð. Að lokum vorum við þó sest inn í lest, sem við héldum að væri hin rétta, þremur mínútum fyrir brottför. Allt hafðist þetta á endanum og við kom- umst heil á áfangastað. Fyrsta kvöldið okkar á svæðinu var hald- ið nokkurs konar kynningarpartý þar sem átti að hrista hópinn aðeins saman, en saman voru komin ungmenni víðs vegar að úr Evrópu, ein frá Asíu og einn frá Suður- Ameríku og var hópurinn af öllum stærð- um og gerðum. Dagskráin byrjaði svo af alvöru á sunnudeginum. Haldið var áfram að hrista hópinn saman í upphafi dags og dagskráin kynnt fyrir okkur. Sum okkar voru vanari þessum námskeiðum en önn- ur og vissu því nokkurn veginn við hverju væri að búast. Námskeiðið snerist um heil- brigðan lífsstíl og hvernig hægt væri að nota íþróttir sem fræðslutæki. Ýmsir fyrir- lestrar voru haldnir en þó var reynt að halda formlegheitunum í lágmarki og láta þátttakendurna taka sem allra mest þátt í dagskránni sjálfa. Umræðurnar gátu oft orðið æði skrautlegar þar sem þátttakend- urnir voru með ansi mismunandi bakgrunn. Margt var gert fyrir utan þessa hefð- bundnu fyrirlestra til þess að reyna að fræða okkur um heilsu og líkamlega vellíðan. Farið var í körfubolta og fótbolta þar sem hver og einn þátttakandi fékk hlutverk sem hann átti að leika. Í fótboltanum gekk það út á að þú varst með ýmiss konar líkam- lega eða andlega kvilla og áttir að spila eftir því. Í körfuboltanum snerist það um að þér var úthlutað einhverri persónu og á þriggja mínútna fresti var kallað upp ein- hver aðstaða sem þú gætir komist í, í lífinu. Ef þú taldir það eiga við þig áttir þú að frjósa í eina mínútu á meðan hinir spiluðu. Þetta gat til dæmis verið að þú hefðir ekki aðgang að hreinu vatni, eða að þú hefðir ekki aðgang að sjúkratryggingum eða þess háttar. Báðir þessir leikir vöktu okkur mikið til umhugsunar um aðstöðumun fólks, hvort sem það var í fótboltanum þar sem fólk gat fengið það hlutverk að það væri í mikilli vímuefnaneyslu, of feitt eða með of háan blóðþrýsting o.fl. eða í körfu- boltanum þar sem þú gast verið heimilis- laus, barn forríkra einstaklinga, vændis- kona eða því um líkt. Þetta gert til þess að fá okkur til þess að hugsa um að maður geti ekki sett alla undir sama hatt og verði að skoða ólík sjónarhorn og mismunandi aðstæður. Þá fengum við að prófa að fara á kajak út á vatn og var það hin skrautlegasta skemmtun. Fólki gekk misvel að ná tökum á róðrinum en hópnum var skipað að mynda hring og festa sig saman og síðan var prófað hvort einstaklingar gætu farið úr sínum báti og labbað hringinn á hinum bátunum. Þetta gekk vel þótt ótrúlegt megi virðast. Í lokin var okkur skipt upp í 6 manna lið og við sett á tveggja manna kajaka þar sem við áttum að fara í þrautabraut. Við Íslendingarnir vorum öll saman í liði og okkur gekk ekki sem best í þessum hluta þrautarinnar. Svo átti allur hópurinn sam- an að fara sömu þraut á þessum tveggja manna kajökum en nú var búið að snúa þeim á hvolf. Þar fékk verksvit Íslending- anna að njóta sín og Elmar lenti í því að róa einn á meðan kvenmennirnir lágu flatir ofan á bátnum og einn karlmaður synti aftast og ýtti bátnum þannig. Í stuttu máli sagt unnum við þá þraut með yfir- burðum. Þá var einn dagur áætlaður í fjall- göngu um svæðið. Það endaði ekki vel hjá Elmari, hann fékk hitasting áður en lagt var af stað svo að hann þurfti að dúsa heima upp í rúmi og var Jóhanna ráðin til að hjúkra honum. Svo var okkur sagt, þegar við komum til baka, að þetta hefði verið alveg æðislegt og við tókum bara orð þeirra fyrir því. Síðustu dagana var okkur skipt upp í nokkur verkefni. Meðal þeirra voru mynd- bandsverkefni, bæklingagerð, að þróa æfingu og MOVEWEEK. Við tókum þátt í videoverkefninu og að þróa æfingu. Jóhanna fór í myndbandagerðina og er sú vinna í fullum gangi, en markmiðið var að búa til myndaband sem fengi fólk í raun og veru til að hugsa um hreyfingu og fá kyrrsetufólk til þess að bæta lífsstíl sinn. Áætlað er að myndbandið verði tilbúið um mánaðamótin nóvember-desember. Ungmennaráðstefna í Frakklandi: Þátttakendur á ráðstefnunni, Sabína Steinunn Halldórsdóttir, Elmar Eysteinsson og Jóhanna Guðrún Snæfeld Magnúsdóttir. Verkefni sem þátt- takendur unnu, þar sem átti að túlka markmið ráðstefnunnar. Elmar og Jóhanna bregða á leik: Hver er ofan á brúnni minni?

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.