Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.09.2012, Page 21

Skinfaxi - 01.09.2012, Page 21
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21 HSK tók þátt í verkefninu í 11. sinn og hefur verið með frá upphafi. HSK hefur tilnefnt tvö ný fjöll í verkefnið á hverju ári. Skarðsmýrarfjall í Ölfusi og Vatnsfell á Holtamannaafrétti urðu fyrir valinu í ár. HSK stóð fyrir fjölskyldugöngu á Skarðs- mýrarfjall miðvikudaginn 30. maí sl. Göngumenn hittust við Skíðaskálann í Hveradölum og þaðan var sameinast í bíla. Göngustjóri var Björn Pálsson í Hveragerði. Skarðsmýrarfjall er tæpir 597 metrar á hæð og er á norðanverðri Hellisheiði. Norðan og austan við fjallið er Hengils- svæðið sem hefur upp á mjög áhugavert landslag að bjóða. Þar eru hverir og gígar, ár og stöðuvötn og fjölbreytt gróðurfar. Hengilssvæðið er meðal stærstu háhita- svæða á Íslandi. HSK-gangan á Vatnsfell var farin laugar- Sandfell í Fáskrúðsfirði var fjall UÍA í verk- efni UMFÍ, Fjölskyldan á fjallið, árið 2012. Sandfellið er sunnan megin í Fáskrúðsfirði og er farið upp með Víkurgerðisá inn í Fleins- dal og gengið upp á fjallið að suðaustan- verðu. Fjallið er líparítfjall og jarðfræðilega einstakt. Gönguleiðin er stikuð. Fyrsti hluti leiðarinnar, inn í botn Fleinsdals, er gróinn og ekki mjög brattur en leiðin á fjallið er brattari og erfiðari, einkum fyrir óvana. Áætlaður uppgöngutími er 2 – 2,5 tímar. Framkvæmdastýra UÍA leiddi starfs- mannagöngu á fjallið, sem kom m.a. gestabók fyrir, og hefði sennilega farið á tindinn á einum og hálfum tíma hefði for- maðurinn ekki verið með í för og tafið fyrir. Eftir að hafa fengið nóg af sniglinum stakk framkvæmdastýran af á endasprettinum og fór ein á tindinn. Að sögn hennar er út- sýnið af tindinum ægifagurt og sést bæði inn í þorpið í Fáskrúðsfirði og út fjörðinn að Skrúði. Útsýnið úr hlíðinni er líka fagurt. Þá var gengið á Grænafell í tilefni af Fjölskylduganga hjá HSK á Skarðsmýrarfjall degi íslenskrar náttúru 16. september. Gangan, sem var samvinnuverkefni UÍA, daginn 16. júní og gekk vel. Guðni Guð- mundsson á Þverlæk tók þátt í verkefninu líkt og undanfarin ár. Í og eftir gönguna urðu til eftirfarandi vísur hjá honum: Hér umhverfis liggur orkuforði. Öflugir víða stíflugarðar. Því orkan er öll á yfirborði. Ekkert sem að Kölska varðar. Af öræfum er orkan fengin. Orkuríkt er Frón. Umhverfisspjöll sé nánast engin. Aðeins fögur lón. Vel ég naut hér varmastunda. Vatnsflöturinn spegilskyggn. Á Vatnsfellið er vert að skunda. Sjá víðáttunnar miklu tign. Starfsmannaganga hjá UÍA á Sandfell Foxufell í Hítardal var fjall ársins hjá UMSB en gönguleiðin að fellinu er um 4,5 km. Hópur göngugarpa gekk á fjallið í vor og kom fyrir gestabók. Önnur skipulögð ganga var síðan farin í ágúst sem var um leið hluti af 100 km afmælisgöngu sambandsins. UMSB með göngu á Foxufell Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps og Nátt- úrustofu Austurlands, tókst í alla staði vel.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.