Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.2012, Qupperneq 29

Skinfaxi - 01.09.2012, Qupperneq 29
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29 Mig langar að viðra hér áhyggjur mínar af því að íþróttastarf félaga á landsbyggð- inni eigi eftir að minnka töluvert og jafn- vel hverfa af íþróttamótum. Ég er aðallega að tala hér um Íslandsmót. Núna í sumar kom hækkun á flugi og var talað um að hækkun þessi hefði verið óumflýjanleg og hefði í raun átt að koma mun fyrr. FÍ-menn hefðu haldið að sér höndum sem er og rétt hvað varðar ÍSÍ-fargjöldin. Þetta kann að vera alveg rétt hjá þeim og allir verða víst að reyna reka fyrirtæki sín án þess að skila tapi. Slíkar skýringar eru þó til lítillar huggun- ar fyrir félög úti á landi sem nota flugið mikið til að komast á mót yfir vetrartímann og þurfa einnig að passa sig á að skila ekki tapi í sínum rekstri. Ég tek hér gróft reikningsdæmi að vest- an. Flug frá Ísafirði (ÍSÍ-fargjald) hefur hækk- að úr um 16.000 kr. í 21.000 kr. Frá því á síðasta starfsári er hækkunin því um tæp 25%. Þetta þýðir að ferðir að vestan yfir tímabil körfuboltans hafa hækkað um tvær milljónir á uppsettu ÍSÍ-verði. Og þarna er ég bara að taka inn í mengið ferðir unglingaflokks og meistaraflokka félagsins. Síðan bætast við þessa upphæð gisting og bílaleigubílar. Þá á eftir að taka inn í þetta ferðir krakk- anna okkar og eins og venjulega leggst það gjald aðallega á fjölskyldurnar þó að félagið niðurgreiði ferðir að einhverju leyti. Meðalkostnaður við ferðir á mót hjá krökk- unum í yngri flokkum á Íslandsmót er um 60.000–70.000 kr. á hvern iðkanda yfir tíma- bilið og er ég þá að taka fjölliðamót inn í dæmið. Og þetta er að sjálfsögðu fyrir utan uppihald. Ég er á engan hátt að setja út á FÍ. Þeir töldu sig þurfa að gera þetta á sínum for- sendum og þannig er það bara. En það sem ég hef mestar áhyggjur af er að félög úti á landi dragi saman seglin og fækki ferðum á mót vegna of mikils kostnaðar og þá er illt í efni fyrir íþróttir og félags- starf. Ég hef verið í sambandi við félaga á Akureyri og Egilsstöðum og þar er sama sagan, reyndar er þetta verst hjá íþrótta- félögum fyrir austan sem verða að fara allar sínar ferðir í flugi. Hvað er það fyrsta sem félag eins og hér fyrir vestan gerir? Jú, það er að reyna að spara eftir bestu getu og það á reyndar við um öll félög sem þurfa að ferðast mikið. Og þá kemur að því sem ég hræðist mest. Það er að félögin fara í auknum mæli að keyra á leiki. Það munar mjög miklu á verði að keyra annars vegar og fljúga hins vegar, þar sem keyrslan er mun ódýrari kostur. En á sama tíma mun hættan á slysum stóraukast. Ég þekki þetta mjög vel í eigin ranni og hef lent í að keyra út af í brjáluðu veðri og vera hætt kominn með mig og mína á leið til keppni. En það verður ekki um mikið annað að velja. Íþróttafélögin hafa ekki efni á að fljúga í allar ferðir miðað við verðmiðann sem er á fluginu í dag. Ég hef áður sagt að ég hafi miklar áhyggjur af þessari þróun og þá sérstak- lega vegna þeirrar hættu sem skapast við að ferðast keyrandi í fjölda ferða í mis- jöfnu veðri. Ég vil með þessum stutta pistli vekja athygli á þessum málum og hvet fólk til að hjálpast að við að finna lausnir á vand- anum. Allir vita hvað íþróttir og félags- starf eru nauðsynlegur hluti af lífinu. Það er ekki hægt að finna betri hvata til heil- brigðs lífernis, það hefur margoft verið sýnt fram á. Þessu er hér með stefnt í hættu. Með hvaða hætti er hægt að bregðast við þessu? Hafa héraðssambönd, sérsam- bönd og aðrir hagsmunaaðilar rætt þessi mál og reynt að finna lausnir sem geti sam- einað sjónarmið FÍ og íþróttahreyfingar- innar? Eða er enginn grundvöllur fyrir slík- um viðræðum? Ekki þarf að leggjast djúpt í að reikna það út að hálftómar vélar, sem fljúga hvort sem er vestur, norður eða austur, fá engar tekjur frá íþróttafélögum ef svo fer sem horfir. Ef til vill leggjast af ferðir vegna þessa eða áætluðum ferð- um fækkar. Það segir sig sjálft, sé til dæmis horft á keppni í körfunni hér heima, verð- ur það þannig að ef allir keyra á leiki mun það þýða umtalsvert tekjutap fyrir FÍ og einnig þá sem njóta góðs af því að félögin gisti hér og kaupi sér veitingar. Þetta er eitthvað við Vestfirðingar vilj- um ekki og það er mín trú að FÍ vilji þetta alls ekki heldur. Ég hef ekki minnst á það hér en fólk í körfunni er ekki eitt um þessar áhyggjur. Hér fyrir vestan er, eins og á flestum stöð- um, blómlegt íþróttalíf og til keppni fer auk okkar fólk í sundi, handbolta, fótbolta, frjálsum og fleiri íþróttum og öll erum við í sömu vandræðum hvað ferðakostnað varðar og þar er um langstærsta útgjalda- lið íþróttafélaganna að ræða. Við (íþróttahreyfingin) erum stærstu félagasamtök landsins og ferðumst mikið til að taka þátt í mörgum mismunandi við- burðum. Ég vil að það verði svo til fram- tíðar en, eins og ég skrifa hér að ofan, hef ég miklar áhyggjur af þeim breytingum sem eru að verða á ferðamáta félaganna og ef ekki á illa að fara verðum við að bregðast við þeim sem fyrst. Við verðum að gera þetta saman. Íþrótta- hreyfingin, FÍ, sveitarfélög og ríkisvald þurfa að bregðast við þessu vandamáli sem allra fyrst og reyndar þó fyrr hefði verið. Ég vil einnig minna á að Jöfnunarsjóð- ur, sem settur var upp af ríkinu og átti að bregðast við útgjöldum af þessu tagi, hef- ur minnkað og alls ekki fylgt eftir þeirri stefnu sem sett var fram á sínum tíma. Það er ekki til að minnka áhyggjurnar. Með íþróttakveðju að vestan, Gaui. Þ. Guðjón Þorsteinsson: Er landsbyggðin að hverfa af íþróttamótum?

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.